Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Page 58
40
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
treysta sér til, að leggja met á þau.
Æskti þess aðeins, að mega benda
á presta bæarins, þrjá talsins. Hér
embættuðu þeir allir við eina guðs-
þjónustu og skiftu bróðurlega með
sér verkum. Prestur númer eitt
flutti hjartnæma ræðu um Stein
Samson, öldunginn og landnemann.
Prestur númer tvö briléraði á Mr.
Samson, athafna- og fjársýslu-
manninum, sem bæri að þakka efna-
legt- og guðsríkis-gengi als, sem Mr.
Samson hafði hönd á lagt. Prestur
númer þrjú tók námsferil Dr. Sam-
sons, Ph. D., sér til ræðuefnis og
gerðist afar mælskur, svo konur
grétu. Einnig útmálaði hann átakan-
lega sorg og söknuð þessa eftirlif-
andi Samsons-sonar og sonarsonar;
en ábyrgðist honum og öllum, sem
syrgðu þá framliðnu, himneska
huggun í bæninni. Loks óf prestur
númer þrjú saman allar ræðurnar,
leyfði sér að bera ina látnu vini og
Dr. Samson, Ph. D., saman við ina
mestu auðhölda Ameríku og þótti
vel til fallið, að heiðra þá með nafn-
bótinni: fyrsti, annar og þriðji . • •
í alhugasemd kvaðst ritstjórinn ekki
hafa númerað prestana eftir verð-
leikum. Það hefði prestur númer
þrjú heldur ekki gert í sambandi við
Stein Samson fyrsta, Stein Samson
annan og Stein Samson þriðja.
Þau andleg áhrif, sem útförin
hafði á sálir Samsoníta, má marka
af því, að vikum seinna kom fynr
að menn gleymdu kreppunni min-
útum saman; og konur settust að
kaffiborðinu glaðar og reifar,
mundu ekki fyrri en þær tóku fyrsta
sopann, að þar beið þeirra bara
bölvað skólp. Seyði af brendu bygg1-
HRINGHENDUR
Sléttur titra í tíbrár glóð,
teigar hita flóinn.
Vorsins glitrar geislaflóð,
gulli litar skóginn.
Sveipar gráan sinuvöll
sólargljái ljóminn;
jarðar láin litkast öll,
lifna strá og blómin.
Prýða hól og græna grund
grös í skjóli þíðu,
njóta róleg náðarstund
nú í sólarblíðu.
Sléttan blíða blómum skrýdd
björt og fríð að vanda,
akravíð og vötnum prýdd-
Vindar þíðir anda.
Ásgeir Gislas011