Vera - 01.04.2001, Qupperneq 53
Réftur lífsstíll og góðar neysluvenjur
draga úr áhættuþóttum beinþynningar
1. Næring. Næring skiptir máli
fyrir heilbrigði beina á öllum aldri.
Þess vegna er heilbrigt mataræði
mikilvægt. Ýmsar kalkrfkar fæðu-
tegundir, svo sem mjólk og mjólk-
urvörur, innihalda þau næringar-
efni sem eru hvað mikilvægust fyr-
ir beinin. D-vítamín er nauðsynlegt
til að kalkið nýtist beinunum. D-
vítamín fáum við einkum úr lýsi.
2. Líkamsþyngd/undir-
pyngd. Konur sem ekki hafa náð
að byggja upp nægilega mikinn
beinmassa eru í meiri hættu á að
fá beinþynningu svo og smábein-
óttar konur. Farsælast er að byggja
upp beinforða sinn í uppvextinum,
allt til þrítugs.
3. Hreyfing. Sýnt þykir að hæfi-
leg hreyfing hefur góð áhrif á öll-
um aldri, ekki síst meðal eldra
fólks. Öll líkamshreyfing og þjálfun
virðist vera til góðs en göngur og
hreyfing sem felur í sér þunga-
burð, er áhrifaríkast í baráttunni
við beinþynninguna. Mikilvægt er
að þjálfunin sé reglubundin, a.m.k.
þrisvar sinnum f viku, 15-30 mín-
útur í senn. Öll hreyfing er betri en
engin. Afar mikilvægt í forvarnar-
starfi er að forðast byltur. Líkams-
hreyfing og þjálfun styrkir og þéttir
bein, bætir jafnvægi og dregur
þannig úr byltum. Einstaklingur
sem hefur þegar hlotið beinbrot
eða samfall á hryggjarlið vegna
beinþynningar ætti þó ekki að gera
æfingar nema í samráði við lækni
og sjúkraþjálfara því mikilvægt er
að æfingarnar séu rétt gerðar og
án álags á þá líkamsstaði sem eru
veilir.
4. Reykingar. Reykingar stuðla
að beinþynningu.
5. Afengi. Áfengisneysla í óhófi
eykur hættu á beinþynningu.
O
Beinvernd landssamtök
áhugafólks um beinþynningu
var stofnað árið 1997. Beinvernd er aðili
að alþjóðlegu samtökunum Internati-
onal Osteoporosis Foundation. Stjórn
Beinverndar skipa sjö manns og er
Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formað-
ur félagsins. Markmið Beinverndar eru
fjögur:
Að vekja athygli almennings og
stjórnvalda á beinþynningu sem
heilsufarsvandamáli.
Að standa að fræðslu meðal al-
mennings og heilbrigðisstétta á þeirri
þekkingu sem á hverjum tíma er fyrir
hendi um beinþynningu og varnir gegn
henni.
Að stuðla að auknum rannsóknum
á eðli, orsökum og afleiðingum bein-
þynningar og forvörnum gegn henni.
Að eiga samskipti við erlend félög á
svipuðum grundvelli.
"\
Erlieilsan
eins
góo
og þú heldur?
Einfold leið til að fylgjast með heilsunni
Lyfja býöur upp á enn frekari þjónustu viö mælingar og ráögjöf
hvaö við kemur heilsu. Nú er hægt að fá mælingar á blóðfitu og
blóösykri í Lyfju Lágmúla, Laugavegi, Hamraborg, Smáratorgi og
Setbergi. Við mælingar eru notuð nákvæm tæki frá Cholestech í
Bandaríkjunum.
I einni og sömu mælingu er hægt aö athuga kólesteról, þríglýseríð
og einnig blóösykur. Tæki þessi veröa undir ströngu gæöaeftirliti
og er hér um að ræða nákvæmari og áreiðanlegri mælingar en
áður hefur verið boðið upp á I apótekum. Einnig er hægt að fá
mælingar á beinþéttni i Lyfju Laugavegi og Lyfju Smáratorgi og í
öllum verslunum Lyfju er hægt að fá mælingar á blóðþrýstingi.
Boöið er upp á eftirfarandi mælingar:
blóðfita og sykur í blóði
í einni og sömu mælingu
iöllum verslunum Lyfju
nema Garöatorgi
blóösykur
iöllum verslunum Lyfju
blóðþrýstingur
i öllum verslunum Lyfju
beinþéttnimælingar
i Lyfju Laugavegi mán. - miö.
i Lyfju Smáratorgi fim. - fös.
Lyfja Lágmúla
og Smáratorgi er
opin alla daga frá
8-24
Lyfja
Lágmúla, sími: 533 2308
Laugavegi, simi: 552 4045
Smáratorgi, simi: 564 5600
Garðatorgi, simi: 565 1321
Setbergi, simi: 555 2306
LYFJA
- fyrir heilsuna