Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Blaðsíða 126
108
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
um Islenzka brautrytSjendur I Álftavatns-
og GrunnavatnsbyggÖum. — Mun séra
Bragi FriÖriksson hafa átt drjúgan þátt í
þvl rnAli og framkvæmd þess. — Var
minnisvaröinn reistur aö Lundar. Bæöi
forseti og varaforseti voru viöstaddir og
tóku þátt I þessari athöfn.
75 ára afmælishátlö Argylebyggöar var
haldin þar I sveit snemma I júlímánuöi.
Einn aöalræöumaöurinn við þaö tækifæri
var dr. Tryggvi J. Oleson, prófessor, fyrr-
verandi varaforseti þessa félags vors.
Annað sem vakið hefir eftirtekt manna á
dr. Oleson á þessu ári er það, aö doktors-
ritgerð hans, sem hann samdi um ákveðið
tímabil I sögu Bretaveldis, var gefin út.
Hefir bólcin vakið athygli á meðal lærðra
manna, og þykir hún mjög fræðimannlega
samin og merkilegt rit á allan hátt.
Landstjóri Canada, the Right Honorable
Vincent Massey, heimsótti byggð íslend-
inga að Gimli s.l. sumar. Var forseta þessa
félags og konu hans boðið til móttökunnar,
sem fór fram I listigarði bæjarins; og
flutti landstjórinn þar ávarp. Þrír fyrir-
rennarar hans hafa áður heimsótt Gimli,
þeir lávarðarnir Dufferin og Tweedsmuir
og jarlinn frá Athlone.
Allmikla athygli vakti það, er sú frétt
barst hingað vestur, að Halldór Kiljan
Laxness hefði hlotið bókmenntaverðlaun
Nóbels fyrir skáldsagnagerð slna. Eins og
öllum, sem lesa Islenzku er löngu kunnugt,
er Laxness mög umdeildur rithöfundur.
Engu að slður munu allir Islendingar
fagna þvl, að þessi mikli heiður féll 1
hlut manni af vorri þjóð. 1 tilefni af þess-
um viðburði var efnt til Kiljansvöku hér I
bæ 10. des. Voru lesnir kaflar úr bókum
skáldsins, með skýringum. Mun prófessor
Finnbogi hafa verið hvatamaðurinn að
þessari viðleitni, og flutti hann skýring-
arnar og eagði ævisögu skáldsins I stórum
dráttum. Var þetta mjög fróðleg og á-
nægjuleg kvöldstund. Þjóöræknisfélagið
sendi skáldinu heillaóskaskeyti I tilefni af
þeirri sæmd, er hann thlaut hjá hinni
sænsku akademíu.
Þegar Finnbogi prófessor var á Islandi
seinast, sumarið 1954, skutu útgefendur
þar, fyrir atbeina hans, saman I svo nefnt
Farandbókiusafn Vestur-íslendinga. Eru I
þvi um 80 úrvalsbækur, og hafa þær nú
verið I umferð I Selkirk, Siglunesbyggð og
Norður-Nýja-íslandi. Hefir þessari nýjung
verið vel tekið, og er I ráði að safnið haldi
áfram ferðum sínum um byggðirnar.
Nýlega barst forseta bréf frá hr. porleifi
Þórarsyni, forstjóra Ferðaskrifstofu ríkis-
ins (Islenzka), þar sem hann getur þess,
að Ferðaakrifstofan hafi I huga að efna
til gagnkvæmrar hópferðar I næstkom-
andi júnímánuði. Telur hann að Þjóðleik-
hússtjóri hafi mikinn áhuga fyrir þessu
máli, og ef til vill geti komið til greina
að senda t. d. fimm manna leikflokk
vestur, og aðra fagmenn og listamenn til
samkomuhalda á meðal vor Vestur-lslend-
inga. óskar hann eftir áliti Þjóðræknis-
félagsins á möguleikum um samvinnu um
þetta mál.
Walter J. Líndal héraðsdómari gaf á
árinu út merka bók, sem hann nefnir:
“The Saskatchewan Icelanders, A Strand
of the Canadian Fabrie.” Eins og nafnið
bendir til, fjaliar bókin um landnám ís'
lendinga I Saskatohewan-fylki, einkum í
þeim héruðum, sem kennd eru við Church-
bridge, Calder, Hólar, Foam Lake, Krist-
nes, Leslie, Elfros, Mozart, Wynyard
Kandahar og Dafoe. Bókin er rúmlega.
360 blaðstður að stærð og hin prýðilegasta
að öllum frágangi. George W. Simpson,
prófessor I sagnfræði við háskólann i
Saskatchewan, skrifar Itarlegan formála.
Bókin hefir fengið mjög góða dóma bæði
á íslandi og I blöðum hér vestra, og &
höfundurinn heiður og þakkir skilið fyrir
merkilegt og nauðsynlegt verk, sem hann
hefir leyst af hendi með sóma.
1 febrúar I fyrravetur voru sæmd
riddarakrossi Fálkaorðunnar þau ungfrú
Margrét Pétursson, Walter J. Lindal dóm-
ari og Lárus Sigurðsson læknir. í júlí'
mánuði voru sæmd á sama hátt þau John
Y. Bearnson og frú Kate B. Carter I Salt
Lake City, Utah; I sama mánuði var forseti
Þjóðræknisfélagsins sæmdur stór-riddara-
krossi Fálkaorðunnar, og nýlega hafa Þ®ir
próf. Thorbergur Thorvaldson og Oscar
Finnbogason I Saskatoon verið sæmdir
stórriddarakrossi.
Guttormur skáld Guttormsson var kjör-
inn heiðursmeðlimur I Rithöfundafélag1
íslands.
Dr. P. H. T. Thorlakson, M.D., LDDo
var lcjörinn formaður I Manitoba Medica
Service, og einnig formaður Alum11
Association við Manitoba-háskólann.
Edward Vopni, forstjóri Art Press Ltd..
var kosinn forseti stjórnarnefndar Air
Cadet League of Canada, og bróðir hans,
Jón A. Vopni, ritstjóri The Davidson
Leader, Davidson, Sask., var kosinn forse 1
Canadian Weekly Newspaper Association
á þingi þess félagsskapar I Vancouver, B. •
Wiliiam (Bill) Finnbogason, sonur Gut
orms og Ólafíu (Bardal) Finnbogason, va
skipaður umferðastjóri Winnipeg-borga
(City Traffic Engineer).
Sveinbjörn Stefán Björnsson, M-D-’
sonur Sveins læknis og Maríu Björnssom
var á árinu ráðinn héraðslæknir (Sta
Medical Examiner) I Delaware ríkinu.
Ungfrú Dorothy Jónasson frá Winnip®
hlaut styrk til hljómlistarnáms við R°y
Conseravtory of Music I Toronto, Ont.
Mrs. B. Violet ísfeld var kosin fors®,g
Canadlan Federation of Music Teache
Association á tlunda ársfundi þess félfsn_
skapar I Vancouver I júlímánuði s.l-; el°
ig var hún nýlega kosin forseti J