Vera - 01.06.2003, Síða 40
4»
Guðrún Agnarsdóttir er hreinræktuð borgarstelpa. Hún
er fædd í húsi ömmu sinnar í Skólastræti, nánar tiltekið
í suðurherberginu uppi á lofti. Guðrún bjó lengst af í
Skólastrætinu þar sem stórfjölskyldan átti heirna. Hún
fluttist síðar til Hvammstanga þar sem hún og Helgi
maður hennar störfuðu um tíma sem læknar. Þaðan lá
leiðin til London í framhaldsnám í læknisfræði og svo
aftur til borgarinnar Reykjavíkur. En hverja sögu verður
að byrja á byrjuninni...
ÉG SPEGLAÐI MIG MJÖG STERKT í HUGRÖKKUM,
HEIÐARLEGUM OG ÓTRAUÐUM STÖLKUM SEM HVIK-
UÐU EKKIFRÁ SANNFÆRINGU SINNI, JAFNVEL ÞÓ AÐ
Á MÓTI BLÉSI OG ÞÆR YRÐU UNDIR UM TÍMA. MINN
FEMINÍSMI ER SEMSAGT SPROTTINN UPP ÚR MJÖG
STERKRI RÉTTLÆTISKENND
Guðrún að baka
„sitt daglega brauð"
eins og hún hefur
gert í mörg ár.
Uppskriftina er að
finna á www.vera.is
„Heimilislífið var hefðbundið að því leyti að mamma
var heimavinnandi húsmóðir og pabbi sjómaður," segir
Guðrún. „Síðan vann hann hjá Jarðborunum ríkisins og
ferðaðist um allt land. Mamma var því mikið ein með
okkur þó að við ferðuðumst stundum með honum. Síð-
ar var pabbi skipstjóri og skytta á hvalveiðibát. Þá var
hann á vertíð og að heiman heilu sumrin. En þó að
hefðbundin verkaskipting hafi verið á heimilinu þá
hafði pabbi ákaflega gaman að matseld. Hann bæði
keypti stundum inn og eldaði, sem ekki var algengt á
þessum tíma. Eldri konum fannst þetta gríðarleg búbót
fyrir móður mína. „Og hvað segirðu, eldar hann líka!"
segir Guðrún og leikur gamla konu. „En á yfirborðinu
var hann ráðandi aðilinn og hún víkjandi aðilinn, þó að
full virðing væri borin fyrir hennar hlutverki."
Guðrún segist hafa haft það á tilfinningunni að þær
konur sem voru í kringum hana þegar hún var að alast
upp væru mjög góðar mæður. Þær hafi borið mikla
virðingu fyrir ungbörnum og fyrir móðurhlutverkinu
þó að húsmóðurhlutverkið hafi e.t.v. verið þeim mis-
áhugavert. „Ég ólst því upp við virðingu fyrir mæðrum
og fyrir því ungviði sem var að vaxa upp. Körlum var
t.a.m. gert skiljanlegt hvenær mátti hafa hátt og hvenær
átti að hafa lágt þegar ungbörn voru nærri. Þessu stjórn-
uðu konurnar, enda var þetta ásamt öðru viðfangsefni
þeirra og það er alltaf spurning um nálgun fólks gagn-
vart verkefni sínu. Mér þótti ég skynja mikla virðingu
fyrir manneskjum. Sérstaldega manneskjum sem gátu
ekki sjálfar."
Súkkulaðipía og lestrarhestur
Guðrún er elst fjögurra lifandi systkina og hún lýsir
æsku sinni sem hamingjuríkri og fjölbreyttri. „Það er
svo mikið sem börnum býðst núna að maður líkir því
jafnvel við áreitni og ofgnótt. Mér finnst samt á vissan
hátt að ég hafi átt jafnvel fjölbreyttara uppeldi. Ég vann
á sumrin eins og tíðkaðist og vinnan var fjölbreytt og
skemmtileg: fyrst var það að passa börn og síðan ung-
lingavinnan sem ýmislegt fólst í. Það var unnið í görð-
um, í fiski, á róluvöllum, að taka upp kartöflur og við
skógrækt. Ég vann líka í fiski og í búð og svo var ég
súkkulaðipía á Gullfossi tvö sumur," segir Guðrún og
kímir þegar hún er beðin að lýsa því starfi nánar. „Á
þeim árum þegar ekkert fékkst hér þá seldi súkkulaðipí-
an Mackintosh, Dairy Milk og alls konar enskt sælgæti
og frönsk ilmvötn. Þetta var mjög gaman og ég kom oft
bæði til Skotlands og Danmerkur. Ég var nokkurs kon-
ar siglandi flugfreyja, sú eina í flotanum."
Hin unga Guðrún var líka mikill lestrarhestur, þótti
gaman í skóla og gekk vel. Þegar hún var að íhuga hvað
hún ætti að gera eftir skyldunámið þótti öllum mjög
skynsamlegt að stúlkan fengi einhverja praktíska
menntun svo hún gæti séð fyrir börnunum sínum ef
maðurinn hennar félli frá.
„Bæði mamma og sum systkini hennar höfðu farið i
Ver/.lunarskólann svo ég tók inntökupróf og varð ægi-
lega glöð þegar ég náði. Ég hafði þó ekki verið mjög
lengi í skólanum þegar ég fann að ég hafði í raun miklu
meiri áhuga á náttúrufræði, líffræði og ýmsu sem var
kennt í Menntaskólanum, frekar en því sem var kennt 1
Versló. Veran þar var samt skemmtileg.
Ég kláraði stúdentsprófið og velti síðan vöngum yfir
því hvað ég ætlaði að gera næst. Ég hafði mikinn áhuga
á líffræði en hún var ekki kennd hér heima. Ég hugsaði
40/3. tbl./2003/vera