Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 72
/ FRÁ JAFNRÉTTISSTOFU
AND GtNDER ÍQUALITY
IN THC NORDIC COUNTRlts
Fjölmenning og jafnrátti kynjanna á Norðurlöndum
- kerfisbundið ójafnvægi, hinn norræni karl viðmiðið
Valgerður H.
Bjarnadóttir
»Dagana 19.- 20. maí sl. söfnuðust um 400 konur og nokkrir karlar saman til
norrænnar ráðstefnu undir yfirskriftinni Integration och Jamstalldhet i Norden,
íMálmey, Svíþjóð. Þátttakendur frá íslandi voru 19, þaraf 11 konurogeinn karl
af erlendum uppruna. Þau voru valin af íslensku undirbúningsnefndinni, þ.e. Elsu
Arnardóttur Fjölmenningarsetrinu, Valgerði H. Bjarnadóttur Jafnréttisstofu og
Andreu Sompit Siengboom sem var fulltrúi innflytjenda á íslandi í undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar. Litið var á þátttöku íslands í þessari ráðstefnu sem eins
konar undirbúning fyrir það verkefni að huga að og styrkja stöðu erlendra kvenna
á Islandi en það er löngu tímabært.
*
Þátttakendur komu víða að af landinu, frá Vestfjörðum,
Eyjaíjarðarsvæðinu og höfuðborgarsvæðinu, fulltrúar
innflytjenda af ýmsum uppruna, auk fulltrúa jafnréttis-
mála og útlendingamála. Hist var á undirbúningsfund-
um fyrir förina og m.a. ákveðið að útbúa lítið kynning-
arrit um sendinefndina og stöðu innflytjenda á Islandi.
í matsal ráðstefnunnar var komið fyrir kynningarbás-
um þar sem þátttakendur gátu kynnt starfsemi sína og
þar kynnti sendinefndin starfsemi Alþjóðahúss, Fjöl-
menningarseturs, Alþjóðastofu, Rauða krossins, Efling-
ar, Jafnréttisstofu og fleiri.
Samtök innflytjendakvenna í Málmey höfðu veg og
vanda að undirbúningi ráðstefnunnar, með Jelicu
Ugricic í forsvari. Jelica, sem er frá fyrrum Júgóslavíu,
stofnaði þessi samtök fyrir 30 árum og hefur unnið þar
mikið og gott starf. Samtökin eru öflug og eiga húsnæði
þar sem hópar kvenna hittast reglulega yfir spjalli og
veitingum. Fyrsta kvöldið var ráðstefnugestum boðið
þangað í ijúffengan kvöldverð. Að öllu jöfnu er körlum
meinaður aðgangur að húsakynnum þeirra þar sem
sum trúarbrögð meina konum nokkurt samneyti við
karla aðra en fjölskyldumeðlimi. Það varð því uppi fót-
ur og fit þegar Toshiki Toma, japanskur prestur inn-
flytjenda á íslandi, birtist með ísiensku sendinefndinni.
Honum var þó veittur sá sérstaki heiður að fá að vera
með okkur þetta kvöld, hugsanlega vegna geistlegrar
stöðu sinnar.
Hvítur karl í minnihluta
Sú sem þetta ritar hefur setið ótal norrænar ráðstefnur
um málefni kynjanna, jafnréttismál, kynbundið ofbeldi,
menntun kvenna og fleira og alltaf hefur það verið áber-
andi hversu einlitur þátttakendahópurinn er. Þótt við
öll vitum að íbúar Norðurlanda eru af íjölbreyttu bergi
brotnir, um 20% íbúa Svíþjóðar eru innflytjendur og
um 4% íslendinga, þá hafa þess nær aldrei sést merki í
þeim hópi sem starfar að málefnum kvenna á Norður-
iöndum. Við höfum jú á stundum rætt stöðu erlendra
kvenna en ekki boðið þeim þátttöku. I undantekninga-
tilfellum hafa grænlenskar og samískar konur sett örlít-
inn iit á hópinn, og á Nordisk Forum ráðstefnunum var
fjölbreytnin í fyrirrúmi, en oftast hafa þetta verið sömu
konurnar og einstaka karl, lang flest með sitt norræn-
keltneska yfirbragð. Það var því ánægjuleg tilbreyting
við setningu ráðstefnunnar að Per Unckel aðalritari
Norrænu ráðherranefndarinnar, hvítur miðaldra karl,
var skyndilega orðinn fulltrúi minnihlutahóps þar sem
hann stóð frammi fyrir öllum þessum konum. Með
honum á sviðinu voru kynnar ráðstefnunnar, Rachel
Eapen Paul og Thomas Alslev Christensen, hann af ar-
abískum og þýskum uppruna, hún af indverskum. Há-
punktur setningarathafnarinnar var þó tónlistaratriði
flutt af konu frá Danmörku með uppruna í Irak. Hún
flutti frumsamda, ógleymanlega tónlist sem náði langt
inn og upp fyrir hindranir tungumála og menningar-
múra og hverfur seint úr minni þeirra sem þarna voru.
72 / 3. tbl. / 2003 / vera