Vera - 01.04.2001, Síða 46
Brynhildur H. Ómarsdóttir
Píkusögur
eikritið Píkusögur eftir Evu Ensler var frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu 29. apríl sl. Þartekur Sigrún
Edda Björnsdóttir að sér að leikstýra Halldóru Geir-
harðsdóttur, jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Sóleyju
Elíasdóttur í þessu verki sem vakið hefur gríðarlega
athygli í Bandaríkjunum og fætt af sér nýja hreyfingu
femínista þar í landi. Verkið Píkusögur, eða The Vag-
ina Monologues, samanstendur af einræðum sem
byggðar eru á viðtölum Ensler við um 200 konur um
pfkur þeirra og samband þeirra við þær. Fyrst var
verkið sett á svið í flutningi höfundar sjálfs árið 1996
en hefur síðan breiðst út um öll Bandaríkin. Verkið
hefur nú verið endurskrifað og útfært fyrir þrjár
leikkonur í stað einnar áður.
V-dagur
Pfkusögur hefur skapað nýja grasrótarhreyfingu
kvenna í Bandaríkjunum. Hreyfingin hefur eignað sér
14. febrúar, dag heilags Vaientínusar, og endurskírt
hann sem V-dag (enskur orðaleikur sem vfsar í D-dag
seinni heimsstyrjaldarinnar, daginn sem bandamenn
réðust í lokasókn gegn Þjóðverjum). V-dagur er al-
þjóðleg hreyfing kvenna sem hefur það að takmarki
að stöðva ofbeldi gegn konum. Á V-degi eru settar
upp góðgerðarsýningar og fer allur ágóði af þeim í
sérstakan sjóð til hjálpar baráttunni gegn nauðgun-
um, sifjaspelli, heimilisofbeldi og umskurði kvenna.
Enn sem komið er er Ensler drifkrafturinn í þessari
fjáröflun og byggjast góðgerðarsamkomurnar mikið á
verkum hennar. Skipulag V-dags hreyfingarinnar er
hressilega frjálslegt og minnir um margt á vinnufyrir-
komulag rauðsokkanna hér fyrr á árum. Ensler leyfir
þeim leikkonum sem hafa verið þátttakendur í hreyf-
ingunni frá upphafi að taka þátt í stærstu góðgerðar-
Hún var flottari en nokkurt gil eða gljúfur,
eldforn og tigin. Hún bjó yfir sakleysi og
ferskleika fagurra blómagarða. Hún var
fyndin, drepfyndin. Kom mér til að hlæja.
Hún gat farið í feluleik, opnað og lokað.
Hún var munnur. Hún var dögun. Og svo
var mér allt í einu Ijóst að hún var ég, pík-
an ó mér, hún var sú sem ég var. Hún var
ekki einhver hlutur. Hún var inni í mér.
Píkusögur eftir Evh Ensler
samkomunum en dregur nöfn annarra þátttakenda
upp úr hatti.
Árið 1998 var svona góðgerðarsamkoma í New
York, 1999 f London og á þessu ári voru ýmsar sam-
komur um allan heim. Ýmsar stórstjörnur hafa tekið
þátt í þessum samkomum ásamt Ensler. Cate
Blanchett, Glenn Close, Claire Danes, Calista Flock-
hart, Jane Fonda, Whoopi Goldberg, Melanie Griffith,
Rosie Perez, Alanis Morisette, Winona Ryder, Susan
Sarandon, Marisa Tomei, Lily Tomlin og Kate Winslett
hafa allar Ijáð þessari baráttu lið.
Eru Píkusögur hatursáróður gegn körlum?
Ekki eru allir jafn hrifnir af Píkusögum. í pistlum sfnum
á veftfmaritinu Salon.com afskrifaði Camille Paglia,
einn áhrifamesti og umdeildasti femínisti síðustu ára,
verkið sem vitfirrtan reiðilestur Enslers gegn körlum.
Ensler svarar þessari gagnrýni í sama veftímariti.
Hún segist oft hafa heyrt þá skoðun að í verkinu sé
talað gegn karlmönnum. Píkusögur fjallar mikið um
ofbeldi gegn konum en ekki er hægt að tala um slíkt
ofbeldi án þess að minnast á þátt karla í því. Leikritið
hvetur konur og karla til að berjast gegn ofbeldi og er
þessi friðarboðskapur að mati Enslers alls ekki karl-
hatur. Síðan bendir hún á að verkið fjalli í rauninni
ekki um karlmenn heldur um konur. Hún spyr sjálfa
sig hvers vegna verk sem fjallar bara um konur og að-
stæður þeirra sé ósjálfrátt talið vera aðför að körlum.
Ensler bendir hérna á áhugaverða staðreynd. Píku-
sögur segir sögur um konur og um kynreynslu þeirra.
Karlmenn koma ekki fyrir í leikritinu heldur er allri at-
hygli beint að reynsluheimi kvenna. Sjaldgæft er að
finna skáldverk þar sem karlmenn hafa eins litlu hlut-
verki að gegna og f Píkusögum. Og þar sem þessi fjar-
46