Vera - 01.06.2003, Page 20

Vera - 01.06.2003, Page 20
/ BLOGG BLOGG BLOGG... Nornasveimurinn http://hexia.blogspot.com/ 30.1.03 Óþægilegt hvað þessi vinna slítur alltaf í sundur fyrir manni daginn. Annars er ég búin að ákveða það að hætta fljótlega að vinna alveg og fara bara á lífeyri eða vinna einstöku sinnum í sérverkefnum. Það er alltaf hægt að vinna þau þegar maður hefur ekkert annað við tímann að gera yfir vodkaglasi og flögum. Er alla vega búin að átta mig á því að það er ekkert vit að vera að vinna á einhverjum BSRB tíma, þ.e. 9-17 fimm daga vikunnar. Líkamsklukkan mín er alla vega ekki í samræmi við BSRB klukkuna. Hasar og háskaleikir í stór- borginni http://karamella. blogspot.com/ Wednesday, June 18 Það er enn allt á floti hérna sem er vont fyrir okkur lúðana sem höfum ekki efni á einkabíl og reiðum okkur á fjóra jafnfljóta og strætó. En það gaf mér þó tækifæri til að vera Flor- ence Nightingale fyrir 21. öldina. Á leiðinni úr jafningjafræðslunni yfir í vinnuna mína í Hagstofunni rambaði ég á orm sem var að synda í polli í Nóatúni. Blíðum höndum fór ég um greyið þegar ég greip um búkinn á honum og henti honum í næsta beð. Reyndar sá ég síðan tvo aðra orma á leiðinni, sem skriðu makindarlega um gangstéttirnar, en var þá of löt til að hjálpa þeim. Einn af hverjum þremur. Ég kalla þetta nú bara góðan árangur. lens aldri hefur t.a.m. fyrir reglu að nafn- greina aldrei þau sem næst henni standa en hefur þess í stað gefið þeim gælunöfn sem skírskota að ein- hverju leyti til raunverulegra nafna þeirra eða stöðu. „Efnafræðistúdent- inn" og „Eldfjallið" eru dæmi um þetta. Raunar huga margir að slíkri persónuvernd að einhverju leyti en færri bloggarar - og raunar ákaflega fáar konur - hafa það að markmiði að tala aldrei um persónuleg mál enda gerir dagbókarformið þeim oftast örðugt um vik. Karlkyns vinur minn tjáði mér um daginn að honum þætti skemmti- legra að lesa blogg kvenna vegna þess að það væru meiri líkur á því að konur færu „yfir strikið" í ógáti því að þær væru meiri tilfinningaverur. Með þessu viðurkenndi vinur minn að hann læsi blogg vegna einhvers kon- ar gægjuhneigðar eða löngunar til að vita meira um líf náungans en náung- inn vill í raun segja. Við flakk um bloggsíðurnar er það nokkuð Ijóst að konur blogga meira um tilfinningamál sín og þær fara lengra í því að segja frá persónulegum högum sínum en karlmenn. Þetta er vitaskuld ekki algilt. Það eru margir karlar sem fara langt í að segja frá sín- um fjölskylduhögum og dýpstu tilfinn- ingum og það eru til konur sem blogga bara um þjóðmál og sniðugheit. Forvitnilegt er líka að velta því fyr- ir sér hvort konur bloggi meira um svokölluð kvenleg mál, svo sem börnin sín, heimilisstörfin og útlitið. Eftir lauslega rannsókn á þessu kom í Ijós að karlar og konur blogga nokk- uð jafnt um börn og heimilisstörf en útlit sitt blogga karlar aldrei um. Blogg um aukakíló finnst til að mynda ekki á bloggsíðum karl- manna: Ég veit ég gefmig út fyrir að vera ein- staklega yfirveguð manneskja með ailt mitt á hreinu. Fyrirmyndarhúsmóðir KONUR BEITA EKKI HVER AÐRA SLÍKUM ÞRÝSTINGI Á BLOGGINU, EFTIR ÞVÍ SEM ÉG KEMST NÆST. ÞÆR GETA FAR- IÐ MÖRGUSINNUM YFIR STRIKIÐ OG VERIÐ TALDAR KOL- RUGLAÐAR FYRIR VIKIÐ EN ENGINN INNAN BANDALAGS ÞEIRRA SEGIR NEITT og draumaeiginkona.Yfirmaður á upp- leið og tek ávallt hlutum með stóiskri ró. Lesendur góðir, ég hef blekkt ykkur hrapallega. Ég er bara feitur 24 ára skyndibitafíkill sem er ennþá i menntó og er afskaplega óánægð með sjálfa mig, stöðugur gestur hjá sálfræðingum og geðlæknum borgarinnar. En i morg- un voru teknar stórar ákvarðanir. Ég ætla bara að borða franskar einu sinni í viku. Ég ætla að trappa geðlyfin niður smátt og smátt og hætta frekar á að ég verði óhamingjusöm og þunglynd - allt fyrir vigtina. Karlar virðast líta fremur á blogg sem underground fjölmiðil og þeir taka fremur afstöðu til þjóðfélags- mála og stjórnmála. Þeir tjá sig meira um mál sem hafa verið í fréttum, s.s. ræningjana í Landsbankanum, barnaklámsmálið - þá sem eru utan- aðkomandi. Konur halda sig meira í sínum heimi. Tilfinningablogg Freistandi er því að velta fyrir sér hvort sama strikið hentar bæði körl- um og konum. Skyldi þurfa meira til þess að konur teljist hafa farið yfir strikið en karlar? Bræðurtveir halda báðir úti blogg- síðum. Eins og reglur bloggsamfélags- ins gera ráð fyrir vísa þeir hvor á annan með tenglum. Bræðurnir hafa fram að þessu tilheyrt þeim sem ekki blogga mikið um persónuleg mál heldur lagt sig fram um að segja hnyttnar sögur og taka afstöðu til ýmissa hluta. I seinni tíð hefur yngri bróðirinn þó þokast nokkuð af leið. Hann er sýni- lega ástfanginn og er staddur í útlönd- um fjarri elskunni sinni. Fyrir nokkru nefndi hann elskuna á nafn og sagðist sakna hennar mjög. Fáum dögum seinna breytti eldri bróðirinn tenglinum sem áður vísaði til menntunar yngri bróðurins og vitsmuna (Latinublogg) en setti í staðinn tengil sem benti á vanmátt hans við að hemja tilfinningar sínar (Sentimentalblogg). Þarna var eldri bróðirinn að veita þeim yngri áminningu um að sleppa sér ekki yfir í tilfinningablogg heldur halda sig innan þeirra ósýnilegu marka sem hópurinn hafði sameinast um. Fleiri dæmi eru um að karlar sem standa í skjallbandalagi beri ábyrgð á því að halda hinum réttu megin við strikið: 20 / 3. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.