Vera - 01.04.2001, Page 59
Beth Grothe Nielsen lagaprófessor
aði svokallað heilunarferli (healing
process). Föðurnum er gerð grein
fyrir öllu þvf hugarangri sem hann
veldur en hann verður sjálfur að
lækna sig því enginn getur gert
það fyrir hann. Allir meðlimir
hópsins leggjast á eitt að ræða
vandamálið opinskátt fram og til
baka, oft tímum saman í marga
daga eða vikur, sagði Beth. Hún
sagði að þessi aðferð reyndist ár-
angursrík á þann hátt að faðirinn
þurfi að taka afleiðingum gjörða
sinna, standa andspænis þvf sem
hann hefði gert án afneitunar, þar
sem óttinn við fangelsisvist og út-
skúfun er ekki til staðar. Að ferlinu
loknu fengi barnið það sem það
þráði mest, þ.e. að kynferðislega
ofbeldinu lyki.
Aðferðin verið reynd í
Kanada
Beth sagðist gera sér fulla grein
fyrir því að ekki sé hægt að yfirfæra
aðferðir indjána í Kanada yfir á
samfélög eins og Danmörku og ís-
land enda um gjörólíka menningu
og stærð samfélaga að ræða. Hún
benti á að þrátt fyrir það væri það
okkur hollt að læra af öðrum hugs-
unarhætti, sérstaklega þar sem
okkar kerfi er eins vanmáttugt og
lítið mannbætandi og raun ber
vitni. Hún sagðist óska þess að
hægt væri að koma upp hliðstæðu
kerfi og því sem indjánarnir kalla
heilunarferli útfrá okkar eigin
menningu. Þetta hafi þegar verið
reynt á ýmsum svæðum í Kanada
af fulltrúum hins ráðandi lagakerf-
is sem ákváðu að fara að fordæmi
indjána. Hún hafði sjálf orðið vitni
að því þegar tveir ungir strákar
sem kveikt höfðu í og hefðu undir
venjulegum kringumstæðum verið
dregnir fyrir rétt, voru þess í stað
beðnir um að sitja í hring ásamt
foreldrum sínum, kennara, fulltrú-
um félagsmála, þeirra sem áttu
húsið sem kveikt var f o.fl. Þau
ræddu svo málið sfn á milli án
þess að strákunum væri ógnað
með betrunarvist á unglingaheim-
ili og höfðu því enga ástæðu að
ljúga eða fegra sannleikann. Hug-
myndin sem lá þarna að baki var
að koma í veg fyrir þann vítahring
sem gæti myndast ef strákarnir
yrðu stimplaðir brennuvargar í
stað hrakfallabáika sem hefðu gert
hræðileg mistök. Fulltrúar laga-
kerfisins sem stóðu fyrir þessari
nýbreytni sögðu að oftast hefði
það mjög neikvæðar afleiðingar að
loka unga afbrotamenn inni þar
sem það ýtti oft á tíðum undir
áframhaldandi glæpaiðju. Beth
sagði að í þessu tilfelli hefðu
sökudólgarnir brotnað niður,
beðist afsökunar og verið tilbúnir
að bæta fyrir gjörðir sínar.
Að hugsa eftir nýjum leiðum
Beth sagði alls ekki óhugsandi að
hægt væri að taka sambærilegar
aðferðir tii fyrirmyndar í sifja-
spellamálum bæði í Danmörku og
á íslandi. í það minnsta væri vel
þess virði að skoða þær gaumgæfi-
lega en til þess þyrfti auðvitað um-
fangsmikla, heildræna endurskoð-
un á málaflokknum og jafnvel á
lagakerfinu í heild. Hún sagðist
ekki hafa útfært hvernig hinu nýja
og árangursríkara kerfi ætti að vera
háttað en að nauðsynlegt væri í
það minnsta að minnka áhersluna
á refsingu. Til þess að hægt sé að
hjálpa sem flestum fórnarlömbum
og ofbeldismönnum þurfa málin
að koma upp á yfirþorðið. Þá gæti
einhverskonar heilunarferill hafist
að hætti indjánanna þar sem safn-
ast myndu saman barnið, faðirinn,
aðrir fjölskyldumeðlimir, fulltrúar
barnaverndaryfirvalda, kennari,
ættingjar og þau sem vildu hjálpa.
Takmarkið yrði að veita barninu
skilning og stuðning til að vinna úr
kvölum sínum og til að byggja upp
brotna sjálfsmynd sína og gera
Þau hugsa ekki um manneskju
sem glæpamann heldur sem
einstakling sem á við vanda-
mál að stríða. Ef sifjaspellamál
koma upp er faðirinn ekki
flokkaður og brennimerktur
sem barnaníðingur heldur sem
einstaklingur sem veldur miklu
ójafnvægi og vanlíðan í fjöl-
skyldu sinni.
föðurnum auðveldara að játa verkn-
aðinn og fá faglega aðstoð.
Ég sagði Beth að mér fyndist ríkja
mikil óánægja á íslandi á því hvern-
ig réttarkerfið meðhöndli sifja-
spellamál almennt, bæði vegna
þess hversu fá mál ná inn til dóm-
stóla og þeirra vægu dóma sem þeir
sem verða uppvísir um kynferðisof-
beldi gegn börnum fá. Mörgum
finnist því réttarkerfið ekki senda
þau skilaboð að slíkur verknaður sé
með öllu ólöglegur þar sem svo erf-
iðlega gengur að þjóna réttlætinu f
slíkum málum. Útfrá þessu getur
það reynst okkur, sem látum okkur
þessi mál varða, erfitt að hugsa eftir
nýjum og framúrstefnulegum leið-
um um að hjálpa slíkum mönnum
þar sem aðeins fá mál koma upp á
yfirborðið, færri ná inn í réttarkerfið
og enn færri fá dóm fyrir brot sitt.
Auk þess sem þetta litla brot sem
kemst í gegnum hina lagalegu síu
fær skammarlega væga fangelsis-
dóma, meira að segja mun vægari
en lagabókstafurinn gefur mögu-
leika á. Það breytir þó ekki þeirri
staðreynd að kerfið í óbreyttri mynd
hefur hvorki bætandi áhrif á barnið,
gerandann né samfélagið í heild og
því brýnt að leggja við hlustir þegar
fólk eins og Beth Grothe Nielsen
hvetur til að hugsað sé eftir
nýjum leiðum. 11
Nánari upplýsingar um Beth og verk hennar fást á
heimasíðu hennará www.jura.au.dk
59