Vera - 01.04.2001, Page 49
Vildi hafa helminai
hærri laun
Nafn: Guðný Gústafsdóttir
Aldur: 38 ára
Menntun: Bókmenntafræði, rekstrar- og viðskipta-
fræði.
Starf: Deildarstjóri Hvataferðadeildar.
Vinnustaður: Ferðaskrifstofan Atlantik.
Starfsaldur: u.þ.b. 10 ár samtals.
Laun: Trúnaðarmál.
Fjölskylduhagir: Fráskilin, tvö börn.
Vinnutími: Teygjanlegur eftir verkefnum.
Ertu ánægð með launin? Nei.
Hvað finnst þér að þú ættir að fá í laun? Helmingi
hærri.
Hvar sérðu þig fyrir þér í framtíðinni á vinnumark-
aði? Óviss.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Rithöfundur.
Starfsábyrgð og skyldur:
Ber ábyrgð á starfsemi deildarinnar.
Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið?
Fjölbreytnin - lifandi starf.
Hvað finnst þér leiðinlegast?
Mikil vinna á sumrin.
Réttindi og fríðindi sem fylgja starfinu: Engin rétt-
indi, en fríðindi eru ódýrir miðar tii útlanda utan
annatíma.
Veitti ekki af 120.000
til 130.000 krónum
Nafn: Guðrún Ágústa Sæmundsdóttir
Aldur: 61 árs
Menntun: Gagnfræðapróf.
Starf: Félagsleg heimaþjónusta á vegum Félagsþjón-
ustunnar í Reykjavík.
Vinnustaður: Félagsmiðstöðin Bólstaðarhlíð 43.
Starfsaldur: Sjö og hálft ár. Vann áður við af-
greiðslu- og skrifstofustörf.
Laun: Grunnlaunin eru 90.347, auk 15.000 kr. í fæðis-
og flutningaálag. Fékk 77.716 kr. útborgaðar 1. apríl,
þegar búið var að draga frá skatt o.fl., m.a. um 9.000
kr. í eignaskatt. Nýlegir kjarasamningar munu hækka
launin eitthvað.
Fjölskylduhagir: Fráskilin, barnlaus.
Vinnutími: Frá 8.45 til 17.
49