Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 16
GG BLOGG
Að láta allt flakka gæti verið heitið á nýjasta fyrirbærinu í
tölvuheimum. Það er í samræmi við þá tilhneigingu sem
tæknin hefur komið nútímamanninum upp á, þ.e. að vera
alltaf „í beinni útsendingu". Allt gerist samstundis, við
hugsum, skrifum, ýtum á takka og um leið er það komið
„í loftið", orðið opinbert og fyrir allra augum. Bloggið er
einskonar dagbók á netinu þar sem fólk segir frá viðburðum
dagsins, spreytir sig á því að vera skáldlegt, segir skoðanir
sínar á mönnum og málefnum, setur veruleikann í skondnar
skemmtisögur eða fær útrás fyrir reiði og pirring.
4»
Ritnefnd VERU tók sig til og kannaði bloggheima,
einnig var rætt við einn helsta sérfæðing okkar í dag-
bókarskrifum og sjálfsævisögum. Er hægt að segja að
með blogginu sé búið að opna dagbækur landsmanna
upp á gátt og þær orðnar opinberar? Líklega ekki. Ein-
hver mörk eru sett og flestir passa sig að fara ekki yfir
þá þunnu línu sem liggur á milli innstu tilfinninganna
og þeirra opinberu. Samkvæmt okkar athugunum fara
konur oftar yfir línuna en líklega hafa flestir þó Þa
reglu að halda einhverju fyrir sig, samanber setning-
una frá vinsæla bloggaranum Betu rokk sem sagði a
síðu sinni einn daginn: „mér finnst ég ekkert geta
bloggað því eina sem mig langar að segja frá er
leyndó..."
16/3. tbl./ 2003 /vera