Vera - 01.06.2003, Side 65

Vera - 01.06.2003, Side 65
/ ALÞINGISKOSNINGARNAR Hverju lofuðu flokkarnir? »Þegar áherslur flokkanna í jafnréttismálum fyrir kosningarnar eru skoöaðar kemur í Ijós margt sameiginlegt. Þannig tala fulltrúar allra flokka um nauðsyn þess að jafna launamun kynjanna, viðhorfsbreytingar og fjölgun kvenna í stjórn- unarstöðum. Hafa verður í huga að jafnréttismál eru hluti af stærri stefnu flokk- anna og að oft er erfitt að einangra þau frá öðrum málum, eins og t.d. fjölskyldu- málum eða velferðarmálum. Undir jafnréttismál eru flokkuð málefni eins og niður- felling leikskólagjalda (VG), breytingar á barnalögum sem leiði til sátta í erfiðum málum og jafns réttar foreldra (Sjálfstæðisflokkur), útrýming fátæktar sem bitni verst á einstæðum mæðrum (VG), barátta gegn klámi og kynlífsþrælkun sem bitni helst á konum (Samfylking og VG), heimilisofbeldi (Samfylking) og aukinn réttur sambýlisfólks og hjóna til námslána án þess að einstaklingur sé bundinn af tekjum maka síns (Sjálfstæðisflokkur). Vinstri grænir: Kvenfrelsi og launamunur kynjanna I stefnuskrá Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fyrir kosningarnar segir meðal annars um jafnréttismál: »Kvenfrelsi er mikilvæg forsenda jafnréttis kynjanna og ein af grundvallarforsendum kvenfrelsis er efnahagslegt sjálfstæði kvenna. Jafna verður kynbundinn launamun. Eitt forgangsverkefnanna í þessum málaflokki eru gagn- sæir kjarasamningar á félagslegum grunni til að tryggja launajafnrétti." Jóhanna B. Magnúsdóttir sem skipaði 1. sæti listans í Suðvesturkjördæmi segir í grein frá 2. maí að floldeur- mn vilji svipta burt launaleyndinni og tryggja eftirlit nieð launamun þannig að honum verði útrýmt. Launa- misréttið sé ein af orsökum fátæktar í vissum kvenna- stéttum og flokkurinn vilji þjóðarsátt um að útrýma fá- tækt með því að lægstu laun verði hækkuð verulega og sköttum létt af þeirn. Jóhanna segir flokkinn jafnframt segja klámvæðingunni stríð á hendur og vilja gera kaup a vændi refsiverð. Hún bendir á að kvenfrelsi sé haft að leiðarljósi í öllum málaflokkum enda sé kvenfrelsi sam- tvinnað allri pólitík og lífinu sjálfu. Kolbrún Halldórs- dóttir þingmaður VG segir í grein frá 13. apríl að í því augnamiði hafi verið gefin út sérstök kvenfrelsisstefna °g gert átak í því að draga kvennamálin fram í dagsljós- ið. Á stefnuskránni sé að ráðast til atlögu gegn kyn- oundnum launamun og ranghugmyndum. Frjálslyndi flokkurinn: Jafnrétti á öllum sviðum Frjálslyndi flokkurinn hefur líklega stystu orðin um þennan málaílokk en í stjórnmálayfirlýsingu hans segir orðrétt um jafnréttismál: „Jafnrétti kynjanna á að gilda á öllum sviðum.“ Hins vegar má líklega að einhverju leyti gera ráð fyrir því að jafnréttismál séu samtvinnuð öðrum stefnumálum flokksins, þrátt fyrir að því sé ekki iýst afdráttarlaust yfir eins og hjá Vinstri grænum, þar sem yfirskrift stjórnmálayfirlýsingar landsþings Frjáls- lynda flokksins frá því í mars er Frelsi, jafnrétti, bræðra- lag og á það að gilda í öllum málaflokkum. I grein á vef- síðu Frjálslyndra segir Margrét Sverrisdóttir konur búa við kynbundið launamisrétti, óeðlilega rýran þátt í fjöl- miðlum, tvöfalt vinnuálag þar sem vinnuálag á konur á heimilum minnki ekki, að konur séu yfirleitt ekki í valdastöðum og þáttur kvenna í stjórnmálum sé óeðli- lega rýr og endurspegli ekki samfélagið. Þessi samfélags- mynd felur í sér kúgun kvenna, segir Margrét. Samfylking: Markvisst jafnréttisstarf I kosningastefnu Samfylkingarinnar segir að fráfarandi ríkisstjórn hafi brugðist konum með aðgerðaleysi gegn kynbundnum launamun og rýrum hlut kvenna í stjórn- kerfi ríkisins. Hins vegar megi ná miklum árangri með markvissu jafnréttisstarfi. Samfylkingin segist m.a. beita sér fyrir: • Að jafna hlut kvenna og karla í stjórnunarstöðum á vettvangi hins opinbera og í viðskiptalífinu. • Að tryggja framkvæmd jafnréttisáætlana í ráðuneyt- um og stofnunum. Jafnrétti verði sett í forgang í stjórnkerfmu og sjónarmið þess fléttuð inn í alla stefnumótun og ákvarðanatöku innan stjórnsýsl- unnar. • Að jafna launamun kvenna, m.a. með samþættingu atvinnu- og einkalífs og átaki ríkisvalds og vinnu- markaðar. Gerð verði rannsókn á launamun kvenna og karla og samþykkt verði framkvæmdaáætlun um jöfnun á þessum launamun. Sett verði á fót jafn- launaverkefni á vegum ríkis og sveitarfélaga og öllum ráðum beitt til að bylta viðhorfi samfélagsins til vinnuframlags kvenna. • Að opinber tölfræði verði kyngreind. • Að í leikskóla og á öllum skólastigum miði uppeldi að jafnrétti kynja og því að koma í veg fyrir fordóma og vera / 3. tbl. / 2003 / 65

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.