Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1947, Síða 42

Freyr - 01.07.1947, Síða 42
224 FRE YR til, er hægt að þvo þvottinn meS mikið minni fyrirhöfn en áður, og mun ég síðar í Frey gefa upplýáingar um þvottaaðferðir, sem létta verkið að miklum mun. Ég hefi átt því láni að fagna að vera húsfreyja í sveit, um langt árabil, og þekki þess vegna sveitarlífið af eigin raun, bæði þess björtu hliðar og erfiðleikana. Ég geng þess ekki dulin, að það er heil- brigðasta lífið, væri hægt að létta erfiðið, sem nú er svo mikið sakir fólksfæðar og aukinnar krafa til lífsins gæða. Nauðsyn- legt er að gera heimilisstörfin sem ein- földust, (einfalt líf er æfinlega bezt), vinza úr allt, sem getur heitið hégómi, eða óþarft, en skapar oft mikla vinnu, aukið Húsmóðirin er jafnan bœði skapari og verndari skrúð- garðs heimilis- ins Ljósm.: Gísli Kristjánsson erfiði. Ég hefi veitt því eftirtekt, að á sumum sveitaheimilum, er farið að fægja gólf eins og tíðkast í kaupstöðum. Hér á landi er mjög votviðra samt, og þar af leiðandi svo oft óhreinlegt í kringum hús og bæi. Eru gólffægingar síður en svo heppileg þrifnaðarráðstöfun og þar að auki mikið erfiði. Bezt er að olíubera gólfin vel, og hafa sem minnst af teppum, sem ekki geta talist beinlínis nauðsynleg, því þau munu ekki vera til aukinna þrifa, en krefjast stöðugra hreinsunar. Húsfreyjan verður að gera heimilisstörf- in sem einföldust, verja heldur þeim litla tíma, sem hún kann að hafa afgangs, til aukinnar garðræktar, ekki einungis heim-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.