Vera - 01.04.2001, Qupperneq 15
landsins, muni bregða í brún við að upplifa hina
einsleitu kynferðislegu ímynd ungra kvenna sem
haldið er að öllum hér á landi og er svo áberandi
segir hún um upplifun sína á stöðu kvenna hér á
landi og skilaboðin til dætranna.
Borgarbúar láti upp sínar skoðanir
„Borgin hefur vissulega verið að vinna í að stemma
stigu við þessari þróun, m.a. með því leggja bann við
nýjum nektarstöðum í miðborginni, en það er ekki
nóg. Borgarfulltrúar, þingmenn og borgarbúar allir
verða að taka höndum saman og gera grein fyrir
skoðun sinni á þessum málum," segir hún og bendir
á að helsta vonin til framtíðar liggi líklega innan skól-
anna. Þar geti ungt fólk rætt um þau gildi sem við
viljum lifa við, þar geti farið fram mikilvæg siðfræði-
leg umræða um hvað við samþykkjum að sé f lagi og
hvað ekki. „Meginspurningin er hvort við sættum okk-
ur við þessa þróun. Hvernig líður okkur konum með
að verið sé að fjalla um okkur á niðurlægjandi hátt,
eins og raun ber vitni? Og eru karlar sáttir við þessa
kvenímynd?"
Mæðgur í stjórnmálum
Hvað varðar hugmyndafræði stjórnmála segist Anna
Kristín ekki beinlínis hafa orðið fyrir áhrifum af
stjórnmálaþátttöku móður sinnar, Láru Margrétar
Ragnarsdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins, en sjálf
er hún skráð í Samfylkinguna. „Ég hóf mína stjórn-
málaþátttöku áður en mamma fór á þing og hennar
áhrif eru meira óbeint á mig. Ég var í Stúdentaráði og
Háskólaráði og stofnaði Röskvu með ýmsu góðu fólki
og hef einfaldlega alltaf haft áhuga á stjórnmálum.
Umræðan á mínu æskuheimili var líka alltaf mjög
opin. Þar voru margs konar sjónarmið rædd við okkur
krakkana og alltaf minnt á að tvær hliðar væru á
hverju máli," rifjar hún upp.
Nútímalegt ráðhús
Anna Kristín vekur athygli á miklum umbótum og nýj-
ungum í stjórnsýslu borgarinnar, þ.e. stjórnsýsluum-
bótum líkt og sjá má gerast í ýmsum stofnunum í
Bandaríkjunum. „Það er sérlega skemmtilegt að
ganga inn á þennan vinnustað og fara að praktísera
það nýjasta í fræðunum sem maður hefur lagt stund
á. Auk þess finnst mér bæði kjörnir fulltrúar og
embættismenn borgarinnar hafa kraftmikla og spenn-
andi sýn á það hvernig borgarsamfélag Reykjavfk eigi
að verða í framtíðinni. Það er grundvallaratriði."
Með þetta í huga, og styrk kvenna innan borgar-
kerfisins, segist Anna Kristín bjartsýn á getu borgaryf-
irvalda til að vinna gegn niðurlægjandi viðhorfum
gagnvart konum þó slíkt komi ekki í stað viðbragða
almennings. Restin af fjölskyldu Önnu Kristínar kem-
ur heim í lok júní.
„Ég er þessa stundina að leita að heppilegu hús-
næði fyrir okkur og frístundir f sumar fara væntanlega
mest í það að koma okkur fyrir, hjálpa krökkunum að
aðlagast og undirbúa þau fyrir skólann í haust. Von-
andi verður líka tími hjá okkur í fjölskyldunni til að
slappa af og njóta samverunnar eftir fjögurra mánaða
aðskilnað," segir hún. Hér er þó á ferð hlaupakona
mikil sem stefnir á þátttöku í hálfmaraþoni Reykjavík-
urmaraþons í ágúst. „Ég er hins vegar ekki ein þeirra
sem geri áætlanir mörg ár fram í tfmann svo að fag-
lega einbeiti ég mér í bili stfft að því að komast betur
inn í mál borgarinnar og vinna starf mitt vel næstu
misseri. Það er jú kosningavetur framundan og vafa-
laust verður nóg að gera!"
KJÓL OG HVÍTT
o Fermingarföt
□ Brúðarkjóiar
o Útskriftarföt
o Gallabuxur
og flíspeysur
fyrir konur með
kvenlegan vöxt
SAUMASTOFA
SÍMI 544 4766
LAUGAVEGUR18
Hólmfríður Ólafsdóttir
Klæðskeri
fyrir^Jömor og herro^ Q fatabreytingar
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 9 - 17
Selma Gfsladóttir
Kjólaklæðskeri