Prentarinn - 01.01.1972, Side 20

Prentarinn - 01.01.1972, Side 20
Viðtal við Bessastaða- prentarann Þórður Bjarnason er meðal elztu núlifandi prent- ara, fæddur 5. júlí 18S6, og varð því 86 ára á síð- astliðnu sumri. Hann var kjörinn heiðursfélagi Hins íslenzka prentarafélags á 75 ára afmæli þess og sæmdur gullmerki félagsins af sama tilefni ásamt öðrunt prenturum, sem starfað höfðu að iðninni 50 ár eða lengur. Þórður er fæddur að Skógtjörn á Alftanesi, þar sem foreldrar hans, Bjarni Þórðarson og Guðbjörg Sigurðardóttir, bjuggu. Eins og títt var á þeim tíma fór Þórður snemma að vinna á heimili foreldra sinna við bústörfin. Viðtal það, sem hér fer á eftir, var tekið á heimili Þórðar, Skaftahlíð 34, 22. september 1972. — Þórður, það var næsta fátítt í upphafi þessarar setrið Bessastaði, og þegar Skúli Thoroddsen flyzt prentverk innan sveitar. Hver var aðdragandi þess? „Skógtjörn er í næsta nágrenni við höfðingja- setrið Bessastaði, og þegar Skúli Thoroddsen flytzt þangað um aldamótin réðst ég til búsins og vann þar ýmis verk, sem til féllu. Meðal annars sá ég um að ekki yrði vatnsskortur hjá kvenþjóðinni í eld- húsinu, en vatn var þá borið inn f húsið. Ég var við þessi störf á annað ár. Vel kom mér saman við kvenfólkið, og ráðskona búsins, Guðbjörg Jafets- dóttir, móðursystir Einars Sigurðssonar prentara, vildi ekki að ég færi burt og varð hvatamaður þess að ég fengi að læra prentverk i Prentsmiðju Þjóðviljans. Ég hóf svo námið 15. maí 1902.“ — Þú hefur lært hvort tveggja, setningu og prent- un? „Já, eins og venja var á þessum tíma, lærði ég báðar greinarnar, en vann þó meira að setningu fyrstu árin.“ — Hver voru verkefnin í Prentsmiðju Þjóðviljans á námsárum þfnum? „Það var nú aðallega Þjóðviljinn, prentun á neðanmálssögum úr því, rfmnaskáldskapur og eitt- hvað af skáldsögum. Einni bók man ég eftir sérstak- lega, sem við prentuðum, það var Skipið sekkur eftir Indriða Einarsson." — Hver var vélakosturinn? „Prentvélarnar voru fyrst tvær, eu önnur var flutt aftur til ísafjarðar í sambandi við kosninga- undirbúning og eitthvað af letri með henni. Press- urnar voru að sjálfsögðu handsnúnar og þurfti tvo fíleflda karlmenn til þess verks." — Hverjir voru samstarfsmeun þínir á náms- árunum? „Það var Jón Baldvinsson, sem lært hafði í Prentsmiðju Þjóðviljans á ísafirði og fluttist með henni tii Bessastaða, og Einar Sigurðsson, sem einn- ig mam f Prentsmiðju Þjóðviljans á ísafirði og fór suður með Skúla Thoroddseu. Hann var verkstjóri í prentverkinu á Bessastöðum. Haraldur Gunnars- son, sonur ráðsmannsins á Bessastöðum, hóf þar prentuám tveimur árum síðar en ég, f október 1904. Og réttu ári síðar hóf nám í prentsmiðjunni Sigurður Kjartansson." — Lærifeðurnir, Jón og Einar, hafa verið góðir prentarar og félagar? „Já, blessaður vertu. Þessa menn þarf ekki að kynna fyrir prenturum. Þeir voru góðir félagar og síðar í forustusveit prentara og alþýðunnar." — Hvernig húsbóndi var Skúli? „Hann var ágætur húsbóndi, skipti sér ekki aj neinu í prentsmiðjunni og kom yfirleitt ekki ná- lægt prentverkinu sem slíku." — Stjórnaði Skúli ekki búinu á Bessastöðum? „Hann hefur vafalaust haft yfirstjórn þess, en hann hafði ráðsmann, Gunnar Sigurðsson, og ráðs- konu, Guðbjörgu Jafetsdóttur, sem ég nefndi áðan, og þau önnuðust búið.“ — Var um nokkurt próf að ræða, þegar þú liafð- ir lokið námstímanum? „Nei, ekki var það. En árið 1903 fór Einar Sig- urðsson frá Bessastöðum til vinnu í ísafoldarprent- smiðju. Ári síðar hætli Jón Baldvinsson einnig vinnu í Prentsmiðju Þjóðviljans og gerðist stofnandi Gut- enbergs og sama gerði Einar Sigurðsson, hann hætli vinnu í ísafold og gerðist stofnandi Guten- bergs. Þegar þessir tveir menn voru farnir burt hvíldi þungi prentverksins á mínum herðum, það var eins konar sveinspróf." — Manstu, Þórður, hvernig kaupinu var háttað á námsárunum? „Ég fékk 60 krónur í kaup yfir árið, frftt fæði og húsnæði, jafnt allan tímann." — Var þetta álitið sæmilegt kaup á þessum ár- um? „Ja, það dugði fyrir fatnaði og því nauðsynleg- 18 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.