Freyr - 01.07.1947, Síða 25
Námsmeyjar í hús-
mœðraskóla, sauma og
hekla.
Ljósm.:
Þorsteinn Jósepsson
húsmæðrakennslan kæmist í viðjmandi
horf.
Konurnar hugsuðu með sér: „það skal
fram sem stefnir meðan rétt stefnir“.
Telja má að 1923 sé nýtt spor stigið, er
verður til þess að marka tímamót í þess-
um skólamálum. Það ár ákvað skólanefnd
Blönduósskóla að breyta honum í hús-
mæðraskóla. Auka átti þar verklegt nám
að miklum mun, en draga að sama skapi
úr bóklega náminu. í skólanum átti að
kenna allt, er laut að húsmæðrafræðslu,
vefnað, handavinnu alls konar og garð-
yrkju. Af bóklegum námsgreinum skyldi
kenna íslenzku, reikning, dönsku, heilsu-
fræði og manneldisfræði. Námstíminn var
ákveðinn 9 mánuðir.
Eigi voru menn strax á eitt sáttir um
það, hvernig þessari breytingu yrði bezt
komið fyrir. En eftir nokkurra ára reynslu
og athuganir komst skólinn í það horf, er
hann hefir starfað í síðan og flestir hús-
mæðraskólar, er reistir hafa verið síðar —
nema skólinn á Hallormsstað, sem er
tveggja ára skóli — hafa tekið Blönduós-
skóla sér til fyrirmyndar um skipan og
skiptingu kennslustunda.
Allir voru sammála um að koma á vefn-
aðarkennslu í skólanum þegar breytingin
fór fram. Vefnaðarkunnátta okkar íslend-
inga var í stöðugri afturför. Því var nauð-
synlegt að koma vefnaðinum í húsmæðra-
skólana, ef hann átti ekki að glatast
með öllu. —
Breytingin á Blönduósskóla mæltist vel
fyrir og varð mjög vinsæl. Vaknaði við
það áhugi manna fyrir húsmæðraskólum,
og smátt og smátt fór að rakna úr með
allar framkvæmdir.
Húsmæðraskóli var stofnaður 1927 á
Staðarfelli í Dölum. Húsmæðraskólinn á
Laugum tók til starfa 1929 og skólinn á
Hallormsstað var stofnaður ári síðar.
Hallormsstaðaskólinn er tveggja ára skóli