Prentarinn - 01.01.1972, Blaðsíða 52

Prentarinn - 01.01.1972, Blaðsíða 52
Kokaas benti líka á, að þótt atvinnurekendur væru reiðubúnir að fjárfesta stórfé i nýjum vélum, virtust þeir oft ekki sjá neina Jrörf á Jjví, að veita iðnaðarmönnum fullnægjandi þjálfun á Jiessar sömu vélar. Hann benti á, að fram á allra sfðustu ár hafi sú trú verið óhagganleg, að tækniframvindan væri eins konar náttúruafl, sem enginn gæti haft hemil á. Undir þetta liafi verkalýðshreyfingin jafnvel beygt sig. Nú væri sem betur fcr að aukast skilningur- inn á að stjórna bæri þróun tækninnar, svo forðast megi verstu skakkaföllin af hennar völdum, meðal annars atvinnuleysi, sem sjálfvirknin getur haft í för með sér. Kokaas vék að J>ví, hvernig sífellt streyma í prent- iðnaðinn nýjar gerðir véla. Nýjasta „undratækið" væri lestrarvél, sem gæti „lesið" vélrituð handrit fyrir setningarvélarnar, eða fyrir götunarvélarnar. Hann nefndi líka myndskerma til leiðréttinga á gataræmum, eða segulböndum o. fl. Það er skemmlilegt að fylgjast með og taka þátt í þessum breytingum, sagði Kokaas í greininni, en þær kalla líka fram margvísleg ágreiningsefni, bæði milli atvinnurekenda og verkalýðsfélaganna og einn- ig milli starfshópa innan prentiðnaðarins. Hverjir eiga að vinna við innskriftarborðin? Eru setjarar komnir út fyrir sitt verksvið, þegar þeir brjóta um í filmur eða vinna við framköllun á filmusátri? Er undirbúningsvinnan við handrit, sem fara í Icstrarvélar, í verkahring blaðamanna eða eiga prentarar að annast J>að verk? Eiga leiðrétt- ingatækin að vera á ritstjórnarskrifstofunum eða í prentsmiðjunum? Um [>etta hefur verið deilt, sagði Kokaas, og á ráðstefnunni lagði hann til að norrænir bókagerð- armcnn skipuðu nefnd til J>ess að undirbúa tækni- ráðstefnu, sem væri ætlað að samræma stefnu allra norrænna bókagerðarfélaga í þessum efnum. Louis Andersen var mjög fylgjandi tillögu Kok- aas, og sagðist álfta að nú biðu úrlausnar erfiðari mál cn bókagerðarmenn hafi áður þurft að glíma við, og hann ætti J>á við samningana um lestrar- vélarnar og allt sem þeim fylgir. Þær hafi komið fyrr cn flesta grunaði og hann vildi að tækni- ráðstefnan yrði haldin á þessu ári. Sænsku fulltrúarnir töldu útilokað að þcir gætu tekið þátt í slíkri ráðstefnu i ár. Sænsku bókagerð- arfélögin væru að sameinast og ættu margt ógert á næstu mánuðum. SamJ>ykkt var að ræða J>etta mál frekar í Stokkhólmi i ágúst. Þegar komið var að síðasta dagskrárliðnum, að ákveða næsta fundarstað, tók Erik Alderin til máls og bauð til næsta norræna prentaraþings í SvíJ>jóð að ári. Því næst sleit Þórólfur Daníelsson ráðstefn- unni og ]>akkaði fulltrúum fundarsetu, en Erik Alderin hafði orð fyrir erlendu þátttakendunum Henry Nielsen, jorm. danska Prentara- sambandsins og Hans Hansen i sólbaðsveðri i Miðdalnum. Óskar Guðnason, John Iionjield, jorseti Aljijóðasambands bókagerðarmanna, og Lúther Jónsson, ritari HÍP. og J>akkaði HÍP móttökurnar og framkvæmd ráð- stefnunnar, sem hann taldi hafa tckizt hið bezta. Fundur með bókagerðarmönnum Þegar ákveðið var að norræna prentaraþingið yrði lialdið hér á landi, kom upp sú hugmynd, að fróðlegt væri að fá einhverja erlendu gestina 48 PRENTARINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.