Vera - 01.06.2003, Side 66

Vera - 01.06.2003, Side 66
/ ALÞINGISKOSNINGARNAR mismunun. Þátttaka stelpna og kvenna í upplýsinga- byltingunni verði tryggð. • Stefnt verði að jafnræði milli karla og kvenna á Al- þingi og í sveitarstjórnum. • Rannsóknir verði auknar á heilbrigðisvandamálum kvenna. • Unnið verði gegn fátækt kvenna, m.a. með auknum barnabótum og afkomutryggingu. í ályktun frá vorþingi Samfylkingarinnar segir að enn sé nokkuð í land að þátttaka kvenna í lands- og sveitar- stjórnamálum sé jafn mikil og virk og þátttaka karla. Þótt jafnrétti kynjanna hafi verið tryggt í lagalegu tilliti sé efnahagslegt sjálfstæði kvenna ekki í höfn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á vorþinginu að menn sem kalla sjálfa sig athafnastjórnmálamenn hafi ekki sýnt því sérstakan áhuga að beita þeim tækjum sem ríkisvaldið ræður yfir í þessum efnum: „...það er auð- veldara að ná árangri í því að jafna stöðu karla og kvenna en menn vilja vera láta. Til þess þarf hins vegar einbeittan pólitískan vilja, metnað og þrautseigju og konur þurfa að standa jafnfætis körlum í stjórnmálum og stjórnsýslu,“ sagði hún. Sjálfstæðisflokkur: Fæðingarorlof og einkavæðing Eins og búast má við af flokki sem verið hefur lengi í ríkisstjórn leggur Sjálfstæðisflokkurinn áherslu á þann árangur sem þegar hefur náðst í jafnréttismálum. Ber þar hæst ný lög um foreldraorlof sem flestir frambjóð- endur flokksins halda á lofti ef þeir fjalla um jafnréttis- mál. í ályktun um jafnréttismál frá landsfundi flokksins segir að flokknum sé í mun að jafnrétti sé á milli ein- staklinga til þess að frelsi þeirra sé hámarkað. Ábyrgðin hvíli á öllum íslendingum en þó sé mikilvægt að hið opinbera sýni gott fordæmi. Flokkurinn leggur áherslu á að mikilvæg viðhorfs- breyting hafi þegar orðið og að einkavæðing sé jafnrétt- ismál. Arðsemiskrafa til fyrirtækja aukist þegar þau eru færð úr ríkiseigu og um leið líkurnar á því að jafnréttis- sjónarmið séu höfð að leiðarljósi við ráðningar og í launamálum, enda séu þessir þættir í betri farvegi í einkafyrirtækjum en hjá hinu opinbera. Flokkurinn fagnar auknum hlut kvenna í atvinnusköpun og segir að árangur kvenna í atvinnurekstri og sýnileiki í stjórnun- arstöðum sé öðrum konum hvatning. Einnig er fagnað árangri verkefna sem kostuð eru af atvinnulífinu. I ályktuninni segir að enn sé að mörgu að vinna og lagðar eru fram nokkrar tillögur, þeirra á meðal: • Beitt verði fyrirbyggjandi aðgerðum sem breyti námsframboði þannig að það heilli stúlkur og drengi að jöfnu. Úrræðin dragi úr brottfalli drengja og vekji áhuga þeirra á háskólanámi. Karlmenn verði hvattir til starfa innan skólakerfisins svo börn alist upp við fyrirmyndir og áhrif jafnt frá körlum sem konum. • Hið opinbera stuðli að breytingum viðhorfa með for- dæmum hjá stofnunum og ráðuneytum og dragi þannig úr fordómum á vinnumarkaði. • Konur eiga 13-18% af íslenskunr fyrirtækjum. Marg- ar hugmyndir um atvinnurekstur séu því vannýttar og hafi það takmarkandi áhrif á hagvöxt og atvinnu- sköpun. Þessi hlutföll verði höfð í huga við ákvarð- anatöku um stöðu frumkvöðla og nýrra fyrirtækja. • Ellilífeyrisréttur sem áunnist hefur í hjúskap eða staðfestri samvist skiptist til helminga við skilnað, án samþykkis beggja aðila. Framsóknarflokkur: Átak til að auka áhrif kvenna í atvinnulífinu I stefnuskrá Framsóknarflokksins sem gefin var út fyrir kosningar segir að helstu baráttumálin í jafnréttismál- um séu eftirfarandi: • Ráðast að launamun kynjanna. • Fylgja fast eftir lögum um jafna stöðu og rétt karla og kvenna. • Gera sérstakt átak til að auka áhrif kvenna í atvinnu- lífinu bæði hjá hinu opinbera og á almennum vinnu- markaði. • Efla rannsóknir á kjaramun kynjanna í samvinnu við atvinnulífið, birta niðurstöður þeirra og stuðla að opinni umræðu um þær. • Hvetja fýrirtæki til að vinna að jafnréttismálum og stuðla að frekari samræmingu fjölskyldu- og at- vinnuh'fs. Málflutningur framsóknarfólks í jafnréttismálum fólst hins vegar, líkt og hjá Sjálfstæðisflokki, að mildu leyti í því að ræða um það sem þegar hefur náðst, lofa áhrif breytinga á lögum um fæðingarorlof og þann árangur sem náðst hafi í stjórnartíð flokksins. Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokks, segir í grein frá 9. maí að mörg mikilvæg framfaramál á sviði jafnréttismála hafi náð fram að ganga þau átta ár sem flokkurinn hafi farið með jafnréttismál innan ríkisstjórnarinnar. Þó séu mörg verk enn óunnin og þar beri vitaskuld hæst launamun kynjanna sem ekki verði eytt með einni stjórnvaldsað- gerð, hér sé um að ræða verkefni samfélagsins alls. » Stefnuyfirlýsing nýrrar stjórnar Jafnréttisráð fagnaði því hversu mjög jafn- réttismál voru til umræðu í aðdraganda kosninganna en staða kynjanna á vinnu- markaði er ráðinu áhyggjuefni. Ráðið beindi þeim tilmælum til þeirrar stjórnar sem tæki við að jafnri stöðu og jöfnum möguleikum karla og kvenna yrði gert hátt undir höfði í stjórnarsáttmálanum og þar yrði eitt af for- gangsverkefnunum að útrýma launamun kynjanna. Nauðsynlegt sé að kynja- og jafn- réttissjónarmið verði samþætt allri stefnu- mótun og ákvarðanatöku opinberra aðila. í stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar eru eftirfarandi klausur um jafnréttismál: Staða fjölskyldunnar í samfélaginu verð- ur styrkt og fjölgað tækifærum foreldra til að samræma starf og fjölskyldulíf í anda þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar sem m.a. birtist í lögum um fæðingarorlof. Að hvetja fyrirtæki og opinberar stofn- anir til að vinna að jafnréttismálum. Gengist verði fyrir rannsóknum á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og áfram unnið að þvíaðjafnalaunamunkynjanna. X 66 / 3. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.