Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1947, Page 7

Freyr - 01.07.1947, Page 7
REYKJAVÍK, JÚLÍ 1947 Um þœr munciir, er þetta blaö Freys berst til lesendanna, stendur yjir í Reykjavík fyrsta almenna landbúnaöarsýningin, sem haldin hefir veriö hér á landi. Til sýningarinnar er stofnað með þaö sem markmið að sýna þeim, sem stunda aðrar atvinnugreinar, hvernig háttum og afkomu er varið i sveitunum nú og til þess jafnframt að gefa hinum, er landbúnað stunda, kost á að kynnast af eigin sjón og raun, hverjar nýjungar biða þess, að bœndur og húsfreyjur sveitanna veiti þeim viðtöku og noti til eflingar heimilis og' hagsœldar i sveitinni. Á meðal annarra þjóða hafa landbúnaðarsýningar verið haldnar um langt skeið, og viðurkennt er, að þœr hafi stuðlað mjög að örri útbreiðslu hagnýtra hluta og heppilegra starfsaðferða. Mœtti svo verða einnig hjá okkur! Þá er ekki til ónýtis varið þvi fé og þeirri fyrirhöfn, sem Búnað- arfélag íslands leggur í sölurnar, með traustum stoðum og styrk frá rikinu og flestum eða öllum þeim stofnunum, sem láta sig rhál landbúnaðarins nokkru varða. Ef sýning þessi mœtti verða til þess að treysta þau bönd, skilnings og velvilja, sem tengja sveitir og kaupstaði, og styðja um leið að blómgun og menningu íslenzkra sveita, þá er tilganginum náð.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.