Vera - 01.06.2003, Síða 28

Vera - 01.06.2003, Síða 28
/ BL066 BL066 BL066... FÓLK ER ÓHEFTARA VIÐ AÐ TAKA Á SIG NÝ HLUTVERK ER LÚTA AÐ KYNFERÐI, ÚT- LITI, ALDRI OG ÞJÓÐERNI. UPPLÝSINGAR SEM VIÐ „SJÁUM" í VENJULEGUM SAM- SKIPTUM VIÐ FÓLK VERÐA AFSTÆÐAR Á VERALDARVEFNUM ... færi til að skilgreina sig upp á nýtt og öðlast í raun nýja eða annars konar sjálfsmynd. Fyrir margt fólk er þetta tilvalinn vettvangur til að „vera það sjálft“, frjálst og óháð þeim kröfum og takmörkunum sem oft einkenna almenn samskipti. Erfitt að halda persónuleynd Nýjasta æðið á íslandi er bloggið. Eins utanveltu og ég er í þessum málaflokki var nánast ekki hægt að láta þetta æði framhjá sér fara. Þeir bræður í Tvíhöfða gerðu þessa umræðu opinbera fyrir mörgum hlustendum Radíó X fyrir um ári þar sem bloggari dagsins var í hávegum hafður í morgunþætti þeirra. Þekktasti bloggari Islands varð eflaust Beta Rokk. Á tímabili þýddi varla að opna tímarit, stilla á útvarpsþátt eða lenda í umræðuhópi án þess að þessi unga stúlka væri til umræðu. Bloggið var hraðbrautin að 15 mínútna frægðarferlinu. Blogg er kúltúr sem ákveðinn hópur aðhyllist og hrærist í. Það er einhverskonar opinber dagbók þar sem fólk greinir frá atburðum líðandi stundar og varpar eig- in skoðunum á það sem er að gerast í kringum það. Ef- laust er þetta áhugaverður vettvangur út frá mannfræði- legu og sagnfræðilegu sjónarmiði en líf bláókunnugra einstaklinga hefur aldrei heillað mig, ég leita því mjög lítið í þessa menningu. Þessi nýi tjáningarmáti er samt sem áður einstakt fyrirbæri og þau sem taka þátt í þess- um heimi virðast eiga sér uppáhalds bloggara. Þeir reynast margir hinir skemmtilegustu höfundar og frá- sagnir þeirra eiga auðvelt með að kveikja kjaftasöguá- huga landans. En hvernig tekst fólki að halda persónuleynd í net- samfélagi á íslandi? Þegar við stöllur á Veru sátum og því, sérstaklega hér á norðurhveli jarðar. Það þarf því að passa börn og unglinga sérstaklega vel því varnirnar í húð þeirra (melanín) eru ekki fullþroskaðar fyrr en á síðustu unglingsárunum. Ef börn og unglingar sólbrenna eykur það hættu á húðkrabba síðar. Erfitt er að átta sig á UVA- geislunum vegna þess að þeir brenna ekki húðina en valda skaða í neðri húðlögunum og eru t.d. taldir ná gegn- um bílrúður. Proderm sólarvörn er til í öllum apótekum hérlendis. Það er sex klukkutíma vörn, CE merkt læknavara sem er mikið öryggi fyrir börn, unglinga, útivinnandi fólk og alla sem eru í sól, sjó og sundi. Sólbruna getur fylgt mikil vanlíðan, húðþurrkur og sfð- an húðflögnun. Það er því bæði heilsusamlegara og fal- legra að nota góða sólarvörn til að halda húðinni heil- brigðri og fá fínan sólbrúnan lit sem endist. Njótið sumars- ins vel! / KYNNING Sólarvörn á íslensku sumri Mikil áhersla er nú lögð á að nota sólarvarnir og flestir nota þær á sjálfa sig og börnin á sólarströndum og heitum dögum erlendis. Svo virðist sem mörgum finn- ist að ekki sé nauðsynlegt að nota varnir í sólinni á ís- landi enda má oftar sjá sólbrennt fólk eftir sólríka daga hér heima en á sólarströndum erlendis. P R 0 D E R M tUHSCRUN fOR UP 10 6 HOURS PROTECIiOH V J’i o'L 2 ’t' 30 MOUSSE_______^ ,1,fA',W«í!íTO*íi,J,!!iS ■*l fot S£»Sin«f i|l,! Það vill líka gleymast að láta unglinga og eldri börn sem vinna útivinnu og eru mikið í sundi og leik bera á sig sólar- vörn, einnig getur verið nauðsynlegt að bera sólarvörn á börn á leikskólum. (Bandaríkjunum, þar sem talið er mjög áríðandi að fólk verji sig gegn sólinni og noti sólarvörn, veita yfirvöld útivinnandi fólki skattafrádrátt vegna kaupa á sólarvörnum, sólgleraugum og höttum. Ozonlagið, sem verndar jörðina fyrir UVA og UVB geisl- um, er orðið sérlega þunnt og sumstaðar eru stór göt á ræddum um þema blaðsins fram og til baka komu margar áhugaverðar upplýsingar fram um þennan hulda heim. Ég var, sem áður, sú eina sem tilheyrði elcki bloggkúltúrnum og sat sem sannur mannfræðingur og íylgdist með áhugaverðum umræðum. Fyrir mér mun smæð íslands ávallt koma í veg fyrir að hægt sé að „týn- ast“ í netsamfélaginu því það er svo auðvelt að komast að því hver viðkomandi bloggari er. Hvar eru þá mörk- in? Getur íslenskur bloggari lifað „tvöföldu lífi“ í samfé- lagi þar sem nánast allir vita hver maður er? Að sjálfsögðu býr þessi einstaki miðill yfir frábærum möguleikum þar sem okkur gefst tækifæri til að gefa öðrum innsýn í veruleika okkar, eða það sem við viljum gefa upp af honum. Það getur hins vegar orðið vandi að sameina þá mynd sem við gefurn af okkur á netinu og þá sem við viðhöldum í daglegum samskiptum. I raun er þetta ekki ólíkt því sem hver annar „frægur“ einstak- lingur stendur frammi fyrir; allir „þekkja“ þig og jafnvel dæma án þess að þú hafir nokkuð um það að segja. Öllu frelsi fylgir ábyrgð og er bloggið þar engin undantekn- ing. Það sem við kjósum að tjá okkur urn á veraldar- vefnum verður að „opinberum upplýsingum“ í orðsins fyllstu merkingu. Sú sem ég gef mig út fyrir að vera á

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.