Vera - 01.04.2001, Page 40
tMKH f-J&H I
Konur eru auglýstar á útlitinu sem
allt snýst um; þær eru svalar, heitar,
æsandi. Þær eru gellur á pinnahæl-
um, eiga að vera sætar og smart.
horfir ekki aðeins út í heim f þessu efni. Hér heima er
ýmsu ábótavant. „Mér finnst vera bakslag í sjálfu
þjóðlífinu. Það hefur ýmislegt áunnist inni á þingi og
konur eru komnar f ríkisstjórn. Við vitum að það eru
fleiri konur að mennta sig en nokkru sinni fyrr,
einmitt í karlagreinum, en okkur vantar samt konur f
tölvunarfræðina og í tæknigreinar. Konur geta þetta
allt saman. Ég hef heyrt að ein af orsökunum fyrir því
að konur fara ekki í tölvunarfræði sé sú að fallpró-
sentan á fyrsta ári er svo há. Konur eiga svo bágt með
að falla. Og mér er sagt það sé eins og þær séu
hræddar við fagið. Víst er það að fagið er nýjung.
Konur eru svolftið íhaldssamar í eðli sfnu. Þá á ég
ekki við stjórnmálalega, heldur að konur vilja stað-
festu. Þærtaka ekki jafn mikla áhættu og karlar."
Við ræðum frekar um jafnréttismálin og um þá
ímynd sem dregin er upp af konum í fjölmiðlum, í
tímaritum og auglýsingum. Konur eru auglýstar á út-
litinu sem allt snýst um; þær eru svalar, heitar,
æsandi. Þær eru gellur á pinnahælum, eiga að vera
sætar og smart. Vigdís hefur áhyggjur af þjóðfélags-
myndinni, það er eitthvað í gangi sem erfitt er að
festa hendur á. Viðhorf sem ekki eru áþreifanleg en
allir skynja. Vigdísi finnst engu líkara en sumt af því
sem barist var fyrir á árum áöur sé að tapast aftur.Við
veltum fyrirokkur Bríetunum, ungu stelpunum sem
þora að tala um femínisma og gáfu út Píkutorfuna fyr-
ir síðustu jól. í kringum þær virðist vera vakning en
þær hafa líka fengið að heyra að þær séu öfgastelpur
sem ekki er hlustandi á. „Það er alltaf svo þungt að
synda á móti straumnum," segir Vigdfs, „það er eins
og það séu forlög kvenna að þurfa að synda á móti
straumnum."
Njósnir og vatn
Þegar Vigdís lét af embætti forseta íslands höfðu
margir áhuga á að njóta starfskrafta hennar, þar á
meðal UNESCO, menningar- og vísindamálastofnun
Sameinuðu þjóðanna. Vigdís var beðin um að leggj-
ast á árar við að setja á stofn og stýra heimsráði varð-
andi siðferði í tækni og vísindum. Hún sló til og úr
varð átján manna ráð sem hún hefur starfað með í
þrjú ár, World Commission on Ethics of Scientific
Knowledge and Technology - COMEST.
„Þarna er fjallað um ferskt vatn og siðferðilega af-
stöðu til þess hvernig það er meðhöndlað, það er
fjallað um orku og siðferðilega afstöðu í þeim mál-
um. Þá þarf varla að minna á mengunina, gróður-
húsaáhrifin og það allt saman. Ráðið fjallar um upp-
lýsingatæknina sem er gríðarlega mikið mál, siðferði-
leg afstaða til þess sem t.d. er á internetinu. Burtséð
frá því sem þar er siðspillandi er ýmsu mikilvægu
hreinlega logið þar." Heimsráðið kemur saman um
það bil einu sinni á ári en starfar að öðru leyti f fjór-
um undirnefndum sem taka til vatns, orku, margmiðl-
unar og miðlunartækni og loks um geiminn. Þetta
síðastnefnda, geimurinn og allt sem þar er á flugi, er
ekki síst spennandi segir Vigdís. „Hvað er nú siðferði-
legt á seyði í geimnum spyr maður, en þessum ytri
víddum, þar sem gervihnettirnir eru, má líkja við haf-
ið. Þar er fullt af rusli, ósköpum öllum er fleygt þar út
en hver ber ábyrgð, m.a. þegar bútar úr geimverkfær-
um fara að detta niður? Sumt af öllum þessum tækj-
um er að liðast í sundur og geta faliið til jarðar - og
svo eru endalausir árekstrar gervihnatta. Þá er ekki
síður athyglisvert hve mikið fer fram af njósnum
þarna úti, það er enginn óhultur með sinn síma eða
nokkurn skapaðan hlut sem fer þarna í gegn, pen-
ingaviðskipti eða hvað sem er. Þær miklu njósnir sem
þarna eru stundaðar eru náttúrlega eins siðlausar og
frekast má vera. Það er ekki til neitt einkalíf hvað
varðar það sem fer um gervihnettina, „stóri bróðir" er
að horfa á þig."
Ég rifja upp nýlega frétt um að nú geti notendur
Gsm síma lækkað símreikninginn með því að taka á
móti auglýsingum sem taka mið af því hvar þeir eru
staddir. Þetta eru f raun skelfilegir möguleikar. Þessi
þróun verður varla stöðvuð en það þarf að setja
henni skýrar reglur. Vigdís segir að nefndin hennar
geti ekki sett neinar reglur. Vettvangur hennar er að
benda á staðreyndir og vekja til umhugsunar. „Hún
hefur látið frá sér skýrslur og bent á hvað er góð
hegðun á þeim sviðum sem hún fjallar um. Til dæmis
varðandi ferskt vatn. Eiga auðhringir að kaupa auð-
lindir þar sem ferskvatn er og selja öðrum? Selja hin-
um fátækari eða á ríkið eða samtök innfæddra að
reyna að annast dreifingu? Þetta eru afar verðmætar
auðlindir sem Iftið er til af. Vatn er gull. Þvf er spáð
að kveikjan að óeirðum og styrjöldum 21. aldarinnar
verði vatn. Við setjum semsagt saman yfirlýsingar og
bendum á hvað er góð hegðun, hvað er siðferðileg
hegðun."
40