Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Qupperneq 54
36
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
hverfa heim til föðurhúsanna og
efla og víkka ið frábæra fjársýslu-
ríki, sem einu nafni nefnist Sam-
son & Co. Greininni fylgdu tvær
myndir af Steini litla. Önnur af
honum fimm ára gömlum, hin var
tekin skömmu áður en hann fór.
Myndirnar voru illa teknar og enn
ver prentaðar. Um það bar Sasonít-
um saman og þótti skömm til koma,
og báðu mig blessaðan, að taka ekki
mark á þeim.
Svo mikið fanst Samsonítum um
utanför Steins litla, að eftir hana
miðuðu þeir oftar helztu atburði
við burtförina, en sköpun heims eða
Kristsburð. Og mun það tímatal
hafa hafist þegar Mrs. Samson var
flutt á geðveikrahæli að ráði og með
undirskrift lögmæta læknisins. Ein-
hvern tíma hefði annar eins við-
burður krassað í sálum Samsoníta;
en svo andlega dasaðir voru þeir,
karlar sem konur, eftir „burtförina,“
að kjöftugustu kvenfélagskerlingar
voru orðlausar yfir raunum bless-
aðrar manneskjunnar. Lögmanns-
frúin var sú eina, sem sýndi snefil
af uppvakningu og var í essinu sínu.
Enda stóð til að sá lögmæti gifti
sig, og loks kæmist einhver stétta-
skipunarmynd á lífið í Samson. Yið
og við flutti Blaðið fréttir af líkams-
og sálarafrekum Steins, á menta-
ferli hans um Evrópu og Bandarík-
in. Og Steinn gamli var á eilífu rápi
og næturgöltri. En ekkert af þessu
megnaði að vekja Samoníta til and-
legs lífs. Jafnvel þegar spakspá rit-
stjórans rættist og Steinn hvarf
heim til föðurhúsanna, var hvorki
uppi fótur né fit, að öðru leyti en
því, að eftir það var alt, sem skeði,
miðað við „heimkomuna." „Burt-
förin“ gleymdist.
VI.
Frá landnámsöld höfðu Samsonít-
ar notið efnalegrar velmegunar í bæ
og bygð. En fyrir órjúfanlegt
ekonomiskt lögmál guðs og náttúr-
unnar hlaut velgengni þeirra að
snúast í örbyrgð og volæði fyrr eða
síðar. Það ástand nefnist kreppa og
er andstætt þeim uppgangi í brask-
lífi siðaðra þjóða, er búmm kallast.
Skellur nú kreppan á um borg og
bygð, líkt og biblíuplága í Egyptó-
Það sem Samsonítar hafa til þessa
metið til verðs, er ekki lengur skíts-
virði — til dæmis kornmatur og
iðjusemi. Hveiti er brent, af því það
er billegra en annað eldsneyti; og
stjórnarvöldin greiða mönnum kaup
fyrir að vinna ekki. Eina lífsvonin
er, að yrkja ekki akur og halda að
sér höndum. Jafnvel alt bissnes
virðist vera á leið í hundana — nerna
Samson & Co. Þó verzlunin vseri
dauf í búðinni, var þar meira líf en
annarstaðar. Og endalaus ferðalög
Mr. Samsons báru þess vitni, að
hann var ekki alveg bissneslega af
baki dottinn. Svo hart gekk hann að
sér, að Samsonítar þóttust vissir unr,
að hann hefði kallað son sinn heim,
sér til aðstoðar. En svo gat heim-
koman verið tilviljun — Samson-
lánið, sem aldrei brást. Blaðið haf"1
flutt frétt um undrastúdentinn í út'
landinu þess efnis, að hann hef 1
verið sæmdur doktorsnafnbót fyrir
bók, sem hann ritaði um Frjálsi
Framtak og Fríðindi Lofis# Láðs
Lagar — skammstafað 3F—3L. Bar
titill bókarinnar með sér, að men