Freyr - 01.07.1947, Side 56
238
FREYR
„Sveitirnar
fyllast, akrar
hylja móa.“
okkar frá 1937, verður ekki komist hjá að
veita þeim undrum athygli, sem gerzt
hafa í samgöngumálunum á sama tíma,
þar sem endurbygging veganna er gerð
með jarðýtum og öll áfylling* ofaníburðar
með vélskóflum. Flutningsbílarnir dreifa
svo sjálfir ofaníburðinum um leið og þeir
losa hlassið, en vegheflar leggja síðustu
hönd á verkið og vegurinn er fullgerður.
Vegakerfi sveitanna mun því brátt taka
stakkaskiptum og með vaxandi innflutn-
ingi farartækja handa sveitunum, má með
sanni segja, að byggðin færist saman, en
það mun létta alla samvinnu og glæða fé-
lagslífið.
Margt er enn ótalið, sem verða mun fjár-
hagsleg og félagsleg lyftistöng fyrir sveit-
irnar.
Grundvöllur þeirra umbóta eru raf-
magnstaugar um landið þvert og endilangt.
Þá opnast bændum ágætir möguleikar til
þess að hagnýta sér blásturstæki til hey-
þurrkunar. Þá munu mjaltavélarnar einnig
ná almennri útbreiðslu, en hvort tveggja
er bændum lífsnauðsyn að eignast.
Tími er nú vissulega kominn til þess, að
létta nokkuð strit húsmæðranna, með inn-
flutningi þvottavéla, því lengi hafa þær
háð sína þolinmóðu baráttu við erfiðleik-
ana. Þá munu þær eflaust vel kunna að
meta gildi frystitækja til matvælageymslu,
er hvert sveitaheimili þyrfti að hafa að-
gang að.
Þegar jarðræktarsamböndin hafa fengið
nægilegan vélakost til framræslu, ræktun-
ar og jafnvel bygginga, og bændurnir
eignast heimilisdráttarvélar með tilheyr-
andi tækjum, jeppa, súgþurrkunartæki og
mjaltavélar, en húsmæðurnar þvottavélar,
kæliklefa og ýms hjálpartæki innanhúss,