Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Qupperneq 48
30
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
líf bæarins lægi alt í kalda koli.
Dohk og dýrin voru óþrjótandi upp-
spretta frétta og ritstjórnarpistla.
Eins og alstaðar og ætíð gerist í
mannfélaginu kom að því, að sumir
Samsonítar fundu til meirimensku
sinnar, fram yfir sauðsvartan al-
múgann. Meira bar þó á því meðal
kvenna en karla. En hér var ekki
um auðugan garð að gresja, fyrir
blessaðar konurnar. Aðeins lög-
mannsfrúin sýndi áhuga á málinu,
og stólaði á Mrs. Samson sér til liðs,
þegar til þess kæmi, að stofna eitt
eða fleiri félög heldri kvenna bæar-
ins. Að því búnu gætu karlmennirn-
ir séð hvar þeir stóðu í félagslífinu
og stofnað Rótarí, Erni, Frímúrara,
eða hverja þá klikku, sem þeim
þóknaðist og hæfði mönnum af betri
klassa. Þegar til kom réðist ekkert
við Mrs. Samson. Hún sýndist ekki
hafa neina hugmynd um, hversu
hátt hún var hafin yfir allar aðrar
Samonítur; og félagslyndi hennar
takmarkaðist við kurteisisvisitasíur
eftir strangasta selskaparprótókol.
Ó, hún sosum kunni sig. Það vant-
aði ekki. Annað var verra. Hún gerði
sér helzt ferð í hús þeirra, sem að
réttu lagi stóðu lægst í mannfélag-
inu. Fátækt, veikindi og annað
basl verkaði á Mrs. Samson eins og
segull á járn. Ræflunum gaf hún
óspart það af tómstundum sínum og
efnum, sem að réttu lagi hefði átt
að ganga í fínar tedrykkjur og fjörug
spilapartí, til hjálpar bágstöddum og
trúarlegum málefnum.
Eftir ítrekaðar tilraunir gaf lög-
mannsfrúin Mrs. Samson upp á bát-
inn, og óskaði ser, að í Samson væri
læknisfrú. En til þess, að sú ósk
hennar uppfyltist, varð læknir að
setjast að í bænum. Þó enginn vissi
til að Mr. Samson kærði sig um
annan lækni en Dohk, vakti lög-
maðurinn máls á þessu við bæar-
ráðið og kvað það mestu hneysu, að
þurfa að sækja til annara bæa lög-
lega staðfesting dánarvottorða og
annara plagga, sem kröfðust undir-
skriftar lögmæts læknis. Mr. Sam-
son tók vel máli lögmanns og kvaðst
mundi gera gangskör að því. Það
stóð heldur ekki á þeim lögmæta.
Hann var kominn eftir mánuð, en
ungur og ógiftur. Honum fylgdi ekki
annað kvenna en ein skrifstofu-
stúlka, sem gekk hvítklædd í
embættinu og kunni á ritvél. Þótti
lögmannsfrúnni súrt í broti, en fékk
ekki að gert, og lifði í von um, að
sá lögmæti festi sem fyrst ráð sitt-
En Dohk lét af lækningum nema ef
efnalausir eða ólæknandi áttu í hlut,
og gaf sig allan við dýr og vísindi-
Fjölgaði stöðugt á dýragarðinum og
þótti Samsonítum skörin fara upp 1
bekkinn þegar Sípíar skilaði af sér
dásamlegum apahjónum, sem hlutu
að kosta mikla peninga. Og allh
vissu að Mr. Samson borgaði
brúsann.
V.
Dásamlegast allra fyrirtækja Mr-
Samsons var sonurinn, sem frum
fæddi honum ári eftir að þau gifiu
sig. — í fylling tímans, sagði gu®'
hrædd Samsoníta. Þótti mönnum
hann hefði dregið lengur undirbún-
ing þessa fyrirtækis hans en annara,
en Samsonítur kváðu þriggja mam
aða drátt lýsa skikkanlegheitum og
velsæmiskend Samsonhjónanna. Þa
væri eins og annar myndarskapur-
inn hjá Samson & Co. Hitt kom