Vera - 01.06.2003, Page 44

Vera - 01.06.2003, Page 44
 i s «■ ! i ! i ! Guðrún er yfirlæknir Neyðarmóttöku vegna nauðgana og er hér ásamt Eyrúnu Jóns- dóttur umsjónarhjúkr- unarfræðingi sem vinnur á móttökunni. Mynd: Kristín Boga- dóttir. manni finnst femínisminn vera farinn að blómstra aft- ur, þá kemur þetta bakslag? „Þetta sýnir bara að það þarf að standa vörð um rétt- indin og vera vel vakandi. Jafnrétti er ekki náttúrulög- mál og það fennir fljótt í sporin. Þegar okkar kvenna- framboð kom fram voru örfáar sem vissu af kvenna- framboðinu íyrr á öldinni. Það hafði fennt í öll þau spor. Samt greiddu þær konur götu okkar með blóði, svita og tárum. Kvennaframboðið og Kvennalistinn unnu brautryðj- endastarf og ég er sannfærð um að það breytti stjórn- málum á íslandi. Það breytti orðræðunni, þó menn jafnvel geri sér ekki grein fyrir því. Ég horfði um daginn á myndbandsupptökur frá fyrstu árum Kvennalistans þegar ég var að reyna að fmna einhvern kafla fyrir 20 ára afmælið. Þá var ég hissa á því sem ég sá. Ég hugsaði með mér: „Ja hérna, töluðu þeir svona þá. Var hægt að tala svona þá?“ Og ég skynjaði hvað orðræðan hafði breyst. Það myndi enginn láta sér detta til hugar að tala eins og þeir töluðu þá. Það er auðvitað ekki bara Kvennalistan- um að þakka, en Kvennalistinn hafði mikil áhrif.“ Guðrún segir að Kvennalistinn hafi vakið svo mikla athygli erlendis að fólk hér á landi hafi e.t.v. aldrei gert sér almennilega grein fyrir því. Þingkonurnar og aðrar kvennalistakonur voru í stöðugum boðsferðum og við- tölum við stórblöð um allan heim vegna þess að þetta þótti svo sérkennilegt og skrýtið. Og kvennahreyfing- arnar dáðust að þeim og dreymdi um að ná öðrum eins árangri. En var eitthvað sem fór ekki eins og ætlað var? „Við náðum aldrei þessari breidd meðal verka- kvenna sem við vildum hafa náð. Það voru mjög marg- ar menntaðar konur f Kvennalistanum en líka verka- konur, mest eldri konur, sem höfðu fyrir löngu séð ljós- ið. Kannski vantaði verkakonurnar bæði sjálfstraustið og tímann. Þær þurftu að vinna og höfðu ekki eins frjálsan tíma og við hinar. Þær gátu ekki verið á fundum fram á nætur. En sjónarhorn þeirra og það sem þær gerðu var ómetanlegt.“ Nauðgun má líkja við náttúruhamfarir eða stórslys Það þarf ekki sérlega næma manneskju til að taka eftir því að Guðrún lifnar öll við og augun leiftra þegar hún rifjar upp þessa tíma. Voru ekki óskapleg viðbrigði að hverfa af þingi? „Nei, þetta er eins og með menningarsjokkið sem ég beið eftir þegar ég kom frá London. Það kom aldrei. En hitt er annað mál að ég hefði alveg viljað halda áfram. Mér fannst svo skemmtilegt að vinna þetta starf. En ég var líka alveg sátt við að hætta.“ Og Guðrún var aldrei verkefnalaus. Hún varð for- stjóri Krabbameinsfélagsins og stóð í undirbúningi stórrar kvennaráðstefnu á írlandi, sem átti raunar fyrst að halda á íslandi vegna þess hve kvenforsetinn og Kvennalistinn höfðu vakið mikla athygli hins femíníska heims. „I gegnum það kynntist ég mörgum kvennabaráttu- konum í Bandaríkjunum. Ég fór á ráðstefnu með Gloriu Steinem og Betty Friedan og öllum þessum kempum. Vegna þess að ég hafði verið mikið í friðarumræðu á Al- þingi höíðu ýmsir gert í því að bjóða mér til að skoða höfuðstöðvar Nató og ýmsar herstöðvar í Bandaríkjun- um, væntanlega til þess að sýna mér hvað þetta væri allt saman mikilvægt. Skemmst frá að segja fann ég aldrei tíma til þess. En svo árið 1990 var mér boðið af Menn- ingarstofnun Bandaríkjanna að fara í mánuð til Banda- ríkjanna og ég mátti velja hvað ég vildi sjá. Ég bað um að fá að sjá hvað þeir gerðu fyrir þau sem höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi, heimilislausa, fíkniefnaneyt- endur og eyðnismitaða.“ Guðrún segist hafa kynnst hópi duglegra, bjartsýnna og hugaðra einstaklinga sem voru að vinna í þessum erfiðu málunr og vildu breyta Bandaríkjunum í betra samfélag. „Þetta var geysilega áhugaverð ferð og í henni skoð- aði ég neyðarmóttökur af ýmsu tagi. Við höfðum flutt þingsályktunartillögu á Alþingi um bætta rannsókn og meðferð nauðgunarmála og hún hafði verið samþykkt og nefnd á vegum dómsmálaráðherra, sem ég sat í, hafði unnið rannsóknarskýrslu um málið. Eftir að ég kom heim talaði ég við kunningja minn sem var skrif- stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og sagði honum frá öllu sem ég hafði séð og hann var svo jákvæður að hann bað mig strax að vinna undirbúningsvinnu fyrir ráðu- neytið að stofnun neyðarmóttöku. Ég var síðar beðin að skipuleggja neyðarmóttökuna og að veita henni for- stöðu.“ Guðrún segir muninn á aðbúnaði fórnarlamba nauðgana fyrir og eftir Neyðarmóttökuna gríðarlega mikinn. Þó að sumir læknar hafi sýnt málinu skilning var það mjög oft að lögreglumenn þurftu að keyra fram og aftur til þess að leita að einhverjum lækni til að skoða konurnar sem urðu fyrir nauðgun. Það var engin skipu- lögð þjónusta til fyrir manneskju sem var brotin og illa farin og átti ekki í nein hús að venda. „Um leið og kom skipulagður rammi utan um starf- semina gekk allt betur. Allir vissu hvað þeir áttu að gera og jafnframt hvað hinir áttu að gera. Á móti fórnar- lambinu tekur teymi faglærðs fólks, læknir, hjúkrunar- 44/3. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.