Freyr - 01.07.1947, Side 21
FREYR
203
í bændaskóla. Þar fá þeir fræðslu um
flest, sem viðkemur búskap og venjast
notkun þeirra véla og verkfæra, sem hag-
kvæmust eru.
Það sem einkennir líðandi tíma er fólks-
fæðin og annríkið í sveitunum. Þar hafa
allar hendur meira en nóg að starfa.
Sveitapiltar eiga því erfitt með að dvelja
tvo vetur og eitt vor við búnaðarnám,
vegna anna. En á það skal bent, að bænda-
skólarnir leyfa piltum — sem hlotið hafa
nokkra undirbúningsmenntun — að setj-
ast í eldri deild skólanna. Þegar skóla-
kerfi landsins er komið í það horf, að flest
ungmenni stunda nám í unglinga- og
héraðsskólum, má gera ráð fyrir því, að
þeim piltum fjölgi, sem hafa þann undir-
búning, að þeir geta komist af með eins
vetrar nám í bændaskóla.
Þá væri hægt að breyta bændaskólun-
um í eins vetrar skóla með verklegu námi
að vorinu, en sleppa fyrri vetrar náminu.
Það fyrirkomulag álit ég að bezt myndi
reynast.
Bændaskólarnir þurfa að vera fljótir að
taka upp í kennslu sína og starfsemi þær
nýjungar, sem til gagns eru á sviði búnað-
arins, og einnig ber þeim að breyta um
námstíma og fyrirkomulag á kennslu, í
samræmi við þær breytingar, sem almennt
eru að verða á fræðslumálum þjóðarinnar,
en halda ekki í fyrirkomulag, sem sniðið
er við allt aðrar aðstæður en nú eru að
verða.
Kristján Karlsson.