Prentarinn - 01.01.1972, Page 11

Prentarinn - 01.01.1972, Page 11
1 tilefni 75 ára afmœlis HIP var f>eim prenturum, sem verið höjðu félagar i 50 ár eða lengur veitt gull■ merki Hins islenzka prentarafélags. I‘essir menn voru: Arni Guðlaugsson (gelili i jélag- ið 1926),Ásgeir Guðmundsson (1914), Baldvin Helga- son (1920), Björn Benediktsson (1914), Einar Jóns- son (1920), Einar Jónsson (1924), Guðbjöm Guð- mundsson (1916), Guðmundur K. Eiriksson (1927), Guðmundur Guðmundsson (1918), Haraldur Jóns- son (1907), Jóhannes Sigurðsson (1910), Jón Bene- dilitsson (1920), Jón Þórðarson (1911), Magnús S. Magnússon (1901), Óskar Guðnason (1925), Óskar Jensen (1925), Óskar Söebeck (1926), Sigmar Björns- son (1925), Sigurður S. Ólafsson (1925), Valdimar K. Guðmundsson (1917), Þórður Bjarnason (1909), Sam- úel Jóhannsson (1926) og Þorsteinn Halldórsson (1921). Myndin hér að ofan er af gullmerkishöfun- um, en á hana vantar Guðbjörn Guðmundsson og Asgeir Guðmundsson, sem voru veikir, er afliend- ingin fór fram. Fjölsótt afmælismóttaka í félagsheimilinu Fjórða apríl sl„ á 75 ára afmæli Hins íslcnzka prcnt- arafélags, tók stjórn félagsins á móti gestum í fc- lagsheimilinu að Hverfisgötu 21. Mikill fjöldi manna kom ]tar og árnaði félaginu heilla, og færðu ýmsir einstaklingar, félög og fclagasamtök HÍP rausnarlegar gjafir við það tækifæri. Formaður félagsins, Þórólfur Daníelsson, bauð gesti velkomna, og konur í Kvenfélaginu Eddu veittu kaffi og dýrindis mcðlæti. Fjölmargir gestir fluttu ávarp og árnaðaróskir. Gjafir til félagsins voru margar og veglegar eins og fyrr segir og má þar nefna: Gutenbergsbiblíu (ljósrit) frá félagsmönniim HÍl’. Gestabók, veglega útskorna og silfurslegna, frá Eddukonum. Mynd af formönnum félagsins frá upphafi, frá Starfsmannafélagi Odda og Svcinabókbandsins. Bækur frá Jóni Þórðarsyni. Gjafabréf frá FÍP, þar sem skýrt er frá þeirri á- kvörðun fclagsins að gefa hverjum félagsmanni HÍl’ eintak af Sýnisbók ritvcrka Hallbjarnar Halldórssonar. Stóran kristallsvasa frá Alþýðusambandi Islands. Tvær postulínsstyttur frá Ol’í. Kortabók Haraldar Sigurðssonar frá BFÍ. Ilófið tókst mjög vel, og var sérstaklega ánægju- legt hve margir félagsmenn sáu sér kleift að koma þótt á miðjum vinnudegi væri. — hm Inga Tliorsteinsson formaður kvenfé- lagsins Eddu afhendir Þórólfi Danielssyni gjöf félagsins, forkunnar- jagra gestabók. PRENTARINN 9

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.