Vera - 01.04.2001, Page 54
KYNNING
Sigríður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ýmsar jurtir, soja og
fjölómettaðar olíur geta
dregið úr óþægindum á
breytingskeiðinu
Jurta-östrogen í sojabaunum
Konur þurfa sérstaklega að huga
að kalkbúskap líkamans. Þegar
þær fara á breytingaskeiðið veldur
hormónaskortur því að kalk lekur
frekar úr beinunum og þau verða
því brothættari. Þetta getur leitt til
beinþynningar. Foreldrar ættu þvf
að huga vel að kalkneyslu barna á
uppvaxtarárunum og þá sérstak-
lega dætra sinna. Á þeim tíma eru
beinin að stækka og beingerast.
Athyglisvert er að skoða niður-
stöður rannsókna á asískum kon-
um. Bein þeirra eru ólík beinum
vestrænna kvenna og beinþynning
er varla þekkt hjá konum í þessum
heimshluta. Helsta ástæða þessa
er talin tengjast sojafæðu sem þar
er neytt í ríkum mæli. Sojabaunir
innihalda mikilvæg næringarefni
sem nýtast líkama okkar vel. Þær
innihalda t.a.m. prótein og sérstök
isoflavon-efni en það eru smáefni
sem að uppbyggingu eru mjög lík
kvenhormóninu östrogeni og er
gjarnan kallað phyto-östrogen
(jurta-östrogen). Þessi efni binda
kalkið í líkamanum og það helst
betur f beinunum. Það er því vel
þess virði að tileinka sér soja-
baunafæði og prófa sig smátt og
smátt áfram með það. Einnig eru
til náttúruleg fæðubótaefni í hylkj-
um sem innihalda þessi efni.
Breytingaskeiðið og jurtalyf
Konur eru orðnar mjög meðvitaðar
um líkama sinn og heilsu. Fjöldi
þeirra kvenna vex sem kæra sig
ekki um að taka hormónalyf vegna
óþæginda á breytingaskeiðinu.
Hormónameðferð leggst illa í
sumar konur og enn aðrar geta alls
ekki tekið þessi hormón vegna ým-
issa ástæðna. Rannsóknir sýna að
u.þ.b. 50 prósent kvenna finna fyrir
óþægindum á breytingaskeiðinu
en þau eru mismunandi eftir ein-
staklingum. Þvf ber ekki að lfta svo
á að konur á þessum aldri stríði
allar við eitt allsherjar vandamál.
Það helsta sem konur kvarta und-
an eru svefntruflanir og svitaköst.
Rannsóknir á áhrifum phyto-ös-
trogena sem finnst í soja sýna að
þau hafa mjög góð áhrif á hvort
tveggja. Ýmsar jurtir innihalda
mikið magn af phyto-östrogenum
eða jurta-östrogenum. Kryddjurtin
Salvía er t.a.m. rík af þeim og hef-
ur hún einkum reynst vel við svita-
köstum og verkjum tengdum
blæðingum. Einnig má nefna Al-
falfa jurtina sem er mjög stein-
efna- og járnrík. Þessi jurt inni-
heldur m.a. efnið coumestrol sem
er nokkurs konar jurta-östrogen.
Fjölómettaðar jurtaolíur, eins og
Kvöldvorrósarolía og Hjólkrónuol-
ía, innihalda einnig hormónlík efni
sem nýtast á fjölþættan máta.
Kvöldvorrósarolían ereinkum
þekkt fyrir að draga úr spennu í
brjóstum og kviði. Ein helsta virkni
jurtaolfa er þó að styrkja
frumuhimnur líkamans sem er afar
mikilvægt í sambandi við heilsu
okkar almennt. í öllu grænmeti og
ávöxtum eru þessi hollu smáefni
sem eru okkur svo mikilvæg. Það
er því ekki að óþörfu að Manneld-
isráð hvetur okkur til að borða
„fimm á dag", þ.e. fimm grænmet-
is- og ávaxtaskammta.
Grænt te herðir
á efnaskiptunum
Með aldrinum hægir á efnaskipt-
um líkamans, sem þýðir að við
þurfum að borða minna en áður.
Það reynist konum misvel að
höndla þá breytingu. Samkvæmt
niðurstöðum rannsókna þyngjast
konur á Vesturlöndum um 6 kíló
að meðaltali á breytingaskeiðinu.
Aukin vökvasöfnun á sér oft stað í
líkamanum og er það m.a. talin
vera ein ástæða fyrir skapsveiflum
sem sumar konur finna fyrir. Kon-
urnar í Asíu finna lítið fyrir þessum
óþægindum. Þær drekka mikið
Grænt te. Grænt te er koffeinríkur
drykkur en koffein herðir á efna-
skiptum. Þessi drykkur er jafnframt
vökvalosandi þannig að auðvelt er
að losa sig við uppsafnaðan vökva
með því að drekka 2 - 4 bolla af
Grænu tei á dag. Að öðru ieyti er
Grænt te afskaplega hollur drykkur
sem inniheldur ógrynni af isofla-
von efnum, sem eru andoxunarefni
og styrkja heilsu okkar. Franska
lyfjafyrirtækið Arkopharma fram-
leiðir þurrfrystar jurtir í hylkjum
sem er ein vandaðasta vinnsluað-
ferðin í sambandi við varðveislu
lífrænna jurtaefna. Þessar jurtir
fást í apótekum á íslandi.