Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 9
Feg u rða rsa m keppn i
kúa
Opera er glæsileg ung kýr og vel að
fyrsta titlinum komin. Hún segist
hafa verið mjög hissa á að vinna
keppnina: „Ég bjóst alls ekki við þessu,"
segir hún við VERU. Ópera játar feimnislega
að hafa fellt tár þegar úrslitin voru tilkynnt,
en hún er mjög fallega eygð og hafa brúna-
ljósin brúnu hennar örugglega tindrað fag-
urlega við það tilefni. Hún segir að það hafi
verið mjög þroskandi að taka þátt í keppn-
inni og henni finnst að sem flestar kvígur
ættu að stefna að þátttöku. Henni finnst
mjög leiðinlegt að hafa ekki hitt hina kepp-
endurna en þær voru ailar uppteknar við
skyldustörf. „Ég er viss um að við hefðum
allar orðið góðar vinkonur," segir Ópera og
brosir geislandi brosi.
Eyjo frá Eyjafjarðarsveit var
kjörin Ljósmyndafyrirsætan,
og bíða hennar örugglega
mörg tækifæri í framtíðinni.
Skrauta varvalin Miss
T - Bone. Hún verður full-
trúi keppninnar á erlendri
grundu og er enginn vafi
að hún verður landi og
þjóð til sóma.
Ungfrú Gateway var kjörin með viðhöfn 18.
apríl síðastliðinn. Hin heppna heitir Opera og
er sjö ára yngiskýr frá Bjólu í Djúpárhreppi.
Flekka var kjörin
Ungfrú júgurstærð.
Doppa hlaut titilinn
Ungfrú fótleggir.
Kýrnar sem þátt tóku í keppninni
lögðu allar mikið á sig til að vera sem
glæsilegastar á lokadeginum, enda til
mikils að vinna að láta draum allra kvíga
rætast: Að fá borða um hálsinn og vera
miðpunktur athyglinnar. Enda fór það svo
að dómnefndin, sem skipuð var valin-
kunnum dómnefndarmönnum, s.s. Bald-
vini Jónssyni og Ástu Kristjánsdóttur, átti í
mesta basli með að gera upp á milli kepp-
enda og fengu því flestar kýrnar einhverja
titla sem gerir þeim auðveldara að koma
sér á framfæri - því allar dreymir þær auð-
vitað um að verða fyrirsætur.