Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 23

Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 23
:-# :-\ :-] nokkuð er um FEMÍNISTAHATUR („HAHA beat that FOKKING FEMÍNISTAR") en um leið hafa margir bloggarar tekið upp hanskann fyrir femínisma. töluvert er um femínísk ungmenni að blogga það voru víst nokkuð margirsem fengu sér að ríða. Og eitthvað kelerí og koss- sri líka.. mmmm ég öfunda þau svo mikið, Nei. Ég hef einhvern veginn aldrei fílað svona riðinga ferðir... allir fara með því hugarfari að fá sér eitt- hvað í klobbann" Pælingar á bloggsíðum Sennilega er áhugaverðast þegar hægt er að sjá heiminn með gagn- týnum augum unglinga. Meðan stríð- ið í (rak stóð yfir voru bloggheimar vettvangur afar hreinskiptinna um- ræðna og voru unglingar þar engin undantekning. Mikið var skrifað um Bush forseta, til dæmis í tengslum við misfellur í framkvæmd forsetakjörs- ins og tilgang hans með stríðinu í írak. Flestir bloggarar höfðu ein- hverja skoðun á málinu. Það sama Qildir um Femínistafélag íslands, töluvert er rætt um félagið og eru á- kaflega skiptar skoðanir um félagið. Á bloggsíðum enduróma gagnrýnis- raddir undangenginna áratuga, til dæmis að femínistar séu nú bara bitr- ah Ijótar, ófullnægðar, karlmanns- lausar mussujussur sem ekki sé mark á takandi. Nokkuð er um femínista- hatur („haha beat that fokking femínistar") en um leið hafa margir bloggarar tekið upp hanskann fyrir feminisma. Töluvert er um femínísk ungmenni að blogga. Flér er hluti af stefnuyfirlýsingu einnar slíkrar síðu: „Að vera dama er ekki að vera sífellt skúrandi gólfin á háhæluðum skóm með varalit. Að vera dama er djöfulli töff og kúl. Að vera dama er að vera meðvituð um kvenleikann en láta hann ekki yfirbuga sig... Dama lætur ekki kúga sig. Dama lætur ekki kúka á sig. Það er bara ógeðslegt" Alltént er Ijóst að flestir unglinga- bloggarar eru hugsandi fólk. Flóra pólitískra skoðana er mjög fjölbreytt og gaman er að kraftinum, þau virð- ast hafa heljarinnar tíma til að blogga af magninu að dæma. Skemmtileg- ustu bloggin þykja mér þau sem eru uppfull af pælingum bloggarans. Bloggið er ágætis tækifæri til að viðra skoðanir sínar og er alltaf möguleiki á að bloggarinn fái lesendur til að velta hlutunum fyrir sér. Oft má finna góða speki á bloggsíðum, eins og þessa hér: „Gamlir sénsar eru eins og gos- laust kók. Það er ekki eins og það var." Sérstaða bloggsins Bloggarar taka þátt í að skrifa söguna, ef ekki er bloggað um eitthvað þá skiptir það ekki máli. Það eru því tölu- verð forréttindi að hafa tök á að blogga og geta tekið þátt í að móta hugmyndir um sögu og samfélag. Það sem heillar mig mest við þennan miðil er hið algera frelsi bloggara. Þau geta skrifað um hvað sem er og hvernig sem er. Það að vita heldur ekki hvort einhver sé að lesa skapar líka sérstakt andrúmsloft til skrifta og blogg þar sem bloggarinn virðist ein- göngu skrifa fyrir sjálfan sig eru sér- lega áhugaverð. Blogg er ekki rit- skoðað, engir auglýsendur eru til að fetta fingur í skrifin og engu skiptir hvort bloggið sé markaðsvænt. Þó engin sála nenni að lesa er samt hald- ið áfram að blogga. Bloggið er líklega eins hrátt og miðill getur orðið, með öllum sínum ærumeiðingum, staf- setningarvillum og vangaveltum. Konan sem kyndir ofninn sinn http://www.nannar. blogspot.com/ 14.6.03 Klukkan 13:06 dæsti Nanna Á grill/karókíkvöldi Fróða í fyrra var ég ein með tvö grill að grilla ofan í mannskapinn. Núna var grillið bara eitt og þrír karlmenn sem mönnuðu það. Annars var þetta ágætt kvöld, þar sem ég gat leitt karókíið hjá mér að mestu og sat í staðinn og ræddi ítalska og króatíska matargerð. Svo enduðum við náttúrlega á Vínbarnum og sátum þar drjúga stund. Ég rölti svo heim og þegar ég gekk upp Skólavörðustíginn vatt sér að méransi krúttlegurfranskurferða- maður og gerði ítrekaðar tilraunir til að draga mig í partí, sem mér skildist að ætti að halda á hótelherbergi hans og vera tveggja manna. Hann var svo undrandi á að ég afþakkaði að hann þráspurði mig hvort ég væri kannski lesbía og virtist ekki alminlega trúa þegar ég neitaði. Mér skildist á hon- um að það bara hlyti að vera fyrst ég væri ekki tilkippileg við hann. Kannski hefur hann séð auglýsingar frá Flug- leiðum. Þetta var krúttlegur náungi eins og ég sagði. En hann var minni en ég og það bara er ekki að virka. Gekk kannski hjá Tom og Nicole um tíma en höfðar ekki til mín. Dömustaðir - dömulegri en dauðinn http://www.domustadir.tk/ Tuesday, June 03, 2003 Ég er að fara í atvinnuviðtal á morg- un. Hjá fasteignasölu. Ég. Fasteign. Heldég þurfi að æla úr stressi. Hahahahahahaha (geðsjúkur hlát- ur)! Hvað á dama að segja í svona viðtölum? Á ég að vera í dragt? Eða ballkjól? Hvurjir eru helstu tísku- straumar hjá fasteingasölum í dag? Jesús þetta er eitthvað svo grown- up! Ekki það að ég sé einhver úllíng- ur, hödla þetta alveg sko, það er bara það að EF ég fæ þessa vinnu þá verð ég geðveikt rík. Múltímilli al- veg. Og það er eitthvað sem ég kann ekki, að eiga pjénínga. Æji fokkitt, kaupi mér fullt af skóm og býð öllum vinum mínum á fyllerjí. Kókó. vera / 3. tbl. / 2003 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.