Vera - 01.06.2003, Side 32

Vera - 01.06.2003, Side 32
Eftir sundið sest Sol- veig niður með kaffi- hópnum sem hittist á hverjum morgni og hittist líka stundum þar fyrir utan. í KAFFIHÓPI í LAUGARDALSLAUG Tengdamæðgurnar Solveig Theodórsdóttir og Marta Tómasdóttir fara saman í sund klukkan átta á morgnana. Síðustu tvö árin hefur Solveig sótt tengdamóður sína til að fara í laugina en þær hafa hvor sinn hátt á þar. Solveig lærði fyrir nokkrum árum skriðsund og skipti þá bringusundi í kafi út. Hún kveðst ánægð með 500 metra í senn, teygjur og svo hópinn sinn í pottinum sem vekur jafnan athygli með samsöng í eimbaðinu á föstudögum. Eins og margirfastagestir hefur hún „eigin" skáp og sturtu og eftir sundið, um hálftíu, fær hún sér kaffi áður en vinn- an tekur við í Brúðarkjólaleigu Dóru. „í kaffihópnum hef ég eignast ágætar vinkonur og kunningja, við höfum farið saman í gönguferðir, út að borða, haldið jólaboð og þorrablót. Þótt ég hafi byrjað að synda af heilsufarsástæðum fyrir bráðum þrjátíu árum og það hafi í raun gert kraftaverk, þá er félagsskapurinn ekki verri. Laugarnar eru eins og lítið samfélag og ég hugsa að sundið haldi manni ungum af því það nærir bæði andlega og líkamlega." Marta er níræð en heldur sig ekki aldursforseta í laug- unum. Hún hefur synt nær daglega síðan hún var 23 ára. „Ég fór alltaf meðan maðurinn minn lifði, hann fékk mig út í þetta og synti þúsund metra í strekk," segir hún. „Hér áður var ég líka í leikfimi og jóga. Nú hef ég metrana í sundi svona 300-400, alltaf bringusund, og bregð mér bara stutt í pott á eftir. Fyrir fimm árum hætti ég að búa mig í útiskýli, fannst það orðið heldur kalt, og hef svolítið fækkað dögum. Sleppi miðvikudagsmorgnum því þá laga ég á mér hárið fyrir samverustund í Bústaðakirkju og svo sunnudögum af því nú orðið fer ég í messu. En ég get sagt þér að sundið er hreinasta heilsubót og hefur eflaust hald- ið mér við. Þótt ég hafi notað hækjur í fjögur ár nýt ég gönguferða og enginn þarf að leiða mig." Nú býr Marta ein og var önnum kafin þegar Vera spjall- aði við hana. Hún hafði fengið gesti frá útlöndum vegna 90 ára afmælisins, búin að baka þó nokkuð en átti enn eft- ir átta Draumatertur, tvo rommkransa og fjórar brauðtert- ur. Ekki þótti henni það tiltökumál og hlakkaði til veislunn- ar með 180 velunnurum næsta dag. Hann byrjaði snemma í laugunum, þar var sungið fyrir afmælisbarnið og enn endurnýjaðist gott skap: „Mér sýnist yfirleitt enginn vera í fýlu í sundi," segir Marta, „fólk brosir og það fylgir manni gegnum daginn." í GARPAHÓP! í KÓPAVOGSLAUGINNI Helga Guðrún Gunnarsdóttir starfsmaður ritstjórn- ar Morgunblaðsins syndir reglulega í Kópavogs- lauginni, sem henni finnst langbest, fer um á hjóli jafnt sumar sem vetur, hleypur öðru hvoru og feikur golf á sumrin. Enda er hún vel á sig komin og að eigin sögn aldrei í betra formi. Orkan kemur úr þessum lífsstíl en Helga breytti rækilega um takt fyrir tíu árum. „Þá henti ég bílnum mínum og hætti að reykja," segir hún „og fékk smám saman hug á að hreyfa mig. Ég fór að djöfl- ast í sundi og var spurð hvort ég vildi ekki vera með í Garpahópi sem æfði reglulega í Kópavogslaug. Fyrst hélt ég að þetta væri gott grín, en sló til og lærði í leiðinni skriðsund. Þessi hópur leystist upp en nú er ég í öðrum sem hittist með þjálfara þrisvar í viku og syndir klukkutíma í senn. Það eru rúmir tveir kílómetrar í hvert skipti. Svona hópar eru í mörgum laugum og nýlega var landsmót Garpa með um 70 þátttakendum. Svo var vorfagnaður hjá okkur í Kópavogi og mér þykir gaman að vera í liði. Þetta er félagslegt líka, skemmtilegt fólk. Einu sinni hefði ég varla trúað hvað það gæti gefið að standa upp af stól og rjúfa óheilbrigt mynstur. Líkaminn styrkist, það hef ég fundið greinilega, en mér finnst ekki minna um vert að sjálfstraustið blómstri og bara lífsgleðin." Helga G. Gunnarsdóttir syndir daglega í Kópavogslaug. 32 / 3. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.