Prentarinn - 01.01.1972, Síða 58
Pjetur Stefánsson:
FJÁRHAGUR
HINS ÍSLENZKA
PRENTARAFÉLAGS
1967—1971
Inngangur
Þegar Hið íslenzka prentarafélag varð sjötíu ára
gerði ég nokkra grein fyrir fjármálum félagsins scin-
ustu 10 árin í sama anda og Guðmundur heitinn
Halldórsson hafði áður gert á 10 ára tímabili allt
frá því að félagið var 40 ára. — I>ó nú séu ekki nema
5 ár síðan þykir ekki úr vegi að framhald sé gert
á þeirri frásögn þegar félagið hefur náð 75 ára
aldri og þá ekki síður með tilliti til þeirra breyt-
inga, sem fyrirhugaðar eru á sjóðafyrirkomulagi
þess. Tillaga sú sem aðalfundur 1971 samþykkti í
þá átt er svo hljóðandi:
„Stjórn og trúnaðarmannaráð Hins íslenzka prent-
arafélags leggur til við aðalfund félagsins að farið
verði að tillögu Sigurðar Stefánssonar löggilts end-
urskoðanda um að breyta reikningsuppgjöri H.Í.P.
á þann hátt að lieildareign allra sjóða þess verði
gerð að einum höfuðstóii.
Jafnframt felur fundurinn stjórn og laganefnd að
sameina reglugerðir sjóðanna á Jrann hátt að þær
nái þessu markmiði og feli í sér öll þau réttindi og
skyldur félagsmanna sem þeir hafa notið".
Hafði aðalfundur 1970 ákveðið að ráða löggiltan
endurskoðanda til að endurskipuleggja bókhald fé-
lagsins og fylgjast með fjárreiðum þess. — Á grund-
velli Jreirrar samþykktar var ársreikningur fyrir ár-
ið 1971 gerður. Höfuðbreytingin fólst í því að ekki
var gerður rekstrarreikningur fyrir hvern sjóð. Heild-
artekjuafgangi var skipt á sjóðina í J>ví hlutfalli sem
þeim hafði verið ætlað að fá af iðgjaldatekjum og
Jreirri niðurstöðu bælt við höfuðstól hvers sjóðs
eins og hann var í ársbyrjun.
í töflum þeim sem hér fara á eftir hef ég kosið
að gera árið 1971 upp á sama hátt og næstu 4 árin
á undan, enda raskar það á engan hátt raunveru-
legum fjárhag félagsins.
Framasjóður
Starfsemi Framasjóðs hefur á síðustu árum tekið
allmiklum breytingum. Hvað viðkemur styrkjum til
utanfara felast þær þó einkum i Jíeirri ákvörðun sem
tekin var á árinu 1970, sem fór í þá átt að hætta
að veita 1.500,00 kr. styrk til þeirra sem um sóttu
vegna farar til útlanda án þess að fyrir lægju nokk-
ur gögn um það að viðkomandi hefði möguleika á
að afla sér aukinnar J>ekkingar í iðninni i Jreirri för.
í stað þess var tekin ákvörðun um að styrkur yrði
minnst kr. 8.000,00 og allt að 20.000,00 kr., enda
færi viðkomandi til raunverulegs náms. Nánari út-
færslu á þessu styrkjafyrirkomulagi má sjá í skýrslu
stjórnarinnar með reikningum félagsins fyrir árið
1971. Það hefur þótt verðugt verkefni Framasjóðs að
gera sitt til að félagsmenn væru ekki að öllu óvið-
búnir þcim tæknibreytingum sem hafa verið að
gerast í prentiðninni á seinustu árum. Á árinu
19G9 koma til útgjalda kr. 75.999,10 vegna nám-
skeiðs sem haldið var í Norræna húsinu. Á árinu
1970 eru greiddar kr. 52.705,00 og á árinu 1971 kr.
122.441,90 til námskeiðalialds í nýjungum í prent-
verki. Beinir styrkir til félagsmanna námu á þessum
5 seinustu árum kr. 54.000,00. Þrátt fyrir aukin út-
gjöld hefur sjóðurinn vaxið á árunum 1967—1971
um kr. 92.216,14.
Yfirlit [>að, sem hér fer á eftir, sýnir iðgjöld til
Framasjóðs, aðrar tekjur hans, útgjöld hans vegna
styrkja og námskeiða og eigna hans í lok hvers árs,
árin 1967-1971:
Framasjóður. Yfirlit 1967—1971.
Ar Iðgjöld Vextir og Styrkir og Eignir í
aðrar tekjur námskeið árslok
1967 28.948,00 15.855,00 15.000,00 271.714,36
1968 28.072,00 17.940,00 3.000,00 314.726,36
1969 27.633,00 17.286,00 83.999,10 275.646,26
1970 63.944,00 18.305,00 56.396,00 301.499,26
1971 104.867,14 78.203,00 150.441,90 334.127,50
253.464,14 147.589,00 308.837,00
Félagssjóður
Eins og segir í fyrra yfirliti mínu um sjóði H.í.l'.
á árunum 1957—1966 var á aðalfundi 1966 tekin
54
PRENTARINN