Prentarinn - 01.01.1972, Blaðsíða 25
brenna höfunda í staðinn. Lúther hvatti borgaryfir-
völd eindregið til að koma sér upp góðum bóka-
verzlunum og bókasöfnum, en Kalvfn lét brenna
Michel Servet. Söfn páfastóls áttu óviðjafnanlega
fjársjóði bóka, en kirkjan lét brenna Giordano
Bruno og Jóhann Húss á báli. í nútímanum eru
tollverðir og póstafgreiðslumenn látnir annast eftir-
lit með hættulegum bókum, en óþægir höfundar
sumsstaðar lokaðir inni á geðveikrahælum (sem
eru kannski skárri en þrælabúðir fyrri áratuga).
Þerna Don Quixotes vildi láta brenna bókasafn
hans, því bækurnar væru undirrót þeirra óra sem
liann væri haldinn; og áhyggjufullar mæður í sam-
tímanum kenna óhollum bókum um uppreisn sona
sinna og dætra gegn neyzluþjóðfélaginu, sem hefur
ekki annað að bjóða þegnum sínum en dauða hluti
og samkeppni um þá.
Verzlunarvar a
Bækur voru orðnar verzlunarvara þegar á dög-
um Forn-Egypta, og hjá Rómverjum voru heimil-
isbókasöfn ámóta stöðutákn og þau eru nú meðal
íslendinga og annarra „bókaþjóða". Seneca áfelldist
anðuga samlanda sína fyrir að sanka að sér bókum
af fordild einni saman á sama tíma og þeir væru
fáfróðari en þrælarnir sem þcir fcstu kaup á til að
skrá bækurnar fyrir sig. Prentlistin margfaldaði
vcrzlunargildi bókarinnar, enda er hún hér á landi
og víðar ein allrahelzta verzlunarvara jólakauptíð-
arinnar. Þessi þróun hefur leitt af sér lélegri bæk-
ur, því útgefendur skírskota gjarna til þess að þeir
verði að gefa út bækur sem falli að smekk fólksins.
„Smekkur fólksins" er vitaskuld einber tilbúningur
auglýsingamaskínunnar, því það er hvorki til algild-
ur smekkur né samstæður hópur lesenda, heldur
einungis fjölmargir einstakir lesendur sem kaupa
bók afþví hún hefur fengið meðmæli gagnrýnanda
eða vinar, afþví nafn höfundarins er þekkt, afþví
heiti hennar eða jafnvel kápumynd er aðlaðandi.
Þetta hafa ótal kannanir leitt í Ijós. Margbreytileg-
an smekk almennings má líka ráða af skýrslum um
þá höfunda sem mest eru seldir og þýddir í heim-
inum. Árið 1969 voru fjórir efstu menn á þeim
lista: Lenfn, Jules Verne, Shakespeare og Simenon.
Hér á landi munu Halldór Laxness og Guðrún frá
Lundi vera mest lesnu höfundar.
Það er vitanlega hægt að móta bókmenntasmckk
einsog hægt er að kenna mönnum mannasiði eða
aðra þarflega hluti; sú mótun þarf ekki og á ekki
að uppræta persónulegar þarfir einstaklingsins,
heldur víkka sjónhring hans, opna augu hans fyrir
fleiri möguleikum og nýjum gildum, auka þroska
hans og næmi. Kannski er ein meginorsök versnandi
bókmenntasmekks og þverrandi bóklestrar hérlend-
is það andlausa og beinlínis niðurdrepandi stagl
sem víða í skólum landsins gengur undir nafninu
„bókmenntakennsla" eða „móðurmálskennsla". Að
fara með lifandi bókmenntir einsog Jrurra fræða-
texta, sem liða megi sundur, afbaka með langsótt-
um og oft gaguslausum skýringum, toga og teygja
að vild kennarans, það er að fæla æskufólk frá bók-
um og ætti að flokkast undir afbrot gegn manninum
og menningunni.
Bók er bezt vina
Hvað yrði, ef bókin hyrfi úr lífi okkar, einsog
ýmsir bölsýnismenn liafa spáð? Þeir sem sáu kvik-
mynd Truffauts, Fahrenheit 451, sem byggð er á
skáldsögu eftir Ray Bradbury, geta kannski gert sér
Jrað í hugarlund: það var einsog veröldin væri svipt
sál sinni, allt samband við fortíð og framtíð var
rofið. Bókin er í alveg sérstökum skilningi tengilið-
ur kynslóðanna, grundvöllur menningarinnar og
forsenda andlegs vaxtar og þroska hvers einstaklings.
Þó hún verði að einhverju leyti að víkja fyrir á-
hrifameiri fjölmiðlum, geta Jreir aldrei komið í
hennar stað og gegnt hlutverkinu sem hún hefur
rækt í 5000 ár. Hún hefur varðveitt rætur okkar í
fortíðinni og mun skila niðjunum þeim arfi scm
við viljum að varðveitist úr okkar tíð. Hún lýkur
upp fyrir okkur leyndardómum liðinna skeiða, ó-
kunnra landa, framandi tungna, fjarlægra lista-
verka, kynnir okkur óþekktar þjóðir og einstaklinga,
flytur okkur hugmyndir og hugsýnir sem við hefð-
um hvergi anuarsstaðar komizt í kynni við. Það
er engin tilviljun að á vörum íslenzkrar alþýðu
Myndsegulbandið er ein
af uppfinningum
20. aldarinnar
sem markað hefur bókinni
prengra svið
en hún hafði um skeið.
PRENTARINN
23