Vera


Vera - 01.04.2001, Qupperneq 60

Vera - 01.04.2001, Qupperneq 60
Þorgerður Þorvaldsdóttir Mynd: Gréta Ana Isorena Atlason flutti frá Filippseyjum til \s- lands fyrir rúmum fjórum árum. Hún er nú gift íslenskum manni og þau eiga tveggja og hálfs árs dótlur. Ana hefur verið virk í baráttunni fyrir réttind- um innflytjenda á íslandi og starfað með samtökunum Human rigfits organization for immigrants and tfieir families in lceland Hún vakti athygli fyrir skeleggt ávarp um rasisma á íslandi sem hún flutti á A\- þjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna gegn kynþátta- hyggju 21. mars sl. VERA ræddi við hana um mannrétt- indi og reynslu hennar afþvíað vera „nýbúi" á íslandi. Við byrjuðum á að ræða um takmarkanir á atvinnu- leyfum útlendinga og Önu var mikið niðri fyrir. „Þetta var þannig að atvinnurétturinn var bundinn við atvinnurekandann. Ef ég vildi vinna aukavinnu þurfti atvinnurekandinn að sækja um nýtt atvinnu- leyfi, sömuieiðis ef ég vildi skipta um vinnu. Ég og maðurinn minn vorum fyrst í sambúð en giftum okkur fljótlega. En hlutirnir breyttust ekki við það. Fólk fær ekki „græna kortið" eða atvinnuleyfi fyrr en eftir þrjú ár á íslandi. Alveg sama þótt maður sé giftur íslend- ingi. Maðurinn minn sagði mér hinsvegar að ef við flytt- umst til Danmerkur þá fengi ég fullt atvinnuleyfi um leið. En ég mátti ekki vinna á íslandi án tilskilins at- vinnuleyfis. Og aukavinna er óheimil samkvæmt lög- um um atvinnuréttindi útlendinga. Atvinnuleyfi eru helst ekki gefin út fyrir 50% vinnu, aðeins fyrir fullt starf. Þessum lögum hefur sem betur fer verið breytt og það er fyrst og fremst fyrir tilstuðlan samtakanna okkar. Núgildandi lög eru þannig að við það að ganga í hjónaband með íslendingi verður erlendur maki undanþeginn lögum um atvinnuleyfi útiendinga, án þess þó að fá sjálfstætt atvinnuleyfi. Hann eða hún má því vinna á meðan, og aðeins á meðan, viðkom- andi er í hjónabandi með íslenskum ríkisborgara. Erfitt að koma inn á íslenskan vinnumarkað Eitt enn sem sýnir vel mismunun sem útlendingar sem eru á tímabundnu dvalar- og atvinnuleyfi verða fyrir. Það er að þeir áttu ekki rétt á atvinnuleysisbótum í sjó- mannaverkfallinu þótt þeir greiði af launum sínum öll gjöld, m.a. í atvinnuleysistryggingasjóð. Þetta réttinda- leysi útlendinga kom mér geysilega á óvart. ísland, vagga lýðræðis, með elsta þing í heimi. Maður skyldi ætla að það hefði eitthvað að segja. En, nei, það eru ekki til nein heildarlög um innflytjendur. Það er fyrst núna sem slfk lög eru f smíðum. Reynsla mín er sú að það er almennt mjög erfitt að koma inn á íslenskan vinnumarkað, ég veit ekki - kannski af því að ég er með kolsvart hár. Til að byrja með segir enginn neitt, það er bara horft einkennilega á mann. Og maður finnur fyrir því. Það er ekki fyrr en ég er búin að sanna að ég vinni vel sem þetta fer að skána. Það er líka erfitt að vera metin að verðleikum hér. Sjálf vinn ég á leikskóla en áður en ég fékk þá vinnu þurfti ég að berjast við kerfið. Ég sótti ekki um á leik- skóla fyrr en ég var búin að læra svolítið í íslensku. Ég tók íslenskunámskeið í Háskólanum, svo vann ég í heimilishjálp og lærði helling af gamla fólkinu. Ég er með BA próf í stjórnmálafræði að heiman og var búin með eitt ár í mastersnámi, svo hafði ég tekið uppeld- isnámskeið hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla ís- lands. Ég vildi vinna við eitthvað sem tengdist upp- eldi og menntun og snéri mér því til menntamála- ráðuneytisins. Þeir sögðu að ég þyrfti ekkert námsmat svo ég fór á leikskóla og sótti um en þá spurði leik- skólastjórinn: „Varstu búin að fara í menntamálaráðu- neytið?" Ég settist því niður og skrifaði ráðuneytinu bréf. Og síðan ítrekunarbréf. Og loksins fékk ég svar þess efnis að ég gæti unnið á leikskóla svo ég sótti um starf og var ráðin. Ég hef eitthvað örlítið hærri laun en krakkarnir sem eru búin með stúdentspróf vegna þess að ég er háskólamenntuð. 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.