Prentarinn - 01.01.1972, Blaðsíða 4
PRENTARINN
Blað Hitis islenzka prentarafélags
50. árgangur
l.—S. tölublað 1912
Ritstjórar:
Guðjón Sveinbjörnsson
Haukur Már Haraldsson
Prentsmiðjan Hólar lif.
Efnisyfirlit:
Dökk eða björt framtíð? . 3
Fjölsótt afmælismóttaka
í félagsheimilinu . 9
Ávarp Lóthers við afhendingu
gullmerkja HÍI’ . 10
Gutenbergsbiblía frá félagsmönnum . 11
Ánægjuleg afmælishátfð . 12
Kvöldljóð . 14
Til HÍP 75 ára . 15
Heiðursfélagar . 16
Afmælisóskir leiknar á horn . 17
Viötal við Bessastaðaprentarann . 18
Athöfnin . 21
Bók er bezt vina . 22
„Jóhannes, ]>ii verður að læra
prentverk" . 25
„Pólitík, það er brauð og
magarín" . 29
Sýnasafn frá fyrri tíð . 33
Valdimars drápa Guðmundssonar . 41
Þing norrænna prentara
haldið á íslandi í fyrsta sinn . 42
Guðmundur Guðmundsson látinn . 49
Sænskir bókagerðarmenn sameinast . 50
Prentgripasýning í Landsbókasafni . 53
Fjárhagur Hins fslcnzka prentarafélags
1967-1971 . 54
Veikindadagar . 58
Gamall dómur . 59
Forsíða gerð af
Teiknislofu Gísla B. Björnssonar
Þegar ég fékk það verkefni að skrifa í „Prent-
arann", er það fyrst að segja, að mér er margt bet-
ur gefið en skrifa greinar og hcf því ekki lagt það
beinlínis fyrir mig.Viðfangsefnið var þó félagið sjálft
og því nærtækt. Það ætli að vera verkefni við mitt
hæfi, þar sem félagið er stærsti hluti míns daglega
lífs og starfið ekki leyst af hendi frá klukkan 9—6,
heldur eru óleystu verkefnin í lniga manns utan
þess tíma.
Hið íslenzka prentarafélag er nú 75 ára, en af
þessum tíma þekki ég vel aðeins 4 ár, þau ár, sem
ég hcf tekið þátt í félagsstörfum. Saga félagsins
spannar yfir tímabil í þróun íslenzkrar atvinnu-
sögu þar sem mestar breytingar og stórstígustu
framfarir hafa átt sér stað. Tímabil sviptinga á
vinnumarkaðnum milli verkalýðshreyfingarinnar,
sem hefur verið að festa sig í sessi og fjármagnsins
í höndum rfkisvaldsins og fárra skipulagðra ein-
staklinga.
Okkar félag hcfur komið heilskinnað út úr þess-
um hamförum, stundum skrámað en oftar með
nokkurn hluta þeirrar köku, sem til skiptanna var.
Þó hafa þetta ekki verið einu verkefnin, því sjálft
félagið hefur verið í endurnýjun; það hefur orðið
að fylgjast með tímanum, haga baráttu sinni á ann-
an vcg en áður og mæta nýjum þörfum félaga sinna.
Þetta hefur stundum tekið lengri tíma en nauðsyn
var, en þess ber að gæta, að félag sem á sér svo
langa sögu og hefur lifað svo margt, tekur engum
stökkbreytingum, heldur þróar með sér það nýja.
Þetta er sjónarmið gióins bónda, sem engu amboði
hendir fyrr en engin þörf er fyrir það lengur.
Ef ég geri nú tilraun til þess að velta fyrir mér
einstaka þáttum í starfseminni og á fjörurnar rekur
viðfangsefni, sem eiga sér ýmsar liliðar, vildi ég
gjarna að þetta gæti orðið umræðuefni í prent-
smiðjunum og heyra aðrar tillögur en þær sem ég
set hér fram.
2
PRENTARINN