Freyr - 01.07.1947, Page 30
212
FREYR
búnaðurinn engan aðgang að fjármagni til
umbóta í búnaðarháttum. Ekkert fé fékkst
hvorki til húsabóta, jarðræktar eða ann-
arra umbóta. Leiðrétting á þessu fékkst
ekki fyrr en eftir 1925 og þá kostaði það
harða baráttu að fá viðurkennt að veita
yrði miklum fjárhæðum til landbúnaðar-
ins, ef hann ætti ekki að verða undir í
samkeppni við aðra atvinnuvegi.
Hver eru megin verkefni landbúnaðar-
ins í þjóðarbúskap vorum?
Þar má nefna þrjú meginatriði:
Að fullnægja nota- og neyzluþörf þjóð-
arinnar um framleiðslu matvæla og hrá-
efna til iðnaðar, sem veðurfar landsins og
náttúruskilyrði að öðru leyti leyfa að fram-
leiddar séu.
Þá má og nefna að framleiða vörur til
útflutnings, að svo miklu leyti, sem nátt-
úrufar landsins og markaðsskilyrði leyfa.
Loks er þriðja meginverkefnið, og að
öllum líkum það mikilvægasta. Það er að
ala upp hraust og tápmikið fólk til starfa
fyrir þjóðfélagið. Gifta þessarar þjóðar
mun velta á því, framar flestu öðru, á
komandi árum, að nægilega mikill hluti
AfburSa skepna