Vera - 01.06.2003, Page 49

Vera - 01.06.2003, Page 49
19 ára bikarmeistari Svava og faðir hennar Halldór Sigurðsson fengu áhugann á gokart úti á Spáni fyrir nokkrum árum og fyrir rúmum þremur árum keyptu þau gokart bíl og hófu æfingar hér heima. Svava er bílstjórinn og faðir hennar sér um viðhald og viðgerðir á bílnum. Svava segir það vera sér mjög dýr- mætt að eyða svo miklum tíma með föður sínum. „Ef við erum ekki saman að gera við bílinn erum við að gera við saumavélina," segir hún hlæjandi en hún er einnig að læra fatahönnun. Svava hefur keppt í greininni undanfarin ár en þar sem hún var aðeins sextán ára þegar hún byrjaði fékk hún und- anþágu til að taka þátt. í dag er hún nítján ára og yngsti keppandinn en varð samt bikarmeistari þegar hún krækti í fyrstu verðlaun í svokallaðri Formúlu í fyrra. Sú keppni tek- ur einn og hálfan tíma og er mjög erfið líkamlega séð en Svava segir það koma mörgum á óvart. „Bílarnir eru frekar litlir en mjög kraftmiklir og bílstjórinn situr næstum alveg við götuna. Við náum því miklum hraða, allt að 100 til 120 km/klst, og það er mikið álag á efri hluta líkamans að fara alltaf rétt inn í beygjur til dæmis, að ekki sé minnst á hversu erfitt er að halda athyglinni allan tímann." Svava segir að vissulega geti íþróttin verið hættuleg en að reynt sé að tryggja öryggi keppenda sem best. Þeir eru með hjálma öllum stundum og í sérstökum eldvarnargöll- um. Þá segir Svava mjög mikilvægt að keppendurnir sýni sjálfir aðgát og tillitssemi á brautinni. Sætin eru mjög þröng þar sem bílstjórarnir eru ekki bundnir niður og verða því að sitja pikkfastir í sætinu. Svava segir algengt að fólk meiðist á baki eða jafnvel rifbeinsbrotni ef það skelli mikið til í bílnum í beygjum, því sé mikilvægt að sætið sé af réttri stærð. „Ég var með of stórt sæti í bílnum og þurfti að kepþa með þrjár þrynjur til að hlífa mér. Nú er ég kom- in á nýjan bíl en sætið var aðeins of þröngt og við þurftum að skera út fyrir lærunum," segir Svava og brosir við. Standa jafnfætis körlunum Ekki stunda margar konur akstursíþróttir hér á landi og í gokartinu keppa nú aðeins tvær konur. „Við vorum þrjár í hitteðfyrra, ég, Petrína Jakobsdóttir og Eva Arne Sigurðar- dóttir, og þá gátum við keppt sér í kvennaflokki. Við kepptum samt með strákunum og fengum einnig verð- laun í þeirra flokki ef við náðum að sigra þá. Til þess að keppt sé í kvennaflokki þurfa minnst þrjár konur að taka þátt þannig að í fyrra og í ár keppum við Eva með strákun- um. En við erum þúnar að sanna það að við stöndum þeim fyllilega jafnfætis og getum allt eins unnið þá," segir Svava og viðurkennir að bikarmeistaratitillinn í fyrra hafi verið henni sérlega mikilvægur f Ijósi þess að hún er kona og yngsti keppandinn. Svava segist þó vilja fá fleiri konur í sportið, ekki til að keppa í kvennaflokki heldur til að fá fé- lagsskap frá konum líka. „Konurnar veita líka hver annarri samkeppni. Það er mikil keppni á milli okkar Evu núna sem er af hinu góða." Þau sem fylgjast með akstursíþróttum vita að þessar greinar eru í ákveðinni lægð um þessar mundir og Svava segist vonast til að takist að rétta úr kútnum. Þannig er óljóst um margar af þeim keppnum sem haldnar hafa ver- KONURNAR í GOKARTINU HAFA SÝNT FRAM Á AÐ ENGIN ÞÖRF ER Á KVENNAFLOKKUM í MÓTORSPORTI, KONURNAR ERU TILBÚNAR AÐ SIGRA 0G GERA ÞAÐ UM LEIÐ 0G FÆRI GEFST ið undanfarin ár en Svava segir að unnið sé að því hörðum höndum að stærstu keppnirnar verði haldnar. Þeirra á meðal er Rotax keppnin en sigurvegarinn í þeirri keppni hér á landi hefur fengið að keppa í alþjóðlegu Rotax keppninni þarsem keppendurfrá rúmlega þrjátíu löndum taka þátt. I fyrra fór Magnús H. Lárusson til Suður-Afríku og faðir Svövu fór með til að sjá um viðgerðir á bílnum. Svava segir það vissulega drauminn fyrir flesta að komast út í þessa keppni og að sorglegt væri ef þessi keppni legð- ist af hér á landi. En hvað er svona skemmtilegt við gokartið? „Spennan og áhættan," segir Svava en það leynir sér ekki að keppnisskapið er mikið. „Það er alltaf gaman að vinna," viðurkennir hún. „En það skiptir líka miklu máli að hafa gaman af þessu. Mérfinnstalltafgaman að prófa eitt- hvað nýtt. Ég hef líka kynnst fjöldanum öllum af skemmti- legu fólki í gegnum þetta og það finnst mér mjög mikil- vægt." X vera / 3. tbl. / 2003 / 49

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.