Vera


Vera - 01.04.2001, Side 14

Vera - 01.04.2001, Side 14
Eftir Lindu Biöndal Myndir: Þórdís Ágústsdóttir Úr Ráðhúsi Reykjavíkur 1 ' 1 ■ B' ' ; i gb m 1 - i * Anna Kristín Ólafsdóttir tók nýlega við starfi aðstoðarkonu borgarstjóra. Hún er stjórn- málafræðingur að mennt og er ný flutt heim frá Bandaríkjunum þar sem hluti fjölskyldunnar dvel- ur enn. Anna Kristín lauk þar nýlega MPA námi í op- inberri stjórnsýslu frá Robert M. La Follette School of Public Affairs í Wisconsin en að því loknu starfaði hún fyrir ríkisendurskoðun Wisconsinþings að úttekt- um á stjórnsýslueiningum svæðisins, þjónustustigi þeirra og árangri. Hér er á ferð Kvennalistakona og stuðningskona Reykjavíkurlistans en stjórnmálaafskiptin urðu upp- hafið að kynnum hennar og Ingibjargar Sólrúnar. Vert er að segja frá því að um tvítugt stundaði Anna Krist- ín nám f virtum kvennaháskóla í Massachusetts, Wellesley College, en meðal annarra útskriftarnema skólans eru sómakonurnar Madeleine Albright og Hillary Clinton. Veru þótti því freistandi að spyrja Önnu Kristínu stuttlega hvernig íslenskt samfélag og staða kvenna hér á landi komi henni fyrir sjónir eftir fimm ára dvöl vestra, m.a. í Madisonborg sem er framarlega í baráttu fyrir mannréttindum og skartar þeirri háskólastofnun sem varð fyrst til að setja á fót rannsóknarstofu í kvennafræðum. Sýn hennar á „kyn- lífsbyltingu" borgarinnar, Ráðhúsið f dag og hug- myndir hennar um starf sitt sem nánasta samstarfs- kona Ingibjargar Sólrúnar bar m.a. á góma í Veru- spjalli. Breytt Róðhús „Reykjavíkurborg er spennandi viðfangsefni og vil ég nefna sérstaklega verkefni sem snúa að jafnréttismál- um, málefnum barna og unglinga og umhverfismál- um. Þar vil ég persónulega beita mér meira. Starf mitt er þó tvíþætt, annars vegar er ég pólitísk aðstoðar- kona borgarstjóra en hins vegar vinn ég með öðrum embættismönnum Ráðhússins. Áhrif mín í Ráðhús- inu eru því skilyrt þeirri stöðu. Frá þeim tfma sem ég fór út f nám hefur hins vegar orðið mikil breyting á stöðu kvenna í stjórn borgarinnar og fjölmargar sterk- ar konur hafið störf f Ráðhúsinu; margbreytilegar kon- ur með völd og áhrif hafa bæst í hóp embættis- og stjórnmálamanna hér. Það er því af sem áður var þeg- ar forveri minn, Kristín A. Árnadóttir, var oft eina kon- an ásamt ingibjörgu Sólrúnu á fjölmennum karla- fundum," segir Anna Kristfn. Gróf umfjöllun um konur óberandi „Hvað varðar málefni kvenna á íslandi í dag hefur mér komið í opna skjöldu hvað umfjöllun í fjölmiðlum er orðin gróf gagnvart konum og kynferðismálum al- mennt. Það er líkt og öll mörk hafi máðst út í hugum fólks. Um það leyti sem ég fór í framhaldsnám bar umræðan meðal margra ungra kvenna þess helst merki að miklu kvenfrelsi væri nú þegar náð. Þeim fannst þær geta leyft sér að vera allt sem þær vildu og að vera mjög frjálsar. Ég hafði satt að segja tals- verða trú á þessari þróun - því að nýjar kynslóðir kvenna gætu mótað sér kvenímynd nákvæmlega eftir sínu höfði. Nú velti ég því hins vegar fyrir mér hvort það hafi raunverulega ræst úr eins og búist var við, þ.e. að ekkert héldi aftur af okkur. Ég upplifi frekar bakslag í kvennabaráttunni, þó það sé margtuggið og raunalegt að lýsa því yfir. Konur, eins og þær birtast í íslenskum fjölmiðlum í dag, sýnast ekki mjög frjálsar í raun. Að vera með bert niður á nafla á annarri hverri síðu dagblaðanna finnst mér ekki merki um neitt sér- stakt frelsi einstaklingsins heldur frekar teikn um að verið sé að misnota ákveðna ímynd af konum. Ég hugsa að 13 ára dóttur minni, sem kemur brátt til 14

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.