Vera


Vera - 01.04.2001, Síða 29

Vera - 01.04.2001, Síða 29
Dökku hliðar internetsins Netið hefur breytt miklu í aðgengi al- mennings að upplýs- ingum. Gagnvirkir eiginleikar þess gera okkur kleift að „ræða" við fólk hvar sem er í heiminum. Tilkoma netsins hefur jafnframt haft gífurlega mikla hagræðingu í för með sér fyrir viðskiptalíf og al- þjóðasamfélagið. Netið hef- ur því miður einnig sínar dökku hliðar. Sala kláms er orðin æði fyrirferðarmikil á netinu þar sem konur og börn eru helsta söluvaran. Með tilkomu netsins var einangrun úrkynjaðra hvata rofin. Barnaníð- ingum tókst að stofna samfélag og stunda iðju sína á markvissan hátt, án landamæra. Fjölmiðlar bera okkur fregnir af samfélögum barnaníðinga á netinu, þar á með- al einnig af íslenskum barnaníð- ingum. Frá miðju ári 1998 hafa 19 mál komið upp hér á landi. Einn hefur fengið sjö dóma en sektin er að meðaltali um 200.000 krónur. Rannsóknir hafa leitt f Ijós að í hópi barnaníðinga leynast ekki eingöngu einmana, geðveilir karl- menn heldur einnig fjölskyldufeð- ur. í Bandaríkjunum er hinn dæmi- gerði barnaníðingur hvítur, vel menntaður, í góðu starfi og með hreina sakaskrá. Barnaníðingar hafa unun af því að skoða og skiptast á myndum sem sýna þeg- ar börnum og jafnvel hvítvoðung- um er nauðgað og misþyrmt á hrottafenginn hátt. Alþjóðlegir hringir barnanfðinga selja og skipta hundruð þúsunda mynda á netinu. Árið 1998 kom samstarf lögreglu 13 þjóðríkja upp um alþjóðlega barnaníðingshópinn „Wonderland". Við leit fundust á Bretlandseyjum einum saman tölvugögn sem innihéldu hátt f milljón mynda af barnaklámi. í sumum tilfella er um margar myndir af sömu börnunum að ræða (seríu) sem sýna hrotta- fengna misþyrmingu á þeim á ýmsa vegu. Ánægja barnaníðinga felst ekki sfður í því að eiga sam- skipti við börn sem eru að vafra á netinu. Þeim tekst auðveldlega að nálgast börn á fölskum forsendum á spjallrásum og lokka þau í áframhaldandi spjall sem „góði, elskulegi kallinn" og leynivinurinn. Samskipti þessi geta endað þannig að leynivinurinn leitar barnið uppi eða barnið ákveður grandalaust að hitta þennan „elskulega kall". Það er því mikilvægt fyrir foreldra og aðra nákomna að vera meðvituð um þennan möguleika. Hvernig við getum verndað börnin okkar Ræddu þetta við barnið þitt. Láttu það lofa þér að gefa aldrei upp raunverulegt nafn, símanúm- er, heimilisfang, netfang eða skóla án samráðs við þig. >+■ Staðsettu tölvu með netað- gangi miðsvæðis á heimilinu þar sem auðvelt er að fylgjast með skjánum. Kannaðu hverjir það eru sem barnið þitt er í samskiptum við og hvað það er að aðhafast á netinu. Hugbúnaðarframleiðendur eru í ríkari mæli farnir að selja forrit sem búa yfir „barnvænum" eigin- leikum. Þannig geta foreldrar lok- að á efni sem þau vilja ekki að börnin þeirra sæki í. Glæpi á netinu ber að með- höndla eins og glæpi sem framdir eru úti í lífinu. Ef þú hefur grun um að barnið þitt sé í samskiptum við vafasaman einstakling á netinu þá tilkynntu það lögreglu tafarlaust. Byggt á Newsweek O 29

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.