Freyr - 01.07.1947, Side 22
204
FRE YR
Húsmæðraskólar
Á síðari hluta 19. aldar fór áhugi að
vakna á Norðurlöndum fyrir aukinni hús-
mæðrafræðslu.Mönnum fór að skiljast að
þörf væri á skólum, er veittu ungum stúlk-
um fræðslu í þeim greinum, er húsmæður
þurfa að kunna skil á,
Bændaefnin voru send á búnaðarskóla
— var þá ekki sanngjarnt að húsmæðra-
efnunum yrði einnig sómi sýndur? Var
ekki nauðsynlegt að þær fengju leiðsögn
og fræðslu áður en þær legðu af stað út í
lífið? Þeim yrði veitt nokkurt veganesti er
kæmi þeim að notum í húsmóðurstöð-
unni.
En það fór eins og svo oft hefir brunnið
við, þegar um mál okkar kvenfólksins er
að ræða, þeim hefir miðað seint, en á end-
anum hafa konurnar komið sínu fram
með aðstoð góðra og framsýnna manna.
Áhugasamar hugsjónakonur börðuzt ár-
um saman fyrir því, að húsmæðraskólar
yrðu reistir, þeim var það fyllilega ljöst
að nauðsyn bar til að fræða ungu stúlk-
urnar og kenna þeim þau vinnubrögð, er
þær áttu í vændum að inna af höndum
á heimilunum.
Húsmæðrafræðslunni jókst fylgi og
nokkru fyrir og um síðustu aldamót voru
stofnaðir húsmæðraskólar víða á Norður-
löndum.
Þessi áhrif báruzt hingaö til íslands
laust fyrir aldamót. Þá berst frú Elín
Briem fyrir því að húsmæðraskóla sé kom-
ið á fót í höfuðstaðnum. Full af áhuga og
Kvennaskólinn
á Blönduósi
Ljósm.:
V. Sigurgeirsson