Vera - 01.06.2003, Side 11

Vera - 01.06.2003, Side 11
slökkviliðið. „Áhuginn á slökkviliðinu kviknaði í framhaldi af björgunarstörfunum. Ég hefverið að kenna skyndihjálp og fékk áhuga á sjúkraflutningaþætti slökkviliðsins sem varð til þess að ég sótti um. Eftir viðtal og þrekpróf var mér °g annarri stelpu sem heitir Hafdís Björk Albertsdóttir boðið starf og við hófum störf 1. apríl 2001. í viðtalinu var okkur sagt að við værum fyrstu konurnar í Slökkviliði Reykjavíkur og að þar væru karlar sem vildu ekki fá konur inn. Við heyrðum líka utan að okkur alls konar yfirlýsingar tilvonandi félaga okkar, til dæmis að sumir ætluðu að neita að reykkafa með okkur því það er hættulegasti part- urinn og þeir væru vissir um að við gætum ekki bjargað þeim ef eitthvað kæmi upp á. Við urðum samt ekkert mik- ið varar við þetta. Þegar við byrjuðum komu einhverjir til okkar og sögðu að þeir vildu ekkert hafa konur hér en buðu okkur samt velkomnar. Þetta var því töluvert þroskaðra en hjá FBSR. Karlar eru náttúrlega eins misjafn- it og þeir eru margir. Það hefur komið fyrir að menn hafi verið með stæla gagnvart okkur, aðallega út frá kynferði okkar - að við getum ekki neitt vegna þess. Sumir sem vinna þarna eru og munu alltaf verða leiðinlegir og með stæla. Ég veit að það var talað við menn áður en við byrjuð- urn og þeim gert Ijóst að ekkert svona myndi líðast. Menn hafa verið teknir á teppið fyrir að vera með svona stæla." Heiða er nú eina stúlkan í slökkviliðinu í Reykjavík og vinnur með 120 -130 karlmönnum. Hún viðurkennir að Það hafi verið töluvert þægilegra þegar Hafdís var líka. «Um leið og hún hætti heyrði ég viðhorf á borð við: „Two down, one to go" því önnur stelpa hafði byrjað en stopp- að stutt. Ef einhver er að þrífa fæ ég ósjaldan að heyra að sg ætti nú frekar að gera þetta þar sem ég sé fædd til þess. Svona glósur eru kannski allt í lagi í örfá skipti en ef þær eru á hverjum degi í nokkra mánuði verð ég verulega Pirruð. Ég heyri líka oft að ég vilji vera karl þess vegna sé e9 hér. Ég hef látið taka menn á teppið fyrir þetta og mun gera það áfram. Ég sé enga ástæðu til að ég eigi að þurfa að þola svona dónaskap frekar en einhver annar." Hlyti að vilja vera karl Þegar blaðakona spyr Heiðu hvort henni finnist hún falla ir|n í hópinn í slökkviliðinu verður hún hugsi og segir að lokum: „Núna finn ég að flestir líta á mig sem starfsfélaga og vinna með mérsem slíkri. Ég hefvonandi sannað mig í starfi, þó það hafi eflaust tekið lengri tíma en hjá strákun- um enda litið svo á að ég þurfi frekar að sanna mig. En lagslega séð er ég ekki með í hópnum." Heiða talar áfram um starfið og það er augljóst að hún hefur mikla ánægju af því, þrátt fyrir allt, enda Ijómar hún hreinlega. „Starfið er alveg rosalega skemmtilegt og mjög fjölbreytt. Þessu fylg- ir náttúrlega dálítil sþenna og læti og ég hef gaman af því, auk þess sem mér finnst öll þessi hreyfing ómetanleg. Þetta er bara of skemmtilegt til að hætta. Oft verð ég pirruð og leið á stælunum en aldrei svo að ég vilji hætta. Ég læt ekki aðra skemma fyrir mér það sem mig langar til að gera. Ég fór í Tækniskólann og lærði iðnrekstrarfræði og prófaði að vinna við það. Mér líkar ekki að sitja föst við tölvu allan daginn. Ég er þannig persóna að ég þarf ein- hvern veginn að vera á hreyfingu, þess vegna hentar slökkviliðið mjög vel." Þegar Heiða er spurð hvort hún telji sig vera femínista segist hún í rauninni ekki vita alveg hvað það er. „Það sem ég vil sjá er jafnrétti fyrir alla, að allir fái sömu tækifæri. Allir eiga að fá að reyna að gera það sem þau langar til, rétt eins og ég hef gert. Þó einhverjir séu á móti því að ég sé að gera það sem ég vil, læt ég það ekki skemma fyrir mér. Það er þeirra vandamál. Ég vil líka að karlmenn geti verið leikskóla- kennarar eða hvað sem er án þess að mæta fordómum." Heiða segist óneitanlega mæta fordómum vegna starfsvals síns. „Annað hvort vil ég vera karl eða ég er sam- kynhneigð, er sagt. Þegar við Hafdís byrjuðum í slökkvilið- inu gekk sú kjaftasaga að við værum samkynhneigðar, jafnvel þó hún sé gift karlmanni. Fólk virðist ekki geta trú- að því að ég sé gagnkynhneigð kona og hafi áhuga á þess- um hlutum. Ég hef einnig heyrt því fleygt að við séum að koma þarna inn á öðrum forsendum en aðrir, að við séum bara í slökkviliðinu til að ná okkur í karlmann en ekki vegna áhuga á starfinu. Þetta hefur jafnvel komið frá eig- inkonum félaga okkar. Það er hálfsorglegt að þurfa jafnvel að forðast að skemmta sér með félögunum út af svona við- horfi. Það er nefnilega sagt að mikið hafi verið um skilnaði í lögreglunni þegar konur hófu störf þar og að margir séu hræddir um að það sama gerist í slökkviliðinu. Ég held nú að þetta sé bara goðsögn," segir Heiða að lokum og blaða- kona getur ekki annað en verið hjartanlega sammála. X vera / 3. tbl. / 2003 / 11

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.