Freyr - 01.07.1947, Page 23
FREYR
205
eldmóði hugsjónakonunnar tekst henni að
safna fé til skólans og stofnar hann árið
1897. Húsnæði fékk hún í „Iðnó“, en fyrir
forstöðukonu og kennslukonu réði hún
Hólmfríði Gísladóttur, er numið hafði mat-
reiðslu í Kaupmannahöfn. Var skólaárinu
skipt í fjögur 3ja mánaða námskeið, var
12 nemendum ætlað rúm á hverju nám-
skeiði, og áttu nemendur heima í skólan-
um meðan á náminu stóð og var rekin
matsala í tambandi við skólann.
Frú Elín Briem afhenti Búnaðarfélagi
íslands skólann árið 1901 og rak Búnaðar-
félagið hann undir forustu frk. Hólm-
fríðar til ársins 1907, en þá tók Hólmfríð-
ur við honum og stjórnaði meðan kraftar
entust. Skólinn í Iðnó var fyrsta sporið í
áttina til húsmæðrafræðslu hér á landi. —
★
Árið 1905 tók Kvennaskólinn í Reykja-
vík upp þá nýbreytni að halda matreiðslu-
námskeið við skólann. Voru þau haldin í
þrjú ár, féllu svo niður í eitt ár, en byrj-
uðu aftur árið 1909 þegar skólinn flutti
í hin nýju húsakynni við Fríkirkjuveginn
og var þeim haldið áfram til ársins 1942.
í húsmæðradeildinni við kvennaskólann
voru tvö námskeið árlega, 3—4 mánuði
hvort, var rúm fyrir 12 námsmeyjar á
hvoru námskeiði. Auk þess hélt skólinn í
Húsmœðraskólinn
á Laugum
Ljósm.:
V. Sigurgeirsson