Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Blaðsíða 86
68
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
í fremstu röð þeirra manna, sem
gerðu garðinn frægan má telja Arn-
grím Jónsson, því á Hólabiskups-
setri var hið merka æfistarf hans
unnið; þar ólst hann upp; þar stund-
aði hann nám í átta ár. Svo sigldi
hann til Kaupmannahafnar þar sem
hann stundaði nám í fjögur ár. Á
þeim árum sem hann dvaldi í Kaup-
mannahöfn kynntist hann mörgum
ágætum mönnum, er hann síðar
hafði ýms skifti við. Að loknu námi
kom hann til íslands árið 1589, og
var honum veitt um haustið, rektors
staðan á Hólaskóla. Þeirri stöðu hélt
hann 1 sex ár.
Árið 1590 var Arngrímur vígður
til prests, en honum hafði, árið áður,
verið veittur, af konungi, Melur í
Miðfirði. Eftir prestsvígslu gerðist
hann kirkjuprestur á Hólum, en þau
ár sem hann hafði aðsetur á Hólum
hélt hann prest til að þjóna Mel.
Þegar Arngrímur tók við rektors-
stöðu á Iiólum var honum þannig
lýst:
„Var hann bæði hinn fríðasti sýn-
um, kurteis í framkomu og þó hinn
tígulegasti, snjall í máli og laginn.
Var svo fas Arngríms og alúð í
framkomu, að hann virtist hverjum
manni vel. Sýndist sem menn hafi
nær dregist að honum fyrir sakir
þokka sem af honum stóð.“
Sökum langvarandi vanheilsu
Guðbrandar biskups, fór hann þess
á leit við konung að Arngrímur væri
settur aðstoðarmaður sinn í biskups-
embættinu. Var það mál auðsótt, og
Arngrímur var, af konungi, skipaður
til aðstoðar Guðbrandi biskupi með
bréfi dagsettu þann 28. apríl 1596.
Prófastsdæmi fékk Arngrímur um
þær mundir um Húnavatnsþing, árið
eftir. Einlægt vináttuþel ríkti milli
Guðbrandar biskups og Arngríms,
sem sýndi sig í því, að þegar Arn-
grímur gerðist aðstoðarmaður bisk-
ups gaf Guðbrandur honum, eins og
í sumargjöf, stórbýlið Holt í Fljót-
um með Saurbæ.
Var nú Arngrímur önnur hönd
biskups í mörg ár, þar til biskup
féll frá árið 1625. Var Arngrímur þá
útnefndur biskup, en þeirri stöðu
hafnaði hann. Hafði hann allareiðu
mikið annríki við skrifstörf, eins og
síðar er skýrt frá. Þorlákur Skúla-
son, dóttursonur Guðbrandar bisk-
ups, var kjörinn biskup, en þar eð
hann var ekki vígður fyr en eftir
þrjú ár, skipaði konungur Arngrím
með bréfi dagsettu 8. nóvember 1625,
og síðar öðru dagsettu 31. marz 1626,
til að sinna öllum eiginlegum bisk-
upsstörfum öðrum en ráðsmensku
staðarins, en þann starfa hafði Hall'
dóra dóttir Guðbrandar á hendi með
aðstoð ráðsmanns. Flutti þá Arn-
grímur að Melstað 1628 og sat þar>
þar til konungur veitti honurn
Miklabæ í Blönduhlíð, 4. júní 1630-
Átti hann þar heimili lengst af upP
frá því.
Það var ekki fyrr en undir 1°^
sextándu aldar sem Evrópu-þjéðir
fengu nokkrar ábyggilegar upplýs'
ingar um ísland, íslenzku þjóðina og
fornbókmenntir hennar. Þrátt fyr|r
þessa fávísi létu nokkrir erlendir
rithöfundar það ekki aftra sér fra
því að skrifa og gefa út bækur og
bæklinga um landið og íslendinga-
Þeir afskræmdu allt sem þeir skP
uðu um það, og jafnvel spunnu upP
lygasögur um land og þjóð. íslen
ingar urðu þessu sárrreiðir, °S