Vera - 01.04.2001, Page 17
Einkadans virðist mun mikiivægari
þóttur í starfsemi nektardansstaða
hér á iandi en í öðrum löndum.
Vændi á sér stað á íslandi eins og í öðrum
löndum. Það var staðfest í skýrslunni Vœndi d
íslandi og félagslegt umfiverfi sem unnin var
fyrir dómsmálaráðuneytið. í skýrslunni er vændi flokk-
að í þrjá flokka, þ.e. nauðarvændi, vændi í heimahús-
um og skipulagt vændi.
Nauðarvændi tengist áfengis- og fíkniefnaneyslu þar
sem dópsaiar eða eldri karlmenn selja aðgang að
stúlkum og láta þær fá fíkniefni í staðinn.
Vœndi í fieimafiúsum getur verið þannig að kona hafi
nokkra fasta viðskiptavini til að drýgja tekjur sínar,
einnig geta viðskipti farið fram á götunni, t.d. í
nágrenni við nektardansstaði, og sfðan er farið heim
eða á gistihús. Auglýsingar á símalínum, f dagblöðum
eða á netinu er vinsæl leið til að koma á persónuleg-
um viðskiptum með vændi og ein tegundin nefnist
lúxusvændi og fer fram með milligöngu hótela.
Skipulagt vændi getur líka farið fram í gegnum dag-
blöð, símalínur og netið eða með milligöngu vændis-
sala. f því tilviki getur vændiskonan verið í tilfinninga-
legum tengslum við þann sem selur hana eða átt í
slitróttu kynferðislegu sambandi við hann og vændis-
salinn stundar oft viðskipti með fleiri en eina mann-
eskju. Síðasti flokkur þess sem telst til skipulegs
vændis er vændi innan nektardansstaða og að því
verður nánar vikið hér á eftir.
Vinsældlr nektardansstaðanna
Þessi þróun hefur gerst mjög hratt hér á landi. Það
eru ekki nema um sex ár síðan fyrsti nektardansstað-
urinn opnaði, starfsemi símalína á sér svipað langa
sögu og búðir með „erótískan" varning sömuleiðis.
Vöxtur nektardansstaðanna varð það hraður að líkja
má við æði, eins og oft vill verða hér á landi með nýj-
ungar. Nektardansstaðir byggja tekjur sínar að lang-
mestu leyti á einkadansi þar sem einum manni er
seldur aðgangur að einni konu. Þetta fyrirbæri hefur
að vonum vakið umræður, ekki síst vegna þess að
einkadans virðist mun mikilvægari þáttur f starfsemi
nektardansstaða hér á landi en í öðrum löndum.
Fréttir hafa borist af himinháum upphæðum sem
menn hafa eytt í einkadansklefunum og ekki skrýtið
þótt almenningur velti fyrir sér hvað mennirnir séu
eiginlega að borga fyrir. Svo algengt var að menn
eyddu ríflega um efni fram að greiðslukortafyrirtækin
sáu ástæðu til að setja hámark á upphæðir sem
heimilt var að greiða með greiðslukortum á nektar-
dansstöðum.
íslenskir karlmenn virðast hafa tekið þessari nýj-
ung í skemmtanalífinu fagnandi og æ fleiri tala um að
hún sé bráðnauðsynleg vilji Reykjavík vera talin
heimsborg. Eigendum nektardansstaða er hampað í
virtum landkynningarblöðum, eins og lceland Review,
og í DV var nýlega haft eftir einum þeirra að svona
starfsemi sé lykilatriði í tengslum við erlendar ráð-
stefnur, sé beinlfnis ein af kröfum þeirra sem velja
borgirtil ráðstefnuhalds.
Vændi það sama og kynlífsþjónusta?
í íslenskum lögum er skýrt kveðið á um að óheimilt
sé að hafa hagnað af vændi annarra. En hvað er
vændi? Er það sama og kynlífsþjónusta? Kynlífsþjón-
ustan sem fer fram í einkadansi nektardansstaðanna
er augljós - en telst hún samt ekki ólögleg? Ekki er
heldur farið dult með hvaða þjónusta er í boði á
símalínunum og þær hafa aflað DV umtalsverðra
tekna í gegnum árin.
Skýrsla dómsmálaráðuneytisins varpar skýru Ijósi
á margs konar vændisstarfsemi og kynlífsþjónustu og
hlýtur að ýta við stjórnvöldum og alþingismönnum
að grípa til aðgerða. Eða ætla þeir bara að fylgjast
með því sem gert er á hinum Norðurlöndunum, eins
og skilja mátti af orðum dómsmálaráðherra í viðtali
við Morgunblaðið eftir að vændisskýrslan kom út.
Sala á konum f kynlífsþrældóm er vaxandi, alþjóð-
legt vandamál og varla getur nokkur maður lengur
talið sér trú um að sú starfsemi teygi ekki anga sína
til íslands. Alþjóðlegar stofnanir, eins og Sameinuðu
þjóðirnar og Evrópusambandið, vinna af hörku gegn
þessu ört vaxandi vandamáli og Evrópuráðið hvetur
aðildarþjóðir sfnar til að grípa til samhæfðra aðgerða.
Ríkisstjórn íslands hlýtur að bregðast við þeirri áskor-
un og taka til sinna ráða.
17