Vera - 01.04.2001, Side 34
ÍÍV*L*
sT«
• J •T»J jf• [•
Heildarmagn úrgangs Þar af ur8a& Þar af spilliefni Þar af fil endurvinnslu
121 þúsund Tonn 88 þúsund Tonn 14 þúsund Tonn 19 þúsund Tonn
kemur í endurvinnslustöðvar Sorpu er
kurlað og nýtt sem kolefnisgjafi í stað
kola í lárnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga. Allt járn og ál er sent til
fyrirtækis hérlendis sem heitir Fura og
er staðsett í Hafnarfirði. Þeir sjá um
að senda það til Spánar þar sem það
er brætt og nýtt aftur. Kertaafgangar
fara til Sólheima í Grímsnesi þar sem
heimilisfólkið býr til ný kerti úr kerta-
afgöngum. Svo vil ég minna á Góða
hirðinn. Á endurvinnslustöðvum
Sorpu eru sérstakir nytjagámar þar
sem almenningur getur skilað inn hús-
búnaði og gömlum hlutum sem enn
hafa notagildi. Hagnaður sem verður
af sölunni í Góða hirðinum rennur til
líknarfélaga. Allur pappír sem kemur
flokkaðurtil Sorpu fertil endurvinnslu
hjá fyrirtækinu II Recycling sem stað-
sett er í Svíþjóð. Dagblöðin eru
t.d.endurunnin í salernispappír, eld-
húspappír, morgunkornsumbúðir og
annað sem ekki teist til gæðapappírs.
Gróðurhúsaáhrifin og afieiðingar
þeirra eru mikið í þjóðfélagsumræð-
unni. Skýtur það ekki skökku við að
verið sé að menga með útblæstri
skipanna til að koma endurvinnan-
legu efni í farveg?
Tilraunaverkefnið
nýjar leiðir í sorphirðu
Um er að ræða þrjár nýjar aðferðir, þ.e.
vigtun sorpsins, tíðni eða rúmmálskerfi
og hirðing á 10 daga fresti í stað viku-
lega. Tilraunir hófust fyrir ári í Breið-
holti, Selási, Árbæ og Ártúnsholti. •
Vigtun hefur staðið yfir í Selja- og
Bakkahverfi. Þá er hvert hús með
strikamerktar tunnur og við sorphirðu
er sorpmagnið vigtað þannig að hægt
er að fá yfirlit yfír magnið frá hverju
húsi.
Tíðni eða rúmmálskerfið er í Bergum,
Fellum, Stekkjum, Hólahverfi og hluta
af Bökkum. Þessi tilraun miðar að því
að íbúarnir láti vita þegar þeir vilja láta
tæma sorptunnuna. Á handfang tunn-
anna hefur verið komið fyrir sérstökum
flipum. Þegar íbúar vilja að hreinsunar-
deildin tæmi tunnuna er flipanum
skotið upp og þá stendur „Losa takk".
Þarna er farið um vikulega.
Tíu daga hirða er í Selási, Árbæ og
Ártúnsholtí. Þá eru tunnur losaðar á 8-
12 daga fresti í stað vikulega.
Hjá þessu verður nú ekki komist eins
og staðan er. Hins vegar ber að geta
þess að með nýtingu timburs sem
kemur flokkað til Sorpu í lárnblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga þarf
verksmiðjan að flytja inn mun minna
magn af kolum og koksi frá útlöndum.
Mjög góður árangur er af þessu sam-
starfi lárnblendifélagsins og Sorpu
sem stuðlar að minnkun gróðurhúsa-
lofttegunda hjá félaginu. lafnframt hóf
Sorpa árið 1997 að safna hauggasi eða
metangasi frá urðunarstaðnum í Álfs-
nesi og nýta það á bíla og brenna.
Talið er að metan valdi allt að 20-24
sinnum meiri gróðurhúsaáhrifum en
koltvísýringurinn sem verður til við
brunann. Metanið er m.a. nýtt á sér-
staka bíla sem ganga fyrir þessu elds-
neyti. Með því að brenna metanið
komum við í veg fyrir að það fari út í
andrúmsloftið.
Stór hiuti heimilissorps, eða um 30-
40%, er af lífrænum uppruna. Verð-
ur þessum endurvinnslufarvegi bætt
við í náinni framtíð í flokkunarkerfi
Sorpu?
íbúum höfuðborgarsvæðisins gefst
kostur á að skila inn garðaúrgangi, af-
klippum af trjám og grasi. Þessi efni
fara til jarðgerðar í Álfsnesi og er unn-
in úr þeim molta. Þó nokkuð margir
íbúar landsins eru farnir að stunda
eigin heimajarðgerð í þar til gerðum
ílátum eða grafa holur í garðinum hjá
sér og vinna þannig sína eigin moltu
eða jarðvegsbæti. Sumir hafa kvarnir í
vaskinum heima sem mylja lífrænan
úrgang þannig að hann endar úti í sjó.
f skýrslu Sorpu „Vinnsla lífræns eld-
húsúrgangs - nokkrar aðferðir og
kostnaður" er fjallað um hinar ýmsu
aðferðir við vinnslu lífræns eldhúsúr-
gangs. Verið er að skoða leiðir og setja
upp kostnaðaráætlanir hvað þetta
varðar. Það þarf að finna hvaða leið er
hagkvæmust.
Hvað á urðunarstaðurinn í Álfsnesi
langa lífdaga framundan og hvað
verður þegar ekki verður unnt að
urða þar áfram?
Urðunarstaðurinn í Álfsnesi dugar
a.m.k. þrjátíu ár til viðbótar sé litið til
magns úrgangs sem berst Sorpu og
svæðis sem er til umráða. Hins vegar
liggur ekki ljóst fyrir hvort borgaryfir-
völd nýti þetta land sem bygginga-
svæði fyrir þann tfma. Því er líklegt að
Sorpa þurfi að flytja reksturinn annað
vegna fyrirhugaðra byggingafram-
kvæmda. Hvert haldið verður er enn
óráðið.
Markmiðið er
að minnka
kostnað
borgarbúa
Sigríður Ólafsdóttir rekstrar-
fulltrúi Hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar
Hvernig hefur tilraunin með nýjar
leiðir í sorphirðu gengið?
Niðurstöður eru mjög mismunandi og
í sjálfu sér eru þær ekki nægilega
marktækar eftir veturinn. Öll erum við
himinglöð yfir góðum vetri hér á höf-
uðborgarsvæðinu en þetta milda veð-
urfar leiddi til þess að lítið reyndi á
tilraunirnar. Það má allt eins álykta að
niðurstöður hefðu orðið allt aðrar ef
meira hefði verið um ófærð og fimb-
ulkulda. Við hjá Hreinsunardeildinni
hefðum gjarnan viljað láta á það
reyna en erum þó persónulega sátt
við gott veðurfar. Þetta setti strik í
reikninginn og ekki búið að taka á-
kvörðun um hvaða leið verður endan-
lega valin.
Hvert er markmiðið með nýjum inn-
söfnunaraðferðum í sorphirðu?
Aðal markmiðið er að minnka kostnað
hjá borgarbúum vegna sorphirðu og
svo auðvitað að gera íbúana meðvit-
aðri um að flokka og skila á endur-
vinnslustöðvar. í dag greiða borgarbú-
ar 6.600 krónur á ári fyrir hvert sorp-
(lát. Mín persónulega skoðun er sú að
það sé ekki nægilegur hvati á íbúana
að flokka betur að spara nokkra hund-
raðkalla á ári. Ég tel að núverandi
sorphirðugjald þyrfti að vera miklu
hærra svo að verulegur ávinningur
íbúa væri í að flokka sorp og fara með
á endurvinnslustöðvar eða nýta sér
möguleika eins og dagblaða- og
fernugáma sem staðsettir eru víðsveg-
ar um borgina. Ávinningur þess væri
þá verulegur sparnaður f lægri sorp-
hirðugjöldum.
Nú hafa fjölmargir íslendingar verið
búsettir erlendis þar sem neistinn
um að flokka lífrænt sorp frá ólíf-
rænu hefur kviknað. Eru einhverjar
tilraunir eða áætlanir á borði borg-
aryfirvalda sem gera ráð fyrir slíkri
flokkun?