Vera - 01.06.2003, Síða 3

Vera - 01.06.2003, Síða 3
Opinbert einkalíf á netinu + Kraftmikill femínismi sem ólgað hefur í hópastarfi Femínistafélagsins og komið fram í aðgerðum eins og mótmælum gegn feg- urðarsamkeppnum, sðgusýningu um fyrri mótmæli, fundi um karlmennsku og femínisma, aðgerðunum ..rnálum bæinn bleikan" 19. júní og merkjasölu fyrir utan nektardansstaðinn Goldfinger. Lögreglan í Ósló fyrir að gera áhlaup til að uppræta ólögmætt klám á myndböndum og DVD-diskum í 14 búðum og mynd- bandaleigum þar í borg. Alls var lagt hald á 30.000 myndir [ aðgerðinni sem 50 lögreglumenn tóku þátt í. Gott fordæmi fyrir íslenska lögreglumenn. Fækkun kvenna á Alþingi úr 23 í 19, eða úr 36% þingmanna niður í 29%. Af átján nýjum þingmönnum eru aðeins þrjár konur, eða 17% Það er ekki góð vísbending um það hvernig þjóðin vill hafa þingmannalið sitt í framtíðinni. Vændi á Ólympíuleikum sem virðist regla fremur en undantekning. Borgaryfir- völd í Aþenu undirbúa nú fjölgun vændishúsa úr 200 í 230 og ætla einnig að auðvelda kynlífsþjónustu á fleiri stöðum, svo sem hótelum og nuddstofum. Þetta kom fram í máli Mata Kaloudaki frá Grikklandi á nýlegri ráð- stefnu evrópskra samtaka gegn mansali sem haldin var bér á landi. Úrelt kynjaviðhorf sem var staðfest (nýlegri rannsókn meðal 10. bekkinga. Bæði strákum og stelpum fannst strákarnir klárari þó Þeir fengju lægri einkunnir því þeir væru fyndnari og skemmtilegri. Ástæða þess að stelpur fá hærri einkunn- ar var hins vegar ekki talin sú að þær væru klárar - þær eru bara duglegri að læra! Dagbækur eru ekki lengur vandlega geymdar ofan ( skúffu, jafnvel læstar með litlum smekklás og í þær skrifuð innstu leyndarmál eigandans - þær eru komnar á netið og aðgengilegar hverjum sem lesa vill. Þessar nútímalegu dagbækur nefnast blogg sem er stytting á enska orðinu weblog eða netdagbók. Bloggið hefur náð mikilli út- breiðslu hér á landi og margt fólk tjáir sig hvert fyrir annað og les hvert annars blogg. Þetta er athyglisvert menning- arfyrirbæri og til marks um það má nefna að í haust býður Háskóli Islands upp á námskeið um blogg í tengslum við bókmenntafræði. Lesa má ýmsa menningarstrauma út úr því mikla tjáningarflóði sem getur að líta á netinu og þar er hægt að rannsaka marga þætti. Dagbækur hafa alltaf verið taldar mikilsverðar heimildir um samtíma sinn og v(st er að sagnfræðingar framtíðarinnar munu hafa úr nógu að moða vilji þeirgreina líf og líðan fólks í byrjun 21. aldarinnar. Þemaefni þessa blaðs er blogg. Þar skoðum við kvennablogg og karlablogg, unglingablogg, tengsl bloggs við dagbækur og sjálfsævisögur og bloggímynd- ina - hvernig bloggið getur gert fólk frægt um stund og hvernig tölvan hylur hið sýnilega og getur þannig búið til nýja ímynd af þeim sem situr við skjáinn og tjáir sig með orðum. Ekki er langt síðan tölvurnar komu fram á sjónarsviðið og breyttu lífi og vinnulagi notenda sinna. Á tímabili var óttast að þær myndu minnka lestrar- og skriftarhæfileika fólks en bloggið er dæmi um hið gagnstæða. Segja má að duglegustu bloggararnir „hugsi með fingrunum" - tján- ingin streymir látlaust frá þeim og ekki virðist skorta að lesið sé. Annað nýtt fyrirbæri á netinu kallast MSN sem er nafn á forriti þar sem fólk sem er samtímis á netinu „talar saman". Notkun þess er frábær leið til að minnka fjarlægð- ir á milli fólks og á sama hátt og bloggið þjálfar það skrif- lega tjáningar- og lestrarfærni notenda þó ekki sé æskilegt að slík tölvusamskipti komi í staðinn fyrir venjuleg sam- skipti. Fólk mætti t.d. oftar taka upp síma eða hittast í stað þess að láta öll samskipti sín fara fram í gegnum tölvupóst. Annað meginefni blaðsins eru úrslit alþingiskosning- anna sem urðu jafnréttissinnum mikil vonbrigði. Nú minnkaði hlutfall kvenna í fyrsta sinn eftir jafna og stíg- andi aukningu undanfarnar kosningar, eða allt frá því að þrjár þingkonur Kvennalistans juku hlutfallið hressilega í þingkosningum 1983. Ein þeirra var einmitt Guðrún Agn- arsdóttir sem er (aðalviðtali þessa blaðs. Femínísk meðvit- und hennar mótaðist af annarri bylgju femínismans en hún tekur líka þátt í þriðju bylgjunni með því að sitja í ráði Femínistafélags (slands. Það eru góð og merk tíðindi hvernig tekist hefur að tengja saman eldri og yngri bar- áttukonur fyrir kvenréttindum hér á landi með starfi Femínistafélags íslands. Nýliðinn 19. júní var gott dæmi um það. Þá tóku ungar og gamlar baráttukonur höndum saman og „máluðu bæinn bleikan" svo eftir var tekið. Húrra fýrir þeim frábæra krafti sem býr í femínistum af báðum kynjum á Islandi í dag!

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.