Vera - 01.06.2003, Page 70

Vera - 01.06.2003, Page 70
Jóhanna Helga Halldórsdóttir / ÖR dagbók kúabónda Fjósverk og tónleikahald »Uppstigningardagur og frí hjá börnunum, það er að segja í skólanum. Nú hafa þau verið heima í vorverkefni að vinna á bú- unum og gera dagbók um það fyrir skólann. Það er nú meiri munurinn að hafa blessuð börnin heima enda jafn óeðlilegt að geyma þau í skólum á vorin og ef grasið sprytti á haustin. Þessi stöðuga lenging á skólaárinu hentar okkur sveitabúum engan veginn og er eins óhentug okkar samfélagi og hægt er. 4- Þannig að þennan morgun sofa þessi þrjú litlu værum svefni í rúminu okkar á meðan við förum í morgunmjaltir, sá elsti kemur út um hálftíu til þess að gefa kúnum og eldri dóttir okkar fór að heimsækja vinkonu sína í gær og gistir. Eftir morgunmjaltir eru þau litlu enn sofandi og sofa næst- um fram að hádegi svo ég hef þennan fína tíma til þess að elda matinn og pressa sparifötin fyrir kvöldið. Paþbi þeirra fer að keyra rúllum og gefa nautgripum, flýta fyrir kvöld- verkum þar sem við þurfum að fara í fjós um hálffimm til þess að ná á tónleikana sem eru klukkan hálfníu á Blöndu- ósi, sameiginlegir með Lúðrasveit Húnavatnssýslu og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Þetta lið er allt að fara til útlanda, til Danmerkur og Svíþjóðar í byrjun júní, og halda tónleika saman og sitt í hvoru lagi, sýna sig og sjá aðra, vera landi sínu til sóma. Við eigum einn þarna í lúðrasveit- inni, elsti sonur okkar spilar þar á rafþassa. í hádeginu, yfir steikta fiskinum, segir miðsonurinn að ég hafi lofað honum fyrir löngu að fara einmitt þennan dag að hitta vin hans utar í dalnum, og ég sé ekki enn búin að sjá litla barnið þeirra. Ég játa upp á mig þá skömm, sængurgjöfin handa blessuðu barninu, sem fæddist 1. apríl, búin að vera innpökkuð ansi lengi, svo lengi að það er spurning hvort samfellurnar passa ennþá. Svo eftir upp- vask brunum við af stað. Eigum auðvitað mjög skemmti- lega stund með móður og föður og börnum, þar er sauð- burður í fullum gangi og börnin mín týna sér alveg við að skoða lömb því við eigum ekki þannig. Við konurnar týn- um okkur í sameiginlegum reynslusögum og því að dást að ungabarninu og allt í einu hrekk ég upp við að klukkan er að verða FIMM! Næ börnunum heim, nema miðsyninum sem neitar að ÞEGAR ÉG KEM HEIM ER SÆÐARINN KOMINN NIÐUR AÐ FJÓSI OG FARINN AÐ BÍÐA OG ÉG TRÍTLA í FJÓSIÐ Á SPARISKÓNUM TIL ÞESS Af) HALDA í HALA Á MEÐ- AN HANN SÆÐIR EINA UPPÁHALDSKÚNA koma fyrr en við förum á tónleikana. Ég sé það þýðir ekki að standa í stappi við hann ef ég ætla að komast heim ein- hvern tímann. Þegar ég kem heim er sæðarinn kominn niður að fjósi og farinn að bíða og ég trítla í fjósið á spari- skónum til þess að halda í hala á meðan hann sæðir eina uppáhaldskúna. Elsti sonurinn og pabbi hans koma heim á sömu stundu, annar var að slóðadraga og hinn að ýta til í flagi, og nú skiptum við um föt og hefjum kvöldmjaltir. Það er nefnilega þetta með mjaltir, þær taka alltaf jafn- langan tíma hvort sem eru tónleikar eða ekki en við getum flýtt fyrir okkur með því að gefa kálfum og svoleiðis á með- an við mjólkum. Ég er samt ekki komin inn fyrr en hálfsjö, drengurinn á að mæta hálfátta. Ég stekk í sturtuna, búin að baða krakkana þegar nágranni minn hringir sem á stúlku í lúðrasveitinni og segir að ég þurfi ekki að flýta mér alveg svona mikið því einn karlakórsmaðurinn sem býr uppi i Blönduvirkjun og á líka dreng i lúðrasveitinni þurfi að mæta fyrr og geti tekið alla lúðrasveitarkrakkana með sér. Ég blessa þá báða í huganum á meðan ég þurrka mér og klæði, djöfull fara sokkabuxur í taugarnar á mér þegar ég er hálfþurrkuð. Þessir blessuðu nágrannar mínir allt í kring hafa ásamt okkur hjónunum verið óþreytandi að keyra og sækja á æfingar og tónleika í allan vetur. Um leið og nágranninn fyrir framan kemur að skutla mínum dreng og sinni stúlku út á vegamótin kemur mágkona mín og litla dóttir hennar með kort til þess að skrifa á vegna fer- tugsafmælis annarrar mágkonu minnar sem skal haldið upp á kvöldið eftir með mikilli grillveislu. Almáttugur en það stress, hugsa ég, meðan ég kem meiki á andlitið og mála augnahár. Maðurinn minn hendir mér svo út af bað- inu þar sem hann þarf líka í sturtu. Mér dettur í hug að skynsamlegra hefði verið að fara saman í sturtu, en jæja, skrifa á kortið og plata mágkonu mína í leiðinni til þess að mæta á tónleikana til styrktar góðu málefni. Rek hana svo út og klæði tvö minnstu börnin og reyni aðeins að þurrka á mér hárið. Finnst ég svaka fín í speglinum í svörtu pilsi og helv. sokkabuxunum og blárri blússu, með eyrnalokka og allt. Minnist úttektar VERU á vaxtarlagi kvenna og við- urkenni að mér finnst konur flottar með stór brjóst og rass, veit að allir karlar í heiminum eru mér sammála. Pabbinn 70/3. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.