Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 62

Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 62
I Hvað telurðu þig hafa fram að færa á þingi og hver verða þín helstu baráttumál? Það eru íjölmörg mál sem eru mér hugleikin. Hvað brýnast finnst mér þó að rétta stöðu ungu barnafjöl- skyldunnar í landinu, þeirra sem eru með lágar og með- altekjur. Þessi hópur er með þunga skattbyrði, margir hverjir með þunga endurgreiðslubyrði námslána, eru að greiða leikskólagjöld sem eru nokkuð há, greiða háa vexti og verðbætur af húsnæðislánum og hafa lent harkalega í þeirri skerðingu sem átt hefur sér stað á barnabótunum undanfarin ár, að ekki sé talað um hátt verð á nauðsynjavörum. Það hefur alveg skort að litið sé á þessa þætti í samhengi því fjölskyldan á ekki mikið eft- ir til að lifa þegar búið er að greiða af öllu. Ég vil sjá hækkun á barnabótum og að greitt sé með börnum til 18 ára aldurs, auk þess sem hækka þarf skerðingarmörk þeirra. Þá finnst mér mikilvægt að endurgreiðslubyrði námslána verði lækkuð og endurgreiðslan gerð að hluta frádráttarbær frá skatti. Til að koma til móts við fjöl- skylduna vil ég sjá að virðisaukaskattur á matvælum og barnavörum verði lækkaður. Annað sem mér finnst að við verðum að skoða er að námskostnaður, t.d. vegna leikskólagjalda, innritunargjalda og skólabóka, verði frádráttarbær frá skatti. Allt eru þetta hugmyndir sem miða að því að létta róður barnafjölskyldna í landinu. Þessi hópur hefur setið eftir og fmnst mér kominn tími til að sinna þessum málaflokki og móta fjölskyldustefnu í þessu landi. Hvað finnst þér um hlutfall kvenna á þingi? Er mik- ilvægt að kynjahlutfallið sé sem jafnast á Alþingi eða er nóg að jafnréttismál séu í brennidepli? Ég varð fyrir hálfgerðu áfalli þegar ég áttaði mig á því að hlutfall kvenna á þingi lækkaði eftir síðustu kosning- ar. Mér fannst svo sjálfsagt að hlutfallið myndi hækka enda lifum við á árinu 2003. Þessar kosningar sýndu okkur að við megum ekki sofna á verðinum og jafnrétt- ismálin verða að fá aukið vægi í samfélagi okkar. Mér finnst afar mikilvægt að Alþingi endurspegli samfélagið á sem bestan hátt og þá ekki síst með tilliti til kynjanna. Hvers vegna skiptir máli að konur séu á þingi? Telur þú að þinn flokkur muni beita sér fyrir aðgerðum til að jafna hlutfall kynjanna? Ég vil að barnið mitt alist upp við fyrirmyndir af báðum kynjum í valdastólum og í þeim störfum sem mest ber á. Þetta er mikilvægt því ég tel það hafa lang- tímaáhrif á börn hvernig þau skynja samfélagsgerðina og valdið. Þetta er auðvitað mjög mismunandi milli stjórnmálaflokka, Samfylkingin er t.d. með 9 konur og 11 karla á þingi þannig að okkar staða er góð. Við leggj- um mikla áherslu á þetta við uppröðun á lista okkar og höfum þess vegna náð svo góðum árangri. Við munum áfram berjast fyrir jöfnum rétti kynjanna, hvort sem er í starfí á okkar vegum eða í þjóðfélaginu almennt. Hinir flokkarnir hafa ekki staðið sig og það er mikil synd. Samfylkingin mun því án efa á þessu kjörtímabili leggja mikla áhersu á að jafnréttismálin verði áberandi í um- ræðunni og koma þeim þannig á dagskrá innan þings- ins. Hver eru helstu jafnréttismálin sem vinna þarf í? Hefurðu sjálf hugsað þér að gera eitthvað á þingi sem varðar jafnréttismál? Þau mál sem þarf að sinna eru fjölmörg og snúa ekki hvað síst að launamuninum, sem er að mínu mati brot á mannréttindum. Ég mun leggja mig alla fram við að leiðrétta hann. Staða kvenna í stjórnunarstörfum er einnig þáttur sem verður að taka á. Þetta eru allt verk- efni sem þarf handaflið til að koma í lag en þá á líka að gera það því þetta eru svo sjálfsögð mál. Þá er það mín skoðun að miklu skipti að konur verði rneira áberandi í valdapóstum samfélagsins. Þannig höfum við áhrif til framtíðar á börnin okkar og að stelpurnar oldcar alist upp við að það sé jafn sjálfsagt að þær geri þetta líka. Ertu sátt við stöðu kvenna þegar skipað var í ráð- herraembættin? Nei, það er ég ekki. Tvær af 12 ráðherrum eru konur, hvernig getum við verið sátt við það? Síðar á kjörtíma- bilinu hefur verið boðað að þeirn íjölgi um tvær en á sama tíma mun Siv hætta sem umhverfisráðherra og við höfurn ekki heyrt af því að hún muni halda áfranr. Því verða líka þrír kvenráðherrar á seinni helming kjör- tímabilsins. Þetta er ekki sú mynd sem ég vil sjá af ríkis- stjórn íslands, sama hvaða flokkar hana skipa hverju sinni. Þetta endurspeglar þó stöðu kvenna innan ríkis- stjórnarflokkanna og það er alveg ljóst að þeir þurfa að taka sig á. Af 18 nýjum þingmönnum eru þrjár konur. Held- urðu að þetta hlutfall gefi vísbendingar um það sem koma skal, þ.e. hlutfall kvenna og karla á þingi í fram- tíðinni? Það vona ég svo sannarlega ekki enda verðum við i ljósi þessara kosningaúrslita að horfast í augu við það að stjórnmálamenn verða að fara að axla ábyrgð i þessum málum og hætta fagurgalanum sem elcki hefur skilað neinu. 62/3. tbl. / 2003 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.