Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1947, Síða 33

Freyr - 01.07.1947, Síða 33
FREYR 215 það hin síðustu árin, að þeim er full al- vara með að taka þau risaskref á fáum árum, sem til þess þarf að framkvæma slíkt. Stórhugur þeirra nú í ræktunarmál- um, og öðrum framkvæmdum varðandi búnað, sýnir það glögglega. En til þess að svo megi verða, þarf að tryggja þeim nægi- legt fjármagn og með skynsamlegri lög- gjöf tryggja þeim nægileg félagsréttindi, svo að bændastéttin geti notað mátt sam- taka og samhjálpar til þess að efla og styrkja landbúnaðinn. Eitt er það sem aldrei má gleymast, það er hagsmuna mál þjóðarinnar allrar, hvar í stétt sem menn skipa sér. Það er, að land- búnaður og sveitamenning verði sterkur og veigamikill þáttur í þjóðarbúskap vor- um. Minnumst þess, að engin þjóð' getur sótt fram á við og haldið menningu sinni í horfi, nema ræktun landsins og landbún- aðurinn þróist, í fullu samræmi við aðra þáttu þjóðlífsins. Steingr. Steinþórsson.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.