Vera - 01.04.2001, Page 26
Arnar Gíslason
Kynlífsvæðing
Kynlífsframboð á netinu:
einkamal.is
Stefnumótavefurinn einkamal.is er eitt vin-
sælasta íslenska samskiptatorgið á netinu.
Þegar þetta er skrifað státar vefurinn af rúm-
lega 12.000 skráðum notendum. Þessar gríðarlegu
vinsældir má meðal annars rekja til þess hversu ein-
faldur hann er og fljótvirkur, auk þess sem þjónustan
er notendum að kostnaðarlausu. En fyrst og fremst
hljóta góðar viðtökur að endurspegla eftirspurnina
eftir vef sem þessum. Að því er virðist þá byggist vef-
urinn öðru fremur á eftirspurn notenda eftir hráu kyn-
lífi. Því er hann stórkostlegur vettvangur fyrir fólk sem
aðeins er að leita að stundarkynnum en ekki lang-
tímaskuldbindingu. Meira að segja er sérstakur flokk-
ur og spánnýr af nálinni, skyndikynni, sem hægt er að
velja strax við skráningu til að flýta fyrir viðkynnum
við annað fólk í sömu hugleiðingum. Þótt notendur
spanni nánast allt litróf kynlífsins er langstærstur
hluti þeirra, eða um 85%, gagnkynhneigt fólk sem ekki
er að auglýsa eftir því sem kalla mætti jaðarkynlíf
(BDSM, pör, hópkynni
o.s.frv).
Fyrr í vetur gerði ég
rannsókn á fyrrnefndum vef
undir leiðsögn Ingólfs V.
Gíslasonar, stundakennara
við HÍ. Settar voru þrjár
kven- og þrjár karlkyns aug-
lýsingar á vefinn (allar
gagnkynhneigðar), ýmist
skilgreindar sem staðlaðar,
óstaðlaðar eða hlutlausar.
í stöðluðu auglýsingunum var lögð áhersla á útlit og
kynlíf, í þeim óstöðluðu var konan ákveðin og sjálf-
stæð en karlinn feiminn og rólegur og í þeim hlut-
lausu var einungis sagt að verið væri að óska eftir
karli/konu.
Sú staðlaða fékk um helmingi fleiri svör en hinar
tvær, eða 73 á rúmum mánuði, en alls voru svarend-
ur um 150 og voru níu þeirra giftir eða í sambúð.
Staðlaða auglýsingin var svohljóðandi:
„Ég er grömt og virkilega falleg, eða svo er mér sagt.
Hvað kynlíf varðar er ég til í fivað sem er. Ldttu mig
vita ef þú vilt hitta mig."
Þetta er hin dæmigerða kona á einkamal.is, hún
tiiheyrir a.m.k. þeim hópi kvenna sem njóta hvað
mestrar hylli á vefnum. Hún fékk fyrst og fremst til-
boð um skuldbindingarlaus skyndikynni en sú óstaðl-
aða fékk að auki nokkur svör þar sem minnst var á
sambönd, eða a.m.k. ýjað að því að hittast áður en
gengið væri til verks. Að auki virtust sumir svarendur
hafa rangtúlkað ákveðni hennar („sterkbyggð og
ákveðin kona. Ég stunda kynlíf af kappi og vil helst
vera við stjórnvölinn.") og var mikið beðið um fleng-
ingar og boðið upp á skilyrðislausa undirgefni af
hálfu karlsins.
Það sem mest kom á óvart var að karlarnir skyldu
ekki fá eitt einasta svar og virtist þar ráða mestu lög-
málið um framboð og eftirspurn. Mikil kvenfæð er á
einkamal.is, konur eru aðeins um 27% skráðra not-
enda. Því mætti ætla að þær teldu hag sínum best
borgið með því að skrá sínar eigin auglýsingar á vef-
inn þar sem slíkt er litlu flóknara en að svara öðrum.
Sfðan geta þær einfaldlega valið úr vonbiðlum.
Konur og karlar á einkamal.is
Á einkamal.is virðist fólk fá örlítið frelsi frá hinum
ýmsu höftum hins ytra samfélags. Þó svo að vefurinn
muni varla breyta ríkjandi heims-
mynd okkar í einni svipbrá þá
storkar hann a.m.k. hinum hefð-
bundnu hugmyndum um gagnkyn-
hneigt kynlíf sem dægurmenning-
in heldur að okkur, að það sé eitt-
hvað sem konur þurfa að passa
uppá en karlar þurfi að reyna að
véla þær út í. Á einkamal.is leyfist
bæði körlum og konum að tjá ver-
girni sfna á opinskáan máta, líkast
til vegna þess frelsis sem nafn-
leysið veitir. Þetta væri nokkuð merkilegt ef ekki væri
fyrir þær ólíku forsendur sem kynin gera út á. Oftast
virðist sem það sé hlutverk karlsins að taka og kon-
unnar að vera tekin. Ekki er óalgengt að sjá stúlkurn-
ar á einkamal.is skrifa um að láta „taka mig almenni-
lega" eða að þær vilji „vera teknar í rósina" á meðan
piltarnir ræða um að „taka eina flotta" eða „finna eina
viljuga til að tvímenna á". 24 ára karlmaður sendi inn
eftirfarandi auglýsingu:
„ég er einn fieima, spólgraðu. mig vantar kvennmann í
kvöld. ég er mjög myndarlegur og mjög góður í rúm-
inu. ég dbyrgist fullnœgingar. mig langar í stelpu eða
stelpur d aldrinum 18-26 dra sem er opinn og viljug.
einhverja sem er tilbúin í það að Idta flengríða sér í
nokkrar klukkustundir í kvöld. ræð vel við fleiri en
eina og ég er Ifka til í að fiitta par." 1
„Það sem mest kom
á óvart var að karl-
arnir skyldu ekki fá
eitt einasta svar...7/
26