Prentarinn - 01.01.1972, Page 12

Prentarinn - 01.01.1972, Page 12
Avarp Lúthers Jónssonar við afhendingu gullmerkja H í P Formaður. Góðir íélagar. Okkur finnst allajafna drjúgur tími liðinn síðan prentverk liófst hér á landi. Þó höfum við hér með okkur í dag hóp manua, sem hafa starfað liver um sig að þessari iðn okkar tæpan áttunda hluta alls þess tíma, sem preutað hefur verið á íslandi. Sumir þeirra eru raunar komnir langt yfir fimmtíu ára starfsaldur, en aðrir eru enn í fullu starfi og svo unglingslegir í öllu sínu fasi, að sú liugsuu leitar á mann, að þeir eigi eftir að halda upp á 75 ára starfsafmæli sitt. Þólt ýmsir hafi verið með lirakspár um prent- iðnina í nokkra áratugi, bæði hér á landi og erlend- is, hafa þær ekki rætzt. „Nú á bókin stutt eftir ó- lifað,“ var sagt, þegar kvikmyndin komst úr vöggu; „nú hætta hækur að seljast," sögðu sumir, er út- varpið kom til sögunnar; „nú er bókin dauð," sögðu enn aðrir, þegar sjónvarpið varð almenn- ingseign. En bókin er ekki dauð. Hún hefur senni- lega aldrei lifað betra lífi en í dag. Það er sama, hvert litið er f heiminum, alls staðar eykst bóka- útgáfa og önnur prentun hröðum skrefum. Sam- einuðu þjóðirnar hafa valið þetta ár „Ár bókar- innar". Það er ekki ætlað sem hressandi sprauta í líflausl fyrirbrigði, heldur til þess að heiðra bók- ina fyrir félagslegan og menningarlegan skerf henn- ar til mannlífsins fyrr og síðar. Ef hrakspárnar hefðu reynzt réttar, stæðum við naumast hér. Við lifðum ekki allir af cyðublöðum cinum saman. En sem betur fer urðu áhrif allra þessara uppfinninga — sem nú eru gjarnan kallaðar fjölmiðlar — þveröfug. Þótt ég hafi ekki kannað það, sýnist mér fljótt á litið, að við prentum núna á einu ári upp undir það eins mikið og fyrrum var prentað á heilli öld. Og svo stórstígar hafa framfar- irnar verið á tuttugustu öldinni, að þorri alls þess, scm prentað hefur verið á íslandi frá upphafi, hef- ur verið prentaður á þcirri hálfu öld, sem þessir félagar okkar hérna hafa unnið prentlistinni. Reynd- in hefur orðið sú, að bókin liefur orðið manninum Tveir hútir aö ajlokinni gullmerkja- afhendingu: Magnús S. Magnússon (til vinstri) og Þórður Bjarnason (til hatgri). Magnús er elztur núlifandi prentara. æ nauðsynlegri fylginautur, því almennari sem hún hefur orðið. Bókin hefur það líka fram yfir flesta aðra gripi, að hún er einstaklega fjölhæfur og trúr félagi; hún er ávallt reiðubúin, hvenær sem eig- andinn vill, þess albúin að gleðja, skemmta eða fræða að vild. Því vænti ég þess, bæði mannsins vcgna og prentlistarinnar, að tengsl manns og bók- ar eigi eftir að verða enn meiri og nánari en hing- að til. Hérna eru nú með okkur 22 menn, sem eiga það sameiginlegt að hafa allir unnið að prentiðn í meira en hálfa öld — og ég veit ekki, hvað ég á að segja. Hvað á að segja við menn, sem svo lengi hafa verið dyggir félagsmenn Hins íslenzka prentarafélags, gold- ið gjöld sfn, hlýtt boðum félagsins og gegnt fyrir það trúnaðarstörfum margir hverjir, verið tryggir fé- lagsmenu í mótlæti jafnt sem meðlæti? Ég veit ekki, hvað á að segja, en ég hygg, að hvert verkalýðsfélag megi vera stolt af þvílíkum félagsmönnum; stolt og þakklátt, því að slíkir menn eru burðarás hvers félags. Ég þakka ykkur, hálfrar aldar prentarar.Fyrir hönd stjórnar Hins fslenzka prentarafélags þakka ég ykkur innilega fyrir langa og góða þjónustu við prentlistina, og félagi okkar á ég þá ósk bezta, að það megi eignast sem flesta slíka félagsmenn. 10 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.